Fréttablaðið - 14.04.2022, Side 18
Soffíu grunaði ekki að síðan
hennar Skreytum hús ætti eftir að
slá svona rækilega í gegn. „Þetta
er náttúrulega orðið stærra dæmi
en ég átti von á í byrjun. Lítil hug
mynd sem sneri að því að blogga
örlítið er orðin að heimasíðu,
stærsta heimilishópi á Facebook
með um áttatíu þúsund fylgjend
um, garðhóp og sumarbústaða
hóp. Síðan er ég með samnefnda
sjónvarpsþætti sem sýndir eru á
Vísi og á Stöð 2+.
Ég er bara ein af þessum ótrúlega
heppnu manneskjum sem ná að
sameina ástríðu og atvinnu, eða
í mínu tilfelli að gera ástríðuna
mína að atvinnu minni. Ég hef
ávallt haft ótrúlega gaman af því
að gera fallegt í kringum mig,
að skapa stemningu og búa til
umhverfi sem lætur mér líða vel.“
Engar fastar matarhefðir
Matarhefðir kringum páskana
er eitthvað sem Soffía hefur ekki
verið með. „Við erum víst ekki
rík af matarhefðum fjölskyldan.
Dóttirin hætti að borða kjöt fyrir
nokkrum árum og það breytti
ýmsu þegar kemur að því að elda
mat. Við reynum bara að finna
góða lausnir sem henta okkur
öllum.
Ég held í raun að ég njóti þess að
vera ekki með hefðir um páskana.
Við erum svo oft fastheldin þegar
kemur að jólum, þannig að ég
bara nýt þess að gera páskana eins
og okkur hentar best. Það hefur
komið fyrir að við séum í bústað
og þá er maður að gera eitt
hvað allt annað en hérna heima.
Páskarnir snúast mest um að vera
saman, að slappa svolítið af og
borða nóg af eggjum.“
Páskaskrautið er vorskraut
Soffíu finnst fátt skemmtilegra en
að skreyta og þegar tilefni gefst
til þess grípur hún tækifærið. „Ég
er dugleg að skreyta og páskarnir
eru ekki undantekning á því. Ég
lít á páskaskrautið sem vorskraut,
og þetta er kjörið tækifæri til að
skipta út þyngri teppum, gærum
og púðum, fyrir eitthvað létt
ara og vorlegra. Eins finnst mér
afskorin blóm og greinar alveg
ómissandi á þessum árstíma. Ég
hef stundum grafið upp páska
liljulaukana í garðinum, sett þá í
skálar og svo aftur út í garð.“
Soffa fann loks páskaskrautið
sem heillaði hana upp úr skónum.
„Það hefur í raun ekki verið mikið
af páskaskrauti sem ég hef heillast
af fyrr en fyrir þremur árum þegar
ég sá Lene Bjerrepáskaskrautið
sem fæst í Húsgagnahöllinni. Mér
finnst það alveg einstaklega fal
legt og það kemur alltaf eitthvað
nýtt á hverju ári og ég hef verið að
næla mér í hitt og þetta sem er að
heilla.“
Soffía er hrifin af kanínum og
má sjá þær víða um heimilið þegar
að páskahátíðinni kemur.
Páskaföndrið hefur minnkað
með árunum. „Á tímabili föndraði
ég helling fyrir páskana. Skreytti
egg með krökkunum þegar þau
voru lítil, gerði svona páskafána
lengjur úr gömlum bókablað
síðum og fyrir nokkrum árum
föndraði ég glimmeregg sem ég er
reyndar enn mjög hrifin af.“
Annars eru það súkkulaðieggin
sem heilla fjölskylduna helst. „Við
erum öll einlægir aðdáendur Nóa
eggja og það eru bara engir páskar
án þess að fá þau. Ég hef reyndar
líka tekið upp á því að skreyta
borðið með súkkulaðieggjum og
finnst það skemmtilegt á þessari
súkkulaðihátíð.“
Fallega lagt á borð
Páskaborðið er sá staður sem
fær alla athyglina á páskunum.
„Páskaborðið er svona létt og
gróft í bland, en borðið okkar er
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Takið eftir löbernum og hve fallega hann kemur út á borðinu.
Blómin setja mikinn svip á heildarútkomuna og gleðja augað.
Smáu hlutirnir setja svip á heimili Soffíu Daggar.
Skemmtilegt hvernig Soffía Dögg býr til kanínu með því að nota páskaegg.
Falleg skreyting. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
Páskakakan er frá 17 sortum. Soffía bætir eggjunum við og raðar allan hringinn að neðan og
páskaeggið má ekki klikka, en það er ávallt frá Nóa á þessu heimili.
þessi líka risastóri f leki 1,20 x 2,20
metrar og ég nýt þess að geta sett
fullt af alls konar skrauti á það.
Fallegi löberinn sem á stendur
Gleðilega páska er frá einu fal
legasta merki landsins, Jónsdóttur
& co, sem hún Ragnhildur vin
kona mín heldur utan um með svo
mikilli alúð.“
Soffía er mikill fagurkeri og
hugsar fyrir hverju smáatriði
þegar lagt er á borð. „Matar disk
arnir eru Broste úr Húsgagna
höllinni, en við fengum þá í
brúðargjöf fyrir 17 árum. Diska
motturnar eru líka úr Höllinni
og eru í miklu uppáhaldi, þær eru
svo geggjaðar, sérstaklega á vorin
og sumrin. Blómadiskarnir voru
að heilla mig í ár og eru nýir frá
Rúmfó, ferlega sætir svona til þess
að koma með vorfílinginn. Hnífa
pörin eru svo frá Myrkstore.is sem
er æðisleg lítil vefverslun. Svo eru
það afskornu blómin sem mér
finnst alltaf ómissandi og ég fer
alltaf til í Samasem á Grensásvegi
en þar er oft til mikið af spenn
andi blómum sem þú sérð ekki
alls staðar.“ n
Ég er
bara
ein af
þessum
ótrúlega
heppnu
mann-
eskjum
sem ná að
sameina
ástríðu og
atvinnu,
eða í mínu
tilfelli að
gera ástríð-
una mína
að atvinn-
unni
minni.
2 kynningarblað A L LT 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR