Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Side 1

Skessuhorn - 25.08.2021, Side 1
Ert Þú í áskrift? Sími 433 5500 www.skessuhorn.is FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 24. árg. 25. ágúst 2021 - kr. 950 í lausasölu Byggðasafn Borgarfjarðar er eitt safnanna í Safnahúsinu í Borgar- nesi. Söfnun muna hófst fyrir margt löngu og einn fyrstu gripa sem safn- ið eignaðist var tóbaksbaukur sem hafði verið í eigu Jóns Jónssonar bónda í Knarrarnesi. Saga bauksins er áhugaverð. Jón var fæddur árið 1809 og varð einungis 37 ára gamall. Einhvern tímann á árunum 1830 til 1840 fór hann í Hraundalsrétt og týndi þá bauknum á heimleið. Hann hafði farið réttar götur og bað menn er fóru sömu leið rétt á eftir, að gá að bauknum og færa sér hann. En bauk- urinn kom aldrei fram og var ýms- um getum leitt að því hver hefði hirt hann. Síðar kom hið sanna í ljós og hér kemur sagan af örlögum bauks- ins: Fram af Hamraendum er klett- ur, er heitir Sáta og þar hafði örn orpið, svo lengi sem menn mundu. Um aldamótin 1900 hætti örninn að verpa í Sátu, og var þá hreiðrinu sundrað. Þar lá þá baukurinn, því það var „assa“ gamla, sem hafði hirt hann og borið í hreiðrið til unga sinna. Tóbaksbaukurinn er góður grip- ur, úr rostungstönn og silfurbúinn. Á svokallaðan stéttartappa (tappi í áfyllingargati bauksins) er grafinn stafurinn J, sem var upphafsstafur Jóns bónda. Sá sem gaf baukinn til byggða- safnsins í Borgarnesi var Friðjón Jónsson á Hofsstöðum í Álftanes- hreppi. Friðjón var fæddur árið 1895. Má leiða að því líkum að í það minnsta hálf öld sé síðan hann færði safninu gripinn sem þá hafði verið í hreiðri össunnar í 60 til 70 ár þar á undan. Svo hér er á ferðinni gripur með sögu sem nær allavega um 120 ár aftur í tímann. Baukurinn er gott dæmi um þá merku gripi sem byggðasöfnin varð- veita og sögurnar um fólkið að baki þeim. mm/gj Tóbaksbaukur Jóns Jónssonar frá Knarrarnesi. Örninn varðveitti baukinn í áratugi Fornleifauppgröftur á minjum í Ólafsdal í Gilsfirði er lokið í bili, eftir fjögur ár. Búið er að grafa upp öll mannvistarlög innan úr skálanum. Margar tóftir eru á svæðinu sem ekki er vitað hvað leynist undir en tíminn verður að leiða í ljós hvort farið verði í frekari uppgröft á svæðinu. Nánar má lesa um uppgröftinn á bls. 21. Ljósm. sá. sími 437-1600 Saga Refilsins frá Bayeux á Söguloftinu Í flutningi Reynis Tómasar Geirssonar Vegna fjölda fyrirspurna þá verða tvær sýningar nú í september laugardaginn 4. september kl. 16:00 laugardaginn 11. september kl. 16:00 Miðasala og borðapantanir: landnam@landnam.is og í síma 437-1600 Fjármála- og tryggingaráðgjöf á einum stað í útibúum Arion banka Þú getur hitt ráðgjafa frá Verði í útibúum Arion banka á Höfða, Smáratorgi, Selfossi og í Borgarnesi. Pantaðu fund í útibúi eða fjarfund á arionbanki.is. arionbanki.is Ný og öflug vefverslun ALLA LEIÐ

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.