Fréttablaðið - 14.04.2022, Side 31
Skammt frá skálanum er frumstæð
náttúrulaug þar sem hægt er að skola
af sér mesta göngurykið og er þá
vaðið yfir Blautukvísl.
FÓKUS Á HJARTA LANDSINSFIMMTUDAGUR 14. apríl 2022
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
Augu sjást víða í íslenskri náttúru, sérstaklega við
goshveri eins og Geysi og Strokk eða þar sem jarðhiti
hefur brætt göt í jökulís eins og í Kverkfjöllum og á
Bárðarbungu. Ekkert þessara augna slær þó út snotra
lind skammt frá Dómadalsleið að Fjallabaki og kölluð
hefur verið Rauðauga. Nafnið er vel til fundið því í tæru
vatninu sést vel í rauðleitan augnbotninn.
Umhverfi Rauðauga er ekki síður magnað en augað
sjálft. Úr því rennur lindá, Rauðufossakvísl, en rauð
brúnn botninn myndar skemmtilegar andstæður við
ljósgrænan mosagróðurinn og svarta sandana í kring.
Þetta er keðja fossa og fimm kílómetrum neðar er sá
stærsti, sem heitir Rauðufossar og sést þegar ekið er
inn í Landmannalaugar eftir Landmannaleið í gegnum
Dómadal. Af henni liggur jeppavegur, Krakatindsleið,
og eftir stutta keyrslu er við hana lítið bílastæði. Þar
hefja f lestir tæplega klukkustundar göngu að Rauðu
fossum, en síðan má halda áfram göngunni upp hlíðar
vestan megin Rauðufossakvíslar alla leið að Rauðauga.
Önnur skemmtileg gönguleið liggur að sunnanverðu
frá Dalakofa. Er þá gengið með fram reisulegum líparít
stöpum sem heita Rauðufossafjöll og þaðan að Rauð
auga. Þarna býðst öræfakyrrð eins og hún gerist best og
tekur gangan fram og til baka daginn. Þegar komið er að
Rauðauga og Rauðufossakvísl er afar mikilvægt að fylgja
stígum og traðka ekki á viðkvæmum gróðri sem þarna
er. Ganga má með fram ánni niður eftir Rauðufossagili
þar til áin steypist fram af snarbröttu stáli sem áður
nefndir Rauðufossar. Þegar gengið er aftur að Dalakofa
er upplagt að ganga eystri leið til baka, til dæmis upp á
Svartakamb (1.005 m) og niður eftir hryggjunum ofan í
VesturReykjadal. Þarna er ógrynni fallegra gufuhvera
og í botni sundurskorinna líparítgilja renna lækir og ár.
Efst á Svartakambi sést vel til Pokahryggs og Hrafn
tinnuskers en einnig að Laufafelli og Löðmundi. Til
valið er að gista í upphituðum skála Útivistar, Dala
kofa, eða slá þar upp tjaldi. Skammt frá skálanum, er
frumstæð náttúrulaug þar sem hægt er að skola af sér
mesta göngurykið og er þá vaðið yfir Blautu kvísl. Dala
kofa má nýta í f leiri göngur, t.d. á Laufafell eða að Lauf
ahrauni en einnig er stutt í Rauðufossafjöll. Ef ekið er til
baka frá Dalakofa inn á Dómadalsleið blasa við kirkju
laga Kraka tindar en af þeim er sérlega fallegt útsýni til
Heklu. n
Fossar úr
glóðarauga
Úr augnbotni
Rauðauga
streymir
kristaltært
lindarvatn sem
Rauðufossa
kvísl en hún
hefur sérstakan
rauðan árbotn
auk fjölda
fallegra fossa.
MYND/TG
Rauðauga minn
ir á glóðarauga
– augnbotninn
er rauður og
miðjan minnir
á augastein.
MYND/ÓLAFUR ÖRN
HARALDSSON
Umhverfi
Rauðauga og
Rauðufossa
kvíslar er
stórkostlegt en
gróðurinn afar
viðkvæmur.
Þess vegna er
mikilvægt að
fylgja stígum og
sumir taka jafn
vel af sér göngu
skóna til að
hlífa gróðrinum.
MYND/TG