Fréttablaðið - 14.04.2022, Page 18

Fréttablaðið - 14.04.2022, Page 18
Soffíu grunaði ekki að síðan hennar Skreytum hús ætti eftir að slá svona rækilega í gegn. „Þetta er náttúrulega orðið stærra dæmi en ég átti von á í byrjun. Lítil hug­ mynd sem sneri að því að blogga örlítið er orðin að heimasíðu, stærsta heimilishópi á Facebook með um áttatíu þúsund fylgjend­ um, garðhóp og sumarbústaða­ hóp. Síðan er ég með samnefnda sjónvarpsþætti sem sýndir eru á Vísi og á Stöð 2+. Ég er bara ein af þessum ótrúlega heppnu manneskjum sem ná að sameina ástríðu og atvinnu, eða í mínu tilfelli að gera ástríðuna mína að atvinnu minni. Ég hef ávallt haft ótrúlega gaman af því að gera fallegt í kringum mig, að skapa stemningu og búa til umhverfi sem lætur mér líða vel.“ Engar fastar matarhefðir Matarhefðir kringum páskana er eitthvað sem Soffía hefur ekki verið með. „Við erum víst ekki rík af matarhefðum fjölskyldan. Dóttirin hætti að borða kjöt fyrir nokkrum árum og það breytti ýmsu þegar kemur að því að elda mat. Við reynum bara að finna góða lausnir sem henta okkur öllum. Ég held í raun að ég njóti þess að vera ekki með hefðir um páskana. Við erum svo oft fastheldin þegar kemur að jólum, þannig að ég bara nýt þess að gera páskana eins og okkur hentar best. Það hefur komið fyrir að við séum í bústað og þá er maður að gera eitt­ hvað allt annað en hérna heima. Páskarnir snúast mest um að vera saman, að slappa svolítið af og borða nóg af eggjum.“ Páskaskrautið er vorskraut Soffíu finnst fátt skemmtilegra en að skreyta og þegar tilefni gefst til þess grípur hún tækifærið. „Ég er dugleg að skreyta og páskarnir eru ekki undantekning á því. Ég lít á páskaskrautið sem vorskraut, og þetta er kjörið tækifæri til að skipta út þyngri teppum, gærum og púðum, fyrir eitthvað létt­ ara og vorlegra. Eins finnst mér afskorin blóm og greinar alveg ómissandi á þessum árstíma. Ég hef stundum grafið upp páska­ liljulaukana í garðinum, sett þá í skálar og svo aftur út í garð.“ Soffa fann loks páskaskrautið sem heillaði hana upp úr skónum. „Það hefur í raun ekki verið mikið af páskaskrauti sem ég hef heillast af fyrr en fyrir þremur árum þegar ég sá Lene Bjerre­páskaskrautið sem fæst í Húsgagnahöllinni. Mér finnst það alveg einstaklega fal­ legt og það kemur alltaf eitthvað nýtt á hverju ári og ég hef verið að næla mér í hitt og þetta sem er að heilla.“ Soffía er hrifin af kanínum og má sjá þær víða um heimilið þegar að páskahátíðinni kemur. Páskaföndrið hefur minnkað með árunum. „Á tímabili föndraði ég helling fyrir páskana. Skreytti egg með krökkunum þegar þau voru lítil, gerði svona páskafána­ lengjur úr gömlum bókablað­ síðum og fyrir nokkrum árum föndraði ég glimmeregg sem ég er reyndar enn mjög hrifin af.“ Annars eru það súkkulaðieggin sem heilla fjölskylduna helst. „Við erum öll einlægir aðdáendur Nóa­ eggja og það eru bara engir páskar án þess að fá þau. Ég hef reyndar líka tekið upp á því að skreyta borðið með súkkulaðieggjum og finnst það skemmtilegt á þessari súkkulaðihátíð.“ Fallega lagt á borð Páskaborðið er sá staður sem fær alla athyglina á páskunum. „Páskaborðið er svona létt og gróft í bland, en borðið okkar er Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Takið eftir löbernum og hve fallega hann kemur út á borðinu. Blómin setja mikinn svip á heildarútkomuna og gleðja augað. Smáu hlutirnir setja svip á heimili Soffíu Daggar. Skemmtilegt hvernig Soffía Dögg býr til kanínu með því að nota páskaegg. Falleg skreyting. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Páskakakan er frá 17 sortum. Soffía bætir eggjunum við og raðar allan hringinn að neðan og páskaeggið má ekki klikka, en það er ávallt frá Nóa á þessu heimili. þessi líka risastóri f leki 1,20 x 2,20 metrar og ég nýt þess að geta sett fullt af alls konar skrauti á það. Fallegi löberinn sem á stendur Gleðilega páska er frá einu fal­ legasta merki landsins, Jónsdóttur & co, sem hún Ragnhildur vin­ kona mín heldur utan um með svo mikilli alúð.“ Soffía er mikill fagurkeri og hugsar fyrir hverju smáatriði þegar lagt er á borð. „Matar disk­ arnir eru Broste úr Húsgagna­ höllinni, en við fengum þá í brúðargjöf fyrir 17 árum. Diska­ motturnar eru líka úr Höllinni og eru í miklu uppáhaldi, þær eru svo geggjaðar, sérstaklega á vorin og sumrin. Blómadiskarnir voru að heilla mig í ár og eru nýir frá Rúmfó, ferlega sætir svona til þess að koma með vorfílinginn. Hnífa­ pörin eru svo frá Myrkstore.is sem er æðisleg lítil vefverslun. Svo eru það afskornu blómin sem mér finnst alltaf ómissandi og ég fer alltaf til í Samasem á Grensásvegi en þar er oft til mikið af spenn­ andi blómum sem þú sérð ekki alls staðar.“ n Ég er bara ein af þessum ótrúlega heppnu mann- eskjum sem ná að sameina ástríðu og atvinnu, eða í mínu tilfelli að gera ástríð- una mína að atvinn- unni minni. 2 kynningarblað A L LT 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.