Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2022, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 14.04.2022, Qupperneq 4
Mér finnst harkalegt að fólk geti ekki borðað út mánuðinn og að foreldrar geti ekki leyft börnunum sínum að æfa íþrótt. Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins Oddviti Sósíalistaflokksins í borgarstjórn segir mikilvægt að ræða launabil starfsfólks í Ráðhúsi Reykjavíkur, líkt og nú er verið að gera á skrifstofu Eflingar. odduraevar@frettabladid.is REYKJAVÍK „Ef fólk er ekki tilbúið til að hækka lægstu laun þá finnst mér að við þurfum að fara hina leiðina,“ segir Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Sósíalistaflokksins í borgar­ stjórn, sem kveðst lengi hafa talað fyrir breyttum launastrúktúr í Ráð­ húsinu. Flokkssystir Sönnu í Sósíalista­ flokknum, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, stendur ásamt meirihluta í stjórn stéttarfélagsins fyrir breytingum á launauppbygg­ ingu á skrifstofu félagsins. Hefur starfsfólki skrifstofunnar nú verið sagt upp og hefur Sólveig Anna sagt að innleidd verði ný ráðningarkjör með gagnsæi og jafnrétti að leiðar­ ljósi. „Ég viðurkenni bara að ég hef ekki náð að fylgjast með öllum nýjustu fréttum af Eflingu, þannig að ég get ekki tjáð mig um það,“ segir Sanna spurð hvort hún hafi sambærilegar hugmyndir um launastrúktúr í Ráð­ húsinu og Sólveig Anna á skrifstofu Eflingar. „En varðandi Ráðhúsið þá hef ég sem borgarfulltrúi lagt til að við tökum umræðu um launabil og allavega ræðum það sem við teljum vera ásættanlegt launabil innan Ráðhússins,“ segir Sanna. Hún segist hafa lagt fram tillögu í borgarstjórn um að launabilið þrír á móti einum yrði skoðað. „En ég var opin fyrir því að ræða eitthvert annað launabil ef fólki fyndist þetta ekki í lagi, þannig að hæstu laun yrðu aldrei hærri en þreföld lægstu laun,“ útskýrir Sanna. Hún segir ekki hafa verið mikinn vilja til að ræða það innan borgar­ stjórnar og málið verið afgreitt þannig að þetta væri ekki rétti vett­ vangurinn til umræðu um málið. „En ég hugsa með mér, ef borgar­ stjórn getur ekki rætt þessi málefni, hvar eigum við þá að ræða þau? Það hefur verið rekin láglaunastefna í Reykjavíkurborg og ef við ætlum að hafa þessi lágu laun, er þá eðli­ legt að borgarstjóri sé með yfir tvær milljónir?“ Sanna segir mikilvægt að sam­ hengið sé skoðað. Talað sé um að mikilvægustu störfin hjá Reykja­ víkurborg séu umönnunarstörf. Störf á leikskólum og frístund til dæmis. „En við vitum að fólk í þess­ um störfum nær ekki að láta enda ná saman á þessum lágu launum,“ segir hún og bætir við: „Þurfum við þá ekki einmitt að ræða hvar við teljum ásættanlegt að hafa þetta launabil, á sama tíma og við erum með stjórnmálafólk sem er með himinhá laun og fær hækkanir tvisvar á ári, án þess að við biðjum um það, því það gerist sjálfkrafa út frá hækkun á launavísitölu?“ Sanna segist hafa lagt fram tillögu í apríl 2020 um að laun borgarfulltrúa myndu ekki hækka sjálf krafa á þennan hátt. „Sú til­ laga hefur enn ekki verið afgreidd,“ útskýrir Sanna. „Mér finnst eðlilegt að við skoð­ um samhengi hlutanna, að þegar við erum með fólk sem er með há laun og á sama tíma erum við sem launagreiðandi að greiða fólki mjög lág laun og lága fjárhagsaðstoð sem ekki er hægt að lifa á, þar sem fólk þarf að leita til góðgerðarfélaga til að fá mat, þá finnst mér eðlilegt að við ræðum þetta samhengi. Hvað finnst okkur ásættanlegt?“ Spurð út í tíðindin af skrifstofu Eflingar og hörkuna í umræðunni og hvort Sanna óttist hið sama yrði hún borgarstjóri og myndi grípa til sambærilegra breytinga á launa­ strúktúr, segir Sanna sína baráttu snúast um fólk sem hefur það verst. „Ef við færum fókusinn þangað þá eru það raddir fólksins sem hefur þurft að neita sér um mat síðustu daga mánaðarins, fólk sem hefur þurft að velja á milli þess að greiða reikninga eða kaupa lyf,“ segir Sanna. Aðspurð segir Sanna að sér finn­ ist ekkert harkalegt við að endur­ skoða mál þeirra starfsmanna sem hafa eina milljón eða jafnvel tvær milljónir á mánuði í laun. „Mér finnst harkalegt að fólk geti ekki borðað út mánuðinn og að foreldrar geti ekki leyft börnunum sínum að æfa íþrótt. Mér finnst það vera það harkalega í þessu, að við séum með allan þennan pening í þessu sam­ félagi og við erum ekki að leyfa fólki að njóta góðs af því vegna þess að við erum með svo mikla stétta­ skiptingu.