Fréttablaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 27
Ég tek eitt hylki á
morgnana með
vítamínunum og lýsinu.
Einfaldara verður það
ekki. Ég finn að þetta
hefur áhrif á húðina,
hárið og neglurnar og
það kemur ekki til
greina að hætta að taka
þetta inn.
Karólína Natalía
Prófessor
Kenny
segir að
þegar fólk
segir sjálfu
sér að það
sé of seint
að byrja sé
einmitt
rétti tím-
inn til að
hefjast
handa.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr
@frettabladid.is
Karólína Natalía Karlsdóttir
hefur alla ævi glímt við þurra
húð, þunnt og líflaust hár og
lélegar neglur. Hún byrjaði að
taka inn bætiefnið Húð, hár
og neglur frá ICEHERBS og
finnur gríðarlegan mun.
„Þetta hefur alltaf fylgt mér. Ég hef
alltaf verið með mjög þunnt og
fíngert hár sem var lítið líf í. Það lá
frekar flatt og var sleipt viðkomu.
Ég fann það líka sérstaklega eftir
að ég fór að eldast og hárlosið varð
enn meira en áður,“ segir Karólína,
sem er 41 árs og starfar við sölu- og
markaðsmál hjá Sólar ræstingu.
Karólína fór meðal annars í sér-
staka hármeðferð sem hafði ekki
þau áhrif sem hún vonaðist eftir.
„Neglurnar voru að sama skapi
alltaf lélegar. Þær tættust upp og ég
þurfti alltaf að passa að hafa þær
stuttklipptar og setja á þær nagla-
lakk til að styrkja þær. Svo var ég
líka alltaf þurr í framan. Maður
finnur það sérstaklega þegar
maður er að meika sig eða púðra,
þá kemur gróf áferð og þurrka-
blettirnir verða meira áberandi. Ég
hafði prófað alls konar rakakrem
en ekkert var nógu öflugt,“ segir
Karólína.
Það var ekki fyrr en Karólína
byrjaði að taka inn Húð, hár og
neglur bætiefnið frá ICEHERBS,
sem hún fór að finna almenni-
legan mun á húðinni, sem og hári
og nöglum. „Ég sá þetta bara á
sölustandi í búðinni og greip með
mér. Þetta var eitthvað nýtt sem ég
hafði ekki séð áður og ég ákvað að
prófa,“ segir Karólína um Húð, hár
og neglur frá ICEHERBS.
Fann mun áður en glasið
kláraðist
„Það tók smá tíma fyrir mig að
finna mun en ég man að þegar ég
var búin með eitt glas af þessu þá
hafði ég fundið nægan mun til að
kaupa annað glas og halda áfram.
Það er nú komið tæpt ár síðan ég
keypti fyrsta pilluglasið og ég finn
mjög mikinn mun á húðinni, en
líka nöglum og hári. Ég er ekki þurr
í framan í dag og fæ ekki lengur
þurrkabletti. Ég nota sömu snyrti-
vörur og áður og þær gefa mér
núna jafna áferð á húðina.
Neglurnar eru líka mun sterkari
en áður og þær tætast ekki lengur
upp. Svo er hárið mun þykkara og
líflegra. Ég finn að ég fer minna úr
hárum og hárgreiðslukonan mín
segir mikinn mun á mér. Ég er að fá
fullt af nýjum hárum, sérstaklega
að framan. Ég finn það líka sjálf að
hárið er heilbrigðara.“
Bætiefnið kemur í hylkjaformi
og er einstaklega þægilegt inntöku.
„Ég tek eitt hylki á morgnana með
vítamínunum og lýsinu. Ein-
faldara verður það ekki. Ég finn að
þetta hefur áhrif á húðina, hárið
og neglurnar og það kemur ekki til
greina að hætta að taka þetta inn,“
segir Karólína.
Náttúruleg blanda úr
íslenskum þörungum
Húð, hár og neglur er öflug og nátt-
úruleg þarablanda úr íslenskum
sæþörungum. Hylkin eru stútfull
af steinefnum og vítamínum sem
hafa ríkuleg áhrif á húð, hár og
neglur. Sæþörungar eru þekkir sem
ofurfæða hafsins. Þörungar eru
þekktir fyrir virk áhrif sín á húð,
hár og neglur. Þeir hafa gríðarlega
hreinsandi áhrif á líkamann og
innihalda ríkulegt magn steinefna
og trefja ásamt joði.
Húð, hár & neglur frá ICEHERBS
fæst í öllum apótekum og heilsu-
vöruverslunum, Hagkaupum,
Nettó og Fjarðarkaupum. Sjá
nánar á iceherbs.is.
Líflegra hár, sterkari neglur og mýkri húð
Karólína sér ekki eftir að hafa prófað húð, hár og neglur, bætiefnið frá ICEHERBS. Hárið er nú þykkara, húðin mýkri og
neglurnar mun sterkari. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Það er alveg sama hvernig
fólk hefur farið með sig í
gegnum ævina og hvernig
lífsstíllinn er, það er aldrei
of seint að gera jákvæðar
breytingar til að bæta heils-
una og auka bæði lífsgæði og
lífslíkur.
