Ægir - 2021, Blaðsíða 32
32
Sjávarplássið Dalvík
Bókarhöfundur, Jóhann Antonsson, við Dalvíkurhöfn. Hann segir mannauðinn vera hryggjastykkið í þróuninni í sjávarút-
vegi á Dalvík.
Fréttir
Út er komin bókin Sjávarplássið
Dalvík eftir Jóhann Antonsson. Þar er
í máli og myndum rakin saga útgerðar
og fiskvinnslu sem hófst með útgerð
bænda í Svarfaðardal og fylgdi síðan
þéttbýlismyndun á Böggvistaðasandi,
síðar Dalvík. Á Dalvík er rík og
rótgróin sjávarútvegshefð og
þjónustustarfsemi tengd atvinnu-
greininni. Þar hafa löngum starfað
dugmiklir frumkvöðlar sem styrkja
byggðina og atvinnulífið með
framsýni, áræðni og sérhæfðri,
sjávartengdri starfsemi af ýmsu tagi.
Allt þetta er rakið í bókinni, kryddað
óborganlegum mannlífssögum og
prýtt sögulegum ljósmyndum sem
margar hverjar hafa aldrei birst fyrr
á opinberum vettvangi.
Höfundurinn, Jóhann Antonsson, er
Dalvíkingur og viðskiptafræðingur með
fjölþætta reynslu af sjávarútvegi. Hann
var stjórnandi í fyrirtækjarekstri, sinnti
frumkvöðlastarfsemi og var ráðgjafi
stjórnvalda og fyrirtækja um árabil.
Hann hefur skrifað fjölda blaðagreina og
frétta um sjávarútveg og sjávarútvegs-
fyrirtæki í Dalvíkurbyggð og gjörþekkir
því viðfangsefni sitt.
Jóhann segir meðal annars í formála
bókarinnar:
„Þegar ég nú lít um öxl og virði fyrir
mér atburðarásina teiknar sig upp mynd
af því hvernig hvert tímabilið tekur við
af öðru. Íbúar og fyrirtæki bregðast
sífellt við nýjum aðstæðum og byggja á
reynslu og þekkingu sem safnast hefur í
áranna rás. Mikill mannauður er hryggj-
arstykkið í þróuninni, hvort heldur talað
er um fólkið í fiskvinnslunni eða karlinn
í brúnni.“
Sjávarplássið Dalvík er gefin út
Svarfdælasýsl forlagi sf. og er hún 272
blaðsíður að stærð.
Síldinni landað á Dalvík. Staðurinn var þriðja stærsta verstöð síldaráranna.