Fréttablaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 04.05.2022, Blaðsíða 21
Fyrir meira en hundrað árum síðan heimsótti bresk- ur ævintýramaður Ísland á mótorhjóli en þá voru aðeins tveir bílar í landinu. njall@frettabladid.is Árið er 1913 og ungur bókari frá Uxbridge í London er um það bil að fara um borð í skip á leiðinni til Íslands. Það sem er sérstakt við þetta ferðalag hans er að með í för er Rover-mótorhjólið hans sem hann hyggst nota til ferðalags um eyjuna. Stefnan var sett á að sjá hvort hægt væri að þvera hana og kanna vegi fyrir aðra sem gætu haft áhuga á að gera slíkt hið sama, enda skrifaði L. W. Spencer fyrir tímarit sem kallaðist Motorcycl- ing. Hann hafði unnið það sér til nokkurrar frægðar á Englandi að verða fyrstur á mótorhjóli upp á nokkra fjallstoppa eins og Snow- den, ásamt því að keppa á Morgan þríhjóla kappakstursbílum. Það var fyrir tilviljun að undirrit- aður frétti af greininni um þessa för við lestur gamalla dagblaða á tima- rit.is. Í Vísi þann 2. september 1955 er fjallað um að 1913 hafi Englend- ingur ætlað yfir Ísland á bifhjóli og er sagt frá því með skemmtilegum hætti hvernig eintak af blaðinu komst hingað til lands. Sem betur fer fyrir undirritaðan var tilgreint í hvaða tölublaði greinin birtist og hófst því leitin um víðfeðmar lendur veraldarvefsins. Leitin tók tvö ár og tókst að lokum að hafa uppi á henni og birtist ferðasagan í fjórum tölublöðum, alls rúmar 20 síður með fjölda mynda. Spencer lýsir þar för sinni á Þingvelli, ferð austur fyrir fjall yfir Hellisheiði og upp að rótum Heklu, ásamt fleiri ferðum að Reykjafossi og Kefla- vík, alls um 500 enskar mílur. Við drepum hér niður í frásögn hans af því þegar hann kemur til Þingvalla í fyrsta skiptið. „Þegar ég kom aftur að Geit- hálsi, beygði ég skarpt til hægri á veginn til Þingvalla, sem lá yfir breiða hásléttu sem náði á tíma- bili 1.110 feta hæð. Bráðum fór vegurinn að lækka aftur þar til að Þingvallavatn, drottning íslenskra vatna, kom í ljós. Það var mjög fallegt í sólskini síðdegisins og blár himinninn endurspeglaðist í glitrandi yfirborðinu. Langt fyrir aftan mátti sjá snævi þakta fjalls- toppa og fjarlæga jökla og meðal þeirra hið fræga fjall Heklu. Undur landslagsins létu mig gleyma mér um stund en skyndilega leit út fyrir að vegurinn lægi fram af djúpri gjá en sem betur fer beygði hann til vinstri niður skarð sem kallast Almannagjá. Þetta var inngangurinn til Þingvalla. Við enda skarðsins gat ég séð láglendið breiða úr sér.“ Spencer lýsir á skemmtilegan hátt hvernig barningur það var að ferðast um landið á misgóðum reiðvegum þess tíma, en það er í of löngu máli til að gera því skil hér. Þess í stað verður ferðasagan birt í nokkrum köflum á heimasíðu sem undirritaður heldur úti um gömul mótorhjól á Íslandi á slóðinni forn- hjol.is. Spencer mun hafa heimsótt fleiri lönd á mótorhjóli eins og Noreg og mun hann hafa skrifað bók um þá ferðasögu, en leit að henni hefur ekki borið árangur ennþá. Spencer bauð sig fram til þjónustu í mótordeild breska hersins í fyrri heimsstyrjöldinni. Þar lét hann lífið í sendiferð, líklega á mótorhjóli sínu, þegar leyniskytta hæfði hann í höfuðið í október 1914. ■ Fór á mótorhjóli um Ísland árið 1913 Þótt myndin sé óskýr sést vel að hér er á ferðinni Rover-mótor- hjól frá 1913. Kunnugir þekkja eflaust Ingólfs- fjall og áin er því líklegast Varmá. Forsíðu greinarinnar prýðir þessi mynd af hjóli L. W. Spencer í miðri Almannagjá eða Allmen’s Chasm. Bókin um land miðnætursólarinnar er um ferð hans til Noregs árið áður. njall@frettabladid.is Rover-mótorhjólið þótti vel heppn- að enda var það með 3,5 hestafla mótor í miðri, demantslaga grind og að framan var tvískiptur gaffall með gormum að framan. Fyrsta Rover- hjólið var með úðablöndungi og vélknúnum ventlum og seldust yfir 1.000 Rover-mótorhjól árið 1904. Ári seinna hætti þó Rover fram- leiðslu mótorhjóla í nokkur ár til að einbeita sér að framleiðslu reiðhjóla, enda varð sölufall á mótorhjólum um þetta leyti vegna tilrauna ann- arra framleiðenda sem þóttu ekkert sérlega vel heppnaðar. Árið 1910 var svo mótorhjólaframleiðslan sett aftur í gang og John Greenwood sem seinna hannaði fyrir Sunbeam, fenginn til að koma með endur- bætta útgáfu 3,5 hestafla hjólsins með Bosch-kveikju og Brown & Barlow-blöndungi. Hjólið kom með Druid-framgaffli og var kynnt á Olympia-sýningunni árið 1910 og seldust 500 eintök af því hjóli 1910- 11. Það var á slíku hjóli sem L. W. Spencer kom til Íslands árið 1913. ■ Fullkominn gripur á sínum tíma Hjól Spencer er 1913 árgerð en þá kom það með innfelldum olíutanki. Lykill fjármögnun flytur á Höfðatorg Lykill hefur flutt skrifstofur sínar á Höfðatorg. Við tökum vel á móti þér á nýjum stað og minnum á að þú getur fundið alla okkar þjónustu á lykill.is BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2022

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.