Ægir - 2021, Blaðsíða 26
26
endilega þannig. Það er ekki svo að þó
hlýni um tvær gráður að þá aukist nýlið-
un í öllum fiskitegundum. Við vitum að
okkar helstu nytjastofnar eru á norður-
mörkum síns útbreiðslusvæðis, um það
eru ýsan og skötuselurinn gott dæmi.
Þegar hlýnar færa þessar tegundir sig
norðar og fá þá meiri veiðilendur. Skötu-
selurinn blossaði upp fyrstu árin en svo
er ekkert nýtt að koma inn. Sama á við
um blálönguna, lönguna og keiluna. Það
eru stofnar sem eru á hraðri niðurleið
því það er lítil sem engin framleiðsla í
þeim.“
Til mikils ætlast fyrir lítið
fjármagn
Þorsteinn segir að til mjög margs sé ætl-
ast af Hafrannsóknastofnun fyrir svo
litla fjármuni að óhjákvæmilegt sé að
forgangsraða. Það geri starfið svolítið
leiðinlegt á köflum fyrir sérfræðingana
þegar þeir eru stoppaðir af með sínar
fínu hugmyndir af því þær kosta of mik-
ið. Það sé ekki til sá vísindamaður sem
segi að það sé fyrir hendi hæfilegt eða
nægilegt fjármagn. Sú aðhaldskrafa sem
stofnuninni hafi verið gert að starfa eft-
ir í langan tíma hafi mikil áhrif, sérstak-
lega þegar verið sé að verja vöktun á
umhverfinu og nytjastofnum, eins og
haust- og vetrarrall. Óvissan sé næg þó
ekki sé farið að draga enn frekar út
þeirri vitneskju sem hægt sé að nálgast
með góðri upplýsingasöfnun.
„Þetta er ákveðin jafnvægislist. Til
eru vísindamenn sem segja að réttast
væri að hætta þessari vöktun og gera
aðeins alvöru rannsóknir. Hlutverk
stofnunarinnar er stórt í ráðgjöf til
stjórnvalda um nýtingu fiskistofnanna.
Nýting snýst þó ekki bara um hversu
mörg tonn er hægt að taka af tiltekinni
Rafveiði. Þarna eru starfsmenn ferskvatnssviðs að rannsaka lífríki í Elliðaám.
Ljósmynd Svalhildur Egilsdóttir.
Loðna kvörnuð. Með því að telja árhringi í kvörnunum fæst aldur loðnunnar.
Ljósmynd Svalhildur Egilsdóttir.
Nýtt rannsóknaskip
„Við eru að vinna í smíði nýs
rannsóknaskips. Það er ekkert
smáverkefni og er í útboðsferli
þessa dagana. Tilboðin verða
opnuð í byrjun október og er
mikil spenna að sjá hvað út úr
því kemur, en við vonumst til
að þær fjórar skipasmíðastöðv-
ar sem stóðust forval muni
bjóða í verkefnið. Það er líka
mikil tilhlökkun að fá nýtt
rannsóknaskip, sem leysir
Bjarna Sæmundsson af hólmi.
Hann er búinn að vera í okkar
þjónustu frá 1970. Hann er enn
mjög gott skip, sem margir
munu sakna, en eins og allt stál
þá tærist það með tímanum.
Skipið stenst því ekki kröfur
nútímans, þó það sé gott.“
Þorskur, hinn dýrmæti nytjafiskur. Ljósmynd Svalhildur Egilsdóttir.