Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Page 6

Skessuhorn - 25.08.2021, Page 6
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 20216 Tekið við allt að 120 afgönum LANDIÐ: ríkisstjórn Ís- lands samþykkti á fundi sín- um í gær tillögur flótta- mannanefndar vegna þess ófremdarástands sem hefur skapast í afganistan í kjöl- far valdatöku talibana. Með tillögum flóttamannanefnd- ar verður stutt við þær fjöl- skyldur sem eru hér á landi og eiga rétt á sameiningu við fjölskyldumeðlimi í af- ganistan. Þá verður lögð áhersla á að aðstoða einstak- linga sem eru í bráðahættu vegna starfa sinna í afgan- istan, hvort sem það er fyrir atlantshafsbandalagið eða á sviði jafnréttismála. Heildar- fjöldi þeirra sem tekið verður á móti liggur ekki endanlega fyrir en áætlað er að hann verði allt að 120 manns. Erf- itt er að meta fjöldann ná- kvæmlega þar sem hann fer eftir fjölskyldusamsetningu. -mm Lúr á leiðinni VESTURLAND: Öku- menn voru óvenju þreyttir í liðinni viku en þrír þeirra tóku blund undir stýri. Á fimmtudagsmorgun 19. ágúst um kl. 6:30 sofnaði ökumaður undir stýri á