Sífellt fleiri rannsóknir benda til
þess að heilsunni þurfi ekki endi-
lega að hraka með aldri. Í nýlegri
grein sem birtist á vef The Tele-
graph var fjallað um þessar rann-
sóknir og prófessor í öldrunarfræði
gaf góð ráð varðandi lífsstílsbreyt-
ingar sem henta fólki yfir sextugu.
Í fyrra kom út rannsókn sem var
unnin við Johns Hopkins-háskóla
í Bandaríkjunum þar sem fylgst
var með yfir sex þúsund manns
á aldrinum 44-84 ára í meira en
sjö ár. Fólkið sem gerði jákvæðar
lífsstílsbreytingar, eins og að bæta
mataræði, hætta reykingum og
byrja að hreyfa sig, jók lífslíkur
sínar um 80 prósent.
Háskólinn í Bergen gaf líka út
stóra rannsókn nýlega þar sem
kom fram að með því að tileinka
sér hollt mataræði við sextugt sé
hægt að lengja lífið um næstum
áratug. Jafnvel þó að breytingin sé
ekki gerð fyrr en við 80 ára aldur
er hægt að bæta þremur árum við
lífslíkur sínar, segja rannsakendur.
Líkaminn getur breyst alla ævi
Rose Ann Kenny, sem er prófessor í
öldrunarfræði við Trinity-háskóla í
Dublin, segir að það sé hægt að gera
ýmislegt til að halda líkamanum
yngri en aldurinn segir til um.
Hún segir að fólk á fimmtugs- og
Aldrei of seint að bæta lífsstílinn
Það er aldrei of seint að gera jákvæðar breytingar á lífsstílnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
sextugsaldri ætti að einbeita sér
að því að byggja upp góð vina-
bönd, því það verði minna um að
fólk kynnist nýju fólki þegar það
eldist og að fólk eigi að hreyfa sig
meira á hverju ári eftir sextugt.
Hún ráðleggur fólki líka að passa
upp á hitaeiningarnar sem það
innbyrðir. Hún segir að þegar fólk
segir sjálfu sér að það sé of seint til
að byrja sé einmitt rétti tíminn til
að hefjast handa og líkaminn geti
breyst og endurnýjast allt fram á
tíræðisaldur.
Lífsstílsbreytingar fyrir sextuga
Prófessor Kenny er með sjö uppá-
stungur að lífsstílsbreytingum sem
er hægt að gera eftir sextugt sem
stuðla að lengra og betra lífi.
Í fyrsta lagi ráðleggur hún fólki
að tileinka sér hið svokallað Mið-
jarðarhafsmataræði. Hún segir að
ein besta leiðin til að lengja lífið sé
að borða lítið eða ekkert rautt kjöt,
sleppa mettaðri fitu og sykri og
borða mikið af heilkorni, ávöxtum,
grænmeti, sjávarfangi, baunum,
hnetum og ólífuolíu.
Hún segir að það hafi margoft
komið í ljós að unnið kjöt eins og
pylsur og beikon flýti fyrir öldrun.
Rannsóknir frá Kína benda til
að slíkur matur sé leiðandi orsök
ýmissa banvænna sjúkdóma og
geti minnkað lífslíkur og truflað
svefn. Aftur á móti getur feitur
fiskur verið mjög hollur.
Hún mælir líka með því að fólk
borði ekki mikið og bendir á rann-
sóknir sem gefa til kynna að hollt
og hóflegt mataræði geti læknað
sykursýki 2. Hún segir líka að það
geti verið hollt að borða allar mál-
tíðir dagsins í átta klukkustunda
glugga yfir daginn því það lækki
blóðsykur og minnki bólgur.
Kenny bendir líka á að það sé
mikilvægt að fóðra góða maga-
flóru og að fólk geti breytt henni til
hins betra á aðeins örfáum dögum,
óháð aldri. Hún bendir fólki á að
reyna að borða litríkan mat og
nefnir sérstaklega hindber, vínber
og gerjaðan mat eins og kimchi.
Kenny hvetur fólk til að tak-
marka áfengisneyslu en vill samt
ekki meina að fólk þurfi að gerast
bindindismenn. Hún bendir á að
til séu rannsóknir sem sýna gagn-
semi þess að drekka eitt eða tvö
rauðvínsglös á dag með einhverj-
um sem manni þykir vænt um.
Kenny segir að það að byrja
að stunda líkamsrækt á miðjum
aldri geti aukið lífslíkur jafn mikið
eins og að byrja ung, en bendir á
að mótstöðuþjálfun sé ekki síður
mikilvæg en þolþjálfun og þjóni
mikilvægi hlutverki við að halda
beinum og vöðvum sterkum.
Með aldrinum breytist svefn-
mynstur og fólk sefur minna, svo
margir vilja leggja sig á daginn,
sem Kenny segir að sé í góðu lagi.
En hún ráðleggur fólki að sofa
ekki í meira en 20 mínútur og að
leggja sig ekki eftir klukkan þrjú á
daginn, því annars truflist svefn-
mynstrið, sem dregur úr orku
og lætur fólki líða eins og það sé
eldra. ■
ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2022