Fréttablaðið - 04.03.2022, Page 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Aude Busson getur loksins
frumsýnt barnaleikritið sitt
Manndýr þann 13. mars í
Tjarnarbíó eftir mikla kóf-
bið. Hún segir börn bestu
kandídat ana til að ræða
áleitnar spurningar um til-
gang lífsins.
odduraevar@frettabladid.is
„Hugmyndin að verkinu kvikn-
aði þegar ég las frönsku bókina
L’Enfant, eða Barnið,“ segir Aude.
Manndýr er þátttökuverk þar sem
krakkar frá fjögurra ára aldri geta
tekið þátt og svarað spurningum
um tilvist sína.
Aude útskýrir að í bókinni hafi
aðalpersónan, lítill strákur Leon-
ard að nafni, einmitt staðið frammi
fyrir áleitnum spurningum um
tilveruna. „Þannig kviknaði hug-
myndin bara að því að spyrja börn
einfaldlega: Til hvers eruð þið?“
Aude setti á laggirnar heimspeki-
vinnustofur fyrir krakka í Landa-
kotsskóla í kjölfarið en hljóðmynd
verksins byggist einmitt á þeim
svörum. „Þar ræddum við þetta
með börnunum. Hvert er hlutverk
mannsins í heiminum? Hvert er
hlutverk barna í heiminum? Hvað
ef við værum ekki til?“
Aude þurfti svo að sætta sig við
að bíða eftir því að geta sett verk
sitt á svið, jafnvel þótt það væri full-
búið, auðvitað vegna kófsins mikla.
„Það er ótrúlegt að hugsa til þess að
börnin sem tala í hljóðmyndinni
séu orðin tuttugu sentímetrum
hærri og að sum þeirra séu næstum
því orðin að unglingum í dag,“ segir
Aude og hlær.
Það hefur hins vegar ekki stöðvað
Aude sem ferðast hefur með sýning-
una á milli skóla. Þannig var hún
síðast í grunnskólanum í Þorláks-
höfn og hefur farið vítt og breitt um
landið. „Ég gerði þetta pínu öfugt út
af Covid.“
Eru börn tilbúin í svona stórar
spurningar?
„Algjörlega. Þau eru tilbúnari en
við ef eitthvað er,“ segir Aude. Hún
bendir á að börn, ólíkt fullorðnum,
ritskoði sig ekki.
„Það er ótrúlega skemmtilegt að
hlusta á þau og mér finnst ég skilja
hlutina miklu betur. Þau tengja
beint við hlutina og tala ekki bara
um teoríu, vísindi eða hugmyndir
heldur blanda þau þessu öllu saman
og nota ímyndunaraflið,“ útskýrir
Aude.
„Mér finnst nefnilega ekki rétt
að reyna að rökræða heiminn út
frá einu sjónarhorni og krakkarnir
eru svo sannarlega til í þetta. Ég var
einmitt svo hrædd fyrst um að þau
myndu ekki nenna þessu,“ segir
Aude hlæjandi.
Hið gagnstæða hefur frekar verið
vandamál. „Þau vilja ekki hætta og
það er auðvitað ótrúlega skemmti-
legt og mikil viðurkenning.“ n
Lærir margt á því að ræða
tilgang lífsins við börnin
Verkið er þátttökuverk þar sem
gestir eru hluti af sjálfri sýningunni.
Aude fer sjálf með aðalhlutverkið og býður börnum og fullorðnum að íhuga tilgang lífsins. MyND/AÐSEND
odduraevar@frettabladid.is
Lang frægasta pönk hljómsveit
landsins stígur á svið á Dillon í
kvöld eftir rúmlega þriggja ára tón-
leikahlé á höfuðborgarsvæðinu.
Fræbbblarnir ætla að halda upp á
nýfengið frelsi landsmanna ásamt
rokkhljómsveitinni Krömpum.
„Við erum að klára plötu og að
kynna hana en spilum að sjálfsögðu
gamalt efni með,“ segir Valgarður
Guðjónsson, söngvari og gítarleik-
ari Fræbbblanna allt frá upphafi,
eða síðan 1978.
Hann segir sveitina eiga nóg inni.
„Þetta er það sem heldur manni
gangandi, að semja og prófa nýtt
efni. Við gáfum síðast út nýtt efni
2015 þannig að þetta efni er búið
að vera lengi í vinnslu,“ segir Val-
garður. Hann segist reikna með að
nýja platan komi út í vor.
„Það er skemmtileg tilviljun
kannski ef við orðum það þannig,“
segir Valgarður hlæjandi aðspurður
hvort dagsetningin hljóti ekki að
tengjast afmæli bjórsins á Íslandi,
enda frægasta lag bandsins lagið
Bjór, frá 1996.
Valgarður segist hafa verið sáttur
við túlkun Gunnars Ragnarssonar
úr Grísalappalísu sem fór með hlut-
verk Valgarðs í Verbúðinni, þar sem
hann söng einmitt áðurnefnt lag.
„Þetta var mjög vel gert, þó það
hafi auðvitað verið einhver smáat-
riði sem voru ekki nákvæm. Ég vissi
að þetta stæði til en hélt að það yrði
skautað yfir þetta á tveimur sek-
úndum. Þetta kom skemmtilega á
óvart og það er mjög sérstakt að sjá
sjálfan sig leikinn af öðrum.“ n
Fræbbblarnir pönkast í Reykjavík
BÍÓBÆRINN
FÖSTUDAGA KL. 20.00
Gunnar Anton og Árni Gestur
fara yfir þær kvikmyndir sem
eru væntanlegar í bíóhús lands-
manna og dusta einnig rykið af
gömlum gullmolum og fræða
áhorfendur um leyndardóma
kvikmyndaheimsins.
Sveitin hefur sungið og gagnrýnt boð og bönn síðan árið 1978. MyND/AÐSEND
22 Lífið 4. mars 2022 FÖSTUDAGURFRéttabLaðið