“ n Sósíalistaflokkurinn vill breytingar á launastrúktúr í Ráðhúsi Reykjavíkur Sanna Magdalena gefur áfram kost á sér í borgarstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR FÁRÁNLEGA LÁGT VERÐ Við bjóðum upp á takmarkað magn af hjólbörðum og felgum fyrir fólksbíla, minni jeppa, stærri jeppa og pallbíla. Ný og ónotuð dekk á ótrúlegu lágu verði. Gott úrval af dekkjum og felgum. Hér fyrir neðan má sjá verðdæmi um dekk og felgur í boði: Dekkja- og felgugangar: 32” 255/75R17 - 199.000 kr. 33,5” 285/60R20 - 199.000 kr. 33” 275/70R18 - 179.000 kr. Dekkjagangur: 32” 255/75R17 - 69.960 kr. 30,5” 285/60R20 - 79.600 kr. 33” 275/70R18 - 79.600 kr. ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ISBAND.IS, DEKK@ISBAND.IS OG Í SÍMA 590 2323 FYRSTIR KOMA - FYRSTIR FÁ ÍSLENSK-BANDARÍSKA EHF • VERKSTÆÐI OG VARAHLUTAVERSLUN • SMIÐSHÖFÐA 5 • 110 REYKJAVÍK SÍMI 590 2323 • THJONUSTA@ISBAND.IS • WWW.ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 07:45 - 17:00 Fleiri stærðir í boði. Uppgefið verð er heill umgangur eða 4 stk með vsk. kristinnhaukur@frettabladid.is NEYTENDAMÁL Bensínverð á Íslandi er það áttunda hæsta í heimi sam­ kvæmt ástralska greiningarfyrir­ tækinu Finder. Að fylla meðaltank fólksbíls, 50 lítra, kostar hér 14.600 krónur en meðalverð hvers bensín­ lítra var 292,7 krónur. Langdýrasta bensínið er að finna í Hong Hong, en þar kostar tankurinn 18.500 krónur. Þá kemur Holland, Noregur, Mónakó, Ísrael, Simb abve og Finnland, áður en kemur að Íslandi. Heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp í vetur og stríðið í Úkra­ ínu hefur ekki gert neitt til að draga úr þeirri hækkun. Bensínverð á Íslandi hefur aldrei verið hærra en nú. Meðalverð tanksins er um 8.700 krónur í því 171 landi sem greining­ in nær til. Í Kína kostar hann 9.400 krónur, í Bandaríkjunum 7.800 krónur og í Rússlandi aðeins 4.000 krónur. Ódýrasta bensínið er í Venesúela en þar kostar heilar 160 krónur að fylla tankinn. Venesúela er olíu­ ríki og þar hefur stjórn sósíalista niðurgreitt bensín í áratugi. Svipað verð má finna í Líbíu og Íran en í Sádí­Arabíu, mesta olíuvinnslu­ ríki heims, kostar tankurinn tæpar 4.000 krónur. n Bensíntankurinn á Íslandi á meðal þeirra dýrustu Bensínverð á Íslandi er í hæstu hæðum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK emd@frettabladid.is ALÞINGI Frumvarp menningar­ og viðskiptaráðherra um aukaúthlut­ un úr sviðslistasjóði og launasjóði sviðslistafólks, hefur enn ekki verið samþykkt á Alþingi, þrátt fyrir að almenn sátt virðist vera um frum­ varpið eftir fyrstu umræðu í síðasta mánuði. Aðgerðunum er ætlað að styðja við sjálfstætt starfandi listamenn og tekur á tímabundinni fjölgun starfs­ launa og styrkja til sviðslistafólks og tónlistarflytjenda. Styrkjunum átti að úthluta nú á vormánuðum, en miðað við núverandi stöðu er ljóst að einhverjar tafir verði þar á. Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, segir seinaganginn á afgreiðslu og úthlutun slíkra styrkja tefja sviðs­ listageirann gríðarlega mikið. „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki bara Segir seinagang á afgreiðslu Alþingis tefja sviðslistageirann Erling Jó- hannesson, forseti Banda- lags íslenskra listamanna afgreitt. Þessi viðbót snýr að sjálf­ stætt starfandi sviðslistafólki og tónlistarfólki, sem er sá hópur sem var hvað viðkvæmastur á Covid­ tímabilinu.“ Hann segir listafólk vera orðið langþreytt því erfitt sé að fara aftur af stað eftir svo langan þurrka­ tíma í greininni. „Við sjáum það í gögnum Hagstofunnar að það er um 20 prósenta brottfall af einyrkjum úr menningar­ og listageiranum. Við erum að missa þekkingu og mannaf la úr greinunum.“ Erling segist þó bjartsýnn á að þetta verði samþykkt þar sem eining sé um frumvarpið á þinginu. „Við eigum svo eftir að greina langtímaáhrifin, en á móti kemur að listamenn eru gegnumgangandi með ótrúlega aðlögunarhæfni og fljótir að rjúka af stað.“ Frumvarpið er nú til meðferðar í allsherjar­ og menntamálanefnd. n 4 Fréttir 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.