Morgunblaðið - 25.03.2022, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 5. M A R S 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 71. tölublað . 110. árgangur .
FULLKOMIÐ
FJÖLSKYLDU-
HÚS Á SELFOSSI
TÓNLISTARVEISLAN AÐ HEFJAST
ENN AÐ VINNA
ÚR SAMEININGU
Í FJALLABYGGÐ
MÚSÍKTILRAUNIR 50 KOSNINGAUMFJÖLLUN DAGMÁLA 14FASTEIGNIR 16 SÍÐUR
Ljósmynd/Rauði krossinn
Góðverk Um 40 manns eru í áhöfninni og
lögðu allir sitt af mörkum í söfnunina.
_ Áhöfnin á frystitogaranum Júl-
íusi Geirmundssyni frá Ísafirði gaf
Rauða krossinum 1.250.000 kr.
Framlagið verður nýtt til að mæta
þörfum þolenda átakanna í Úkra-
ínu og veita neyðarþjónustu eins og
tryggja aðgengi að mat, vatni, heil-
brigðisþjónustu, húsaskjóli og veita
sálrænan stuðning. Söfnunin nær
einnig yfir hjálparstarf Rauða
krossins fyrir flóttafólk á Íslandi.
Hjalti Már Magnússon, yfirstýri-
maður togarans, segir í samtali við
Morgunblaðið að áhöfnin hafi viljað
leggja sitt af mörkum. Þeir séu allir
fjölskyldumenn og þeim finnist
átakanlegt að heyra af stríðshörm-
ungunum.
Áhöfn togara safn-
aði fyrir Úkraínu
Í yfirlýsingu frá fundi aðildarríkja
Atlantshafsbandalagsins í gær var
innrás Rússa í Úkraínu fordæmd og
Vladimír Pútín forseti Rússlands
hvattur til að stöðva árásirnar og
fara eftir niðurstöðum Allsherjar-
þings Sameinuðu þjóðanna frá 2.
mars sl. og niðurstöðu Alþjóðdóm-
stólsins frá 16. mars. Einnig voru
Hvít-Rússar nefndir í þessu sam-
hengi.
Aðildarlöndin voru sammála um
að Evrópa hefur ekki búið við jafn-
mikla ógn í áratugi og núna. Rússar
voru sakaðir um stríðsglæpi gegn
Úkraínu og sagðir með framferði
sínu ógna friði alls heimsins. Einnig
var biðlað til Kína um að virða al-
þjóðalög um fullveldi þjóða eins og
kemur fram í alþjóðasáttmála Sam-
einuðu þjóðanna.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra var á fundinum í gær og sagði í
samtali við Morgunblaðið að innrás
Rússa í Úkraínu hefði verið harðlega
fordæmd og að ákvarðanir hefðu
verið teknar á fundinum til að
styrkja viðbúnað Atlantshafsbanda-
lagsins í austurhluta Evrópu. „Það
var mikil eindrægni og samstaða
milli þjóðanna á fundinum og mikill
stuðningur við Úkraínu sem hefur
þurft að ganga í gegnum ólýsanlegar
hörmungar.“ Hún sagði að líklega
hefði stærsta ákvörðun fundarins
verið að svara ákalli austurhluta álf-
unnar, þeirra ríkja sem eru í NATO,
um að styrkja varnir þeirra. „Það
var mikil áhersla lögð á fimmtu grein
Atlantshafssáttmálans um að árás á
eitt ríki væri árás á þau öll. „Ég
gerði síðan grein fyrir okkar fram-
lagi sem er mest á sviði mannúðar-
aðstoðar og móttöku flóttamanna og
því sem við höfum getað lagt af
mörkum.“
Öryggi Evrópu ógnað
- Varnir Evrópu í austri styrktar - Áhersla lögð á 5. grein Atlantshafssáttmálans
- Framlag Íslands á sviði mannúðarmála - Kína beðið að halda alþjóðalög
AFP/John Thys
NATO Biden Bandaríkjaforseti, Macron Frakklandsforseti, Katrín Jak-
obsdóttir forsætisráðherra Íslands og Johnson, forsætisráðherra Bretlands. MSamstaðan aldrei verið… » 23
Það var ekki laust við að veður gærdagsins hafi
blásið höfuðborgarbúum von í brjóst um að vorið
sé á næstu grösum.
Sólarglætur í borginni kalla ávallt á stór-
auknar heimsóknir í ísbúðir borgarinnar.
Það er vissara fyrir ísbúðirnar að vera undir-
búnar og birgja sig vel upp. Landinn veit þó bet-
ur en svo að búa sig ekki einnig undir páska-
hretið sem hingað til hefur sjaldan svikið.
Morgunblaðið/Eggert
Ísbúðirnar birgja sig upp fyrir komandi sólartíð
_ Ákveðið hefur verið að stækka
hús Arctic Fish við höfnina í Bol-
ungarvík til að koma þar upp eigin
laxasláturhúsi. Fyrirtækið ætlar að
ríflega tvöfalda húsið og stefnir að
því að hefja slátrun á næsta ári.
Stein Ove Tveiten, forstjóri Arctic
Fish, segir að aðstaðan í Bolungar-
vík sé stórt skref í framþróun fyrir-
tækisins. Þetta sé mikil fjárfesting
en hún skapi einnig mikil tækifæri.
Fyrst og fremst sé hún mikilvæg
til að fyrirtækið hafi næga afkasta-
getu í slátrun og geti náð niður
kostnaði á hvert framleitt kíló. »6
Tvöfalda húsnæði
fyrir laxaslátrun
_ Rannsóknir
Lars H. Smeds-
rud, prófessors
við Háskólann í
Bergen, á flutn-
ingskerfum hafs-
ins í yfir heila öld
benda til þess að
flæði Golf-
straumsins í
Norðurhöfum
hafi aukist. Með
auknu flæði hlýs sjávar hafi varma-
flutningur norður á bóginn aukist
um þrjátíu prósent.
Mikilvægt framlag íslenskra vís-
indamanna til rannsóknar á haf-
straumum hafa verið mælingar á
Norður-Íslands Irmiger-straumn-
um á Hornbanka í um tuttugu ár.
Steingrímur Jónsson, sérfræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun og pró-
fessor við Háskólann á Akureyri,
sem kom að rannsókninni segir nið-
urstöður hennar alls ekki ríma við
kenningar um að Golfstraumurinn
sé að veikjast. »10
Flæði Golfstraumsins
í Norðurhöf aukist
Steingrímur
Jónsson