Skessuhorn - 14.07.2021, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 28. tbl. 24. árg. 14. júlí 2021 - kr. 950 í lausasölu
ALLA LEIÐ
Vegabréf
Hinseginhátíð Vesturlands var haldin með pompi og prakt í fyrsta skipti í Borgarnesi um liðna helgi. Hátíðin var gríðarlega vel sótt og tókst í alla staði vel. Margir
skreyttu sig regnbogalitum ýmist í klæðum, höfuðbúnaði eða andlitsmálningu, eða veifuðu fánunum litríku. Sjá nánar bls. 14. Ljósm. glh
Vel heppnað Fjórðungsmót
Fjórðungsmót Vesturlands var
haldið í Borgarnesi frá miðvikudegi
til sunnudags. Mótið var hið glæsi-
legasta í alla staði, vel skipulagt með
skemmtilegri dagskrá langt fram á
kvöld. Hestakosturinn á mótinu var
frábær og sáust mögnuð tilþrif bæði
á kynbótabrautinni og keppnisvell-
inum. Það voru hestamannafélögin
á Vesturlandi sem héldu mótið en
hestamannafélögum á Norðurlandi
var einnig boðið að vera með.
Keppt var í A og B flokki gæð-
inga en einnig í barna,- unglinga-
og ungmennaflokki, töltkeppni og
hleypt á skeið. Landssýning kyn-
bótahrossa fór fram á laugardegin-
um. Þar komu til verðlauna tíu hæst
dæmdu kynbótahrossin á landinu í
hverjum flokki. Þá voru sýningar
ræktunarbúa og margt fleira á dag-
skrá.
Ítarlega er sagt frá helstu úrslit-
um mótsins í máli og myndum í
Skessuhorni bls. 18-19.
mm
Jakob Svavar Sigurðsson leggur
hér Nökkva frá Hrísakoti á skeið, en
Nökkvi var hæst dæmda kynbóta-
hrossið á mótinu. Ljósm. iss.
sími 437-1600
Jón Gnarr og Þeyr 2
á Söguloftinu
laugardaginn 17. júlí kl. 16:00
Jón Gnarr flytur Völuspá,
Konungsbókargerð, við eigið lag,
alls 63 erindi.
Við flutninginn leika þeir
Hilmar Örn Agnarsson og
Hilmar Örn Hilmarsson
Miðasala á tix.is
Okkar vinsæla veitingahús er opið
alla daga frá kl. 11:30 til 21:00
Borðapantanir á
landnam@landnam.is
og í síma 437-1600
arionbanki.is
Afgreiðslutími útibúa
Arion banka á Vesturlandi
Búðardalur Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 10�14
Borgarnes Alla virka daga kl. 11�16
Stykkishólmur Alla virka daga kl. 12.30�16