Fréttablaðið - 14.04.2022, Síða 34
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | www.fi.is
Sjáumst á fjöllum
Systkinin Ösp, Björk og
Örn Eldjárn mynda saman
þjóðlagatríóið Blood Harm-
ony. Þau eru börn meðlima
Tjarnarkvartettsins og eiga
því ekki langt að sækja þjóð-
lagahefðina.
ninarichter@frettabladid.is
Ösp Eldjárn er ritlistarnemi og
tónlistarkona og eitt þriggja
systkina sem mynda þrí-
eykið Blood Harmony.
Sveitin f lýgur til
Kaupmannahafnar
á annan í páskum
í fyrsta legg ferðar
til Gautaborgar
þar sem þjóðlaga-
tónlistar-bransa-
hátíðin Nordic
Folk Alliance fer
fram.
„Þetta er eins konar
þjóðlaga-bransahátíð,“
útskýrir Ösp þegar blaða-
maður nær tali af henni. Hún segir
að hátíðin sé frábær vettvangur til
þess að komast inn á skandinavíska
markaðinn og ná norrænum eyrum
hlustenda. Draumurinn sé að geta
f lutt tónlistina fyrir framan nýja
áheyrendur. Bransinn sé þó algjör
frumskógur og erfitt að vita við
hvern sé best að tala.
Þjóðlagahugtakið erfitt á Íslandi
Blood Harmony samanstendur af
Ösp, Erni Eldjárn og Björk Eldjárn.
Auk þeirra fer söngvaskáldið Svavar
Knútur á hátíðina fyrir Íslands hönd
og þjóðlagasveitin Umbra. „Þetta er
skemmtilega fjölbreyttur hópur,“
segir Ösp.
Hún segir þjóðlagahugtakið erfitt
á Íslandi. „Á ensku erum við með
folk-hugtakið og svo traditional-
tónlist, sem er meira í ætt við
þjóðlagaarfinn.“ Að mati
Aspar eru Íslendingar
mest í söngarfinum.
„Það er þetta elem-
ent að segja sögur,“
útskýrir hún.
„Ég bjó lengi úti
á Englandi þannig
að ég kem inn með
þessi keltnesku
áhr if og ensk u
þjóðlagasenuna. Við
syngjum bæði á ensku
og íslensku. Maður er aldr-
ei að semja með einhver áhrif í
huga en síðan verður maður fyrir
áhrifum. Það bara gerist.“
Alin upp við raddaðan söng
Ösp, Örn og Björk eru alin upp á
miklu söngheimili, en þau eru börn
Kristjáns og Kristjönu úr Tjarnar-
kvartettinum frá Tjörn í Svarfaðar-
dal. „Foreldrar okkar voru í acapella-
kvartett, þannig að við höfum alltaf
verið mikið í kringum raddaðan
söng, á æfingum og ferðalögum með
pabba og mömmu – og á tónleikum,“
segir Ösp. „Örn hefur unnið með
mömmu lengi, sem er líka þjóðlaga-
söngkona. Hann hefur verið að spila
og útsetja þessa þjóðlagatónlist og
þar kemur inn okkar sameiginlegi
arfur, þessi margraddaða alþýðu-
tónlist.“
Björk hefur ekki verið að vinna í
tónlist að sama marki og Ösp og Örn,
en að sögn stóru systur kemur það
ekki að sök. „Hún kemur inn í þetta,
þekkir öll þessi lög og það var eins
og hún hefði aldrei gert annað en að
radda,“ segir Ösp og hlær. „Þetta er
eitthvað svona óbeint tónlistarnám.
Þar kemur einhver samhljómur inn
sem er alveg fullkominn!“
Tala saman í hálfum setningum
Ösp og Örn hafa alltaf unnið saman
í tónlistinni. „Það lá beint við að við
færum að gera eitthvað saman sem
band. Við skiljum hvort annað svo
vel og erum nánast með sér tungu-
mál,“ segir hún. „Við tölum í hálfum
setningum og handapati. Svo þegar
maður er á sviði þá finnur maður að
við lesum alveg í hvort annað, þegar
ég er að fara í eitthvert rugl þá finnur
Örn það, það þarf ekkert að segja
mikið,“ segir Ösp og hlær.
„Að vera systkini gerir allt miklu
auðveldara og skemmtilegra, þannig
verður þessi þétti samhljómur. Það
er svo ótrúlega gaman að geta átt
þetta sameiginlega áhugamál með
systkinum sínum og tónleikaferða-
lögin eru mjög skemmtileg,“ segir
hún.
„Þjóðlagatónlist er einlæg tón-
list. Hún er mjög berskjölduð og oft
hrá. Hvort sem það er í samhljómi
eða bara einn söngvari, þá er ekk-
ert glimmer-dót í því. Eftir þennan
Covid-tíma, þegar allir eru búnir að
vera að horfast í augu við sjálfa sig og
eiga tíma með sjálfum sér og fólkinu
sínu, því sem skiptir máli, held ég að
þjóðlagatónlist sé mjög góður mið-
ill,“ segir Ösp. n
Söngelsk börn söngvara frá Tjörn
Systkinin frá
Tjörn í Svarf-
aðardal hafa
sungið saman
síðan þau muna
eftir sér.
MYND/AÐSEND
Að vera systkini gerir
allt miklu auðveldara
og skemmtilegra,
þannig verður þessi
þétti samhljómur.
Ösp Eldjárn, tónlistarkona
n Spurningin
Halldór Laxness Halldórsson
leikskáld
Nei, ég held ekki. Það voru einu
sinni skilin eftir svo mörg páskaegg
heima hjá mér og þau voru étin yfir
langt tímabil og það leið öllum illa
eftir á.
Sunna Ben
DJ og ljósmyndari
Mig langar svolítið að fá mér Tuli-
pop-páskaegg af því að mig langar
svo í Tulipop-styttuna. En mig
langar ekkert að borða súkkulaðið.
Það er alveg til dökkt sko, en það
getur verið að ég láti mig hafa það.
Fæst páskaegg eru vegan. En ég
hugsa að ég fái mér Pipp myntu-
pralín.
Einu vandræðin eru að maður er
oft frekar lengi að borða páskaegg
en maður er mjög fljótur með svona
stykki.
Sindri Geir Óskarsson
sóknarprestur
Já. Ég er búinn með tvö og það verð-
ur allavega tekið eitt í viðbót. Það er
Djúpu-eggið. n
Ætlarðu að fá þér páskaegg?
Ösp Eldjárn
26 Lífið 14. apríl 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 14. apríl 2022 FIMMTUDAGUR