Fréttablaðið - 04.05.2022, Side 21
Fyrir meira en hundrað
árum síðan heimsótti bresk-
ur ævintýramaður Ísland á
mótorhjóli en þá voru aðeins
tveir bílar í landinu.
njall@frettabladid.is
Árið er 1913 og ungur bókari frá
Uxbridge í London er um það bil
að fara um borð í skip á leiðinni
til Íslands. Það sem er sérstakt við
þetta ferðalag hans er að með í för
er Rover-mótorhjólið hans sem
hann hyggst nota til ferðalags um
eyjuna. Stefnan var sett á að sjá
hvort hægt væri að þvera hana og
kanna vegi fyrir aðra sem gætu
haft áhuga á að gera slíkt hið sama,
enda skrifaði L. W. Spencer fyrir
tímarit sem kallaðist Motorcycl-
ing. Hann hafði unnið það sér til
nokkurrar frægðar á Englandi að
verða fyrstur á mótorhjóli upp á
nokkra fjallstoppa eins og Snow-
den, ásamt því að keppa á Morgan
þríhjóla kappakstursbílum.
Það var fyrir tilviljun að undirrit-
aður frétti af greininni um þessa för
við lestur gamalla dagblaða á tima-
rit.is. Í Vísi þann 2. september 1955
er fjallað um að 1913 hafi Englend-
ingur ætlað yfir Ísland á bifhjóli og
er sagt frá því með skemmtilegum
hætti hvernig eintak af blaðinu
komst hingað til lands. Sem betur
fer fyrir undirritaðan var tilgreint
í hvaða tölublaði greinin birtist
og hófst því leitin um víðfeðmar
lendur veraldarvefsins. Leitin tók
tvö ár og tókst að lokum að hafa
uppi á henni og birtist ferðasagan í
fjórum tölublöðum, alls rúmar 20
síður með fjölda mynda. Spencer
lýsir þar för sinni á Þingvelli, ferð
austur fyrir fjall yfir Hellisheiði og
upp að rótum Heklu, ásamt fleiri
ferðum að Reykjafossi og Kefla-
vík, alls um 500 enskar mílur. Við
drepum hér niður í frásögn hans af
því þegar hann kemur til Þingvalla í
fyrsta skiptið.
„Þegar ég kom aftur að Geit-
hálsi, beygði ég skarpt til hægri
á veginn til Þingvalla, sem lá yfir
breiða hásléttu sem náði á tíma-
bili 1.110 feta hæð. Bráðum fór
vegurinn að lækka aftur þar til að
Þingvallavatn, drottning íslenskra
vatna, kom í ljós. Það var mjög
fallegt í sólskini síðdegisins og
blár himinninn endurspeglaðist í
glitrandi yfirborðinu. Langt fyrir
aftan mátti sjá snævi þakta fjalls-
toppa og fjarlæga jökla og meðal
þeirra hið fræga fjall Heklu. Undur
landslagsins létu mig gleyma
mér um stund en skyndilega leit
út fyrir að vegurinn lægi fram af
djúpri gjá en sem betur fer beygði
hann til vinstri niður skarð sem
kallast Almannagjá. Þetta var
inngangurinn til Þingvalla. Við
enda skarðsins gat ég séð láglendið
breiða úr sér.“
Spencer lýsir á skemmtilegan
hátt hvernig barningur það var
að ferðast um landið á misgóðum
reiðvegum þess tíma, en það er í of
löngu máli til að gera því skil hér.
Þess í stað verður ferðasagan birt í
nokkrum köflum á heimasíðu sem
undirritaður heldur úti um gömul
mótorhjól á Íslandi á slóðinni forn-
hjol.is. Spencer mun hafa heimsótt
fleiri lönd á mótorhjóli eins og
Noreg og mun hann hafa skrifað
bók um þá ferðasögu, en leit að
henni hefur ekki borið árangur
ennþá. Spencer bauð sig fram
til þjónustu í mótordeild breska
hersins í fyrri heimsstyrjöldinni.
Þar lét hann lífið í sendiferð, líklega
á mótorhjóli sínu, þegar leyniskytta
hæfði hann í höfuðið í október
1914. ■
Fór á mótorhjóli um Ísland árið 1913
Þótt myndin sé
óskýr sést vel að
hér er á ferðinni
Rover-mótor-
hjól frá 1913.
Kunnugir þekkja
eflaust Ingólfs-
fjall og áin er því
líklegast Varmá.
Forsíðu greinarinnar prýðir þessi
mynd af hjóli L. W. Spencer í miðri
Almannagjá eða Allmen’s Chasm.
Bókin um land miðnætursólarinnar
er um ferð hans til Noregs árið áður.
njall@frettabladid.is
Rover-mótorhjólið þótti vel heppn-
að enda var það með 3,5 hestafla
mótor í miðri, demantslaga grind og
að framan var tvískiptur gaffall með
gormum að framan. Fyrsta Rover-
hjólið var með úðablöndungi og
vélknúnum ventlum og seldust yfir
1.000 Rover-mótorhjól árið 1904.
Ári seinna hætti þó Rover fram-
leiðslu mótorhjóla í nokkur ár til að
einbeita sér að framleiðslu reiðhjóla,
enda varð sölufall á mótorhjólum
um þetta leyti vegna tilrauna ann-
arra framleiðenda sem þóttu ekkert
sérlega vel heppnaðar. Árið 1910 var
svo mótorhjólaframleiðslan sett
aftur í gang og John Greenwood
sem seinna hannaði fyrir Sunbeam,
fenginn til að koma með endur-
bætta útgáfu 3,5 hestafla hjólsins
með Bosch-kveikju og Brown &
Barlow-blöndungi. Hjólið kom með
Druid-framgaffli og var kynnt á
Olympia-sýningunni árið 1910 og
seldust 500 eintök af því hjóli 1910-
11. Það var á slíku hjóli sem L. W.
Spencer kom til Íslands árið 1913. ■
Fullkominn gripur
á sínum tíma
Hjól Spencer er 1913 árgerð en þá
kom það með innfelldum olíutanki.
Lykill fjármögnun
flytur á Höfðatorg
Lykill hefur flutt skrifstofur sínar á Höfðatorg. Við tökum vel
á móti þér á nýjum stað og minnum á að þú getur fundið
alla okkar þjónustu á lykill.is
BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 4. maí 2022