Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.04.2022, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 14.04.2022, Qupperneq 31
Skammt frá skálanum er frumstæð náttúrulaug þar sem hægt er að skola af sér mesta göngurykið og er þá vaðið yfir Blautukvísl. FÓKUS Á HJARTA LANDSINSFIMMTUDAGUR 14. apríl 2022 Ólafur Már Björnsson augnlæknir og ljósmyndari Tómas Guðbjartsson hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi Augu sjást víða í íslenskri náttúru, sérstaklega við goshveri eins og Geysi og Strokk eða þar sem jarðhiti hefur brætt göt í jökulís eins og í Kverkfjöllum og á Bárðarbungu. Ekkert þessara augna slær þó út snotra lind skammt frá Dómadalsleið að Fjallabaki og kölluð hefur verið Rauðauga. Nafnið er vel til fundið því í tæru vatninu sést vel í rauðleitan augnbotninn. Umhverfi Rauðauga er ekki síður magnað en augað sjálft. Úr því rennur lindá, Rauðufossakvísl, en rauð­ brúnn botninn myndar skemmtilegar andstæður við ljósgrænan mosagróðurinn og svarta sandana í kring. Þetta er keðja fossa og fimm kílómetrum neðar er sá stærsti, sem heitir Rauðufossar og sést þegar ekið er inn í Landmannalaugar eftir Landmannaleið í gegnum Dómadal. Af henni liggur jeppavegur, Krakatindsleið, og eftir stutta keyrslu er við hana lítið bílastæði. Þar hefja f lestir tæplega klukkustundar göngu að Rauðu­ fossum, en síðan má halda áfram göngunni upp hlíðar vestan megin Rauðufossakvíslar alla leið að Rauðauga. Önnur skemmtileg gönguleið liggur að sunnanverðu frá Dalakofa. Er þá gengið með fram reisulegum líparít­ stöpum sem heita Rauðufossafjöll og þaðan að Rauð­ auga. Þarna býðst öræfakyrrð eins og hún gerist best og tekur gangan fram og til baka daginn. Þegar komið er að Rauðauga og Rauðufossakvísl er afar mikilvægt að fylgja stígum og traðka ekki á viðkvæmum gróðri sem þarna er. Ganga má með fram ánni niður eftir Rauðufossagili þar til áin steypist fram af snarbröttu stáli sem áður­ nefndir Rauðufossar. Þegar gengið er aftur að Dalakofa er upplagt að ganga eystri leið til baka, til dæmis upp á Svartakamb (1.005 m) og niður eftir hryggjunum ofan í Vestur­Reykjadal. Þarna er ógrynni fallegra gufuhvera og í botni sundurskorinna líparítgilja renna lækir og ár. Efst á Svartakambi sést vel til Pokahryggs og Hrafn­ tinnuskers en einnig að Laufafelli og Löðmundi. Til­ valið er að gista í upphituðum skála Útivistar, Dala­ kofa, eða slá þar upp tjaldi. Skammt frá skálanum, er frumstæð náttúrulaug þar sem hægt er að skola af sér mesta göngurykið og er þá vaðið yfir Blautu kvísl. Dala­ kofa má nýta í f leiri göngur, t.d. á Laufafell eða að Lauf­ ahrauni en einnig er stutt í Rauðufossafjöll. Ef ekið er til baka frá Dalakofa inn á Dómadalsleið blasa við kirkju­ laga Kraka tindar en af þeim er sérlega fallegt útsýni til Heklu. n Fossar úr glóðarauga Úr augnbotni Rauðauga streymir kristaltært lindarvatn sem Rauðufossa­ kvísl en hún hefur sérstakan rauðan árbotn auk fjölda fallegra fossa. MYND/TG Rauðauga minn­ ir á glóðarauga – augnbotninn er rauður og miðjan minnir á augastein. MYND/ÓLAFUR ÖRN HARALDSSON Umhverfi Rauðauga og Rauðufossa­ kvíslar er stórkostlegt en gróðurinn afar viðkvæmur. Þess vegna er mikilvægt að fylgja stígum og sumir taka jafn­ vel af sér göngu­ skóna til að hlífa gróðrinum. MYND/TG

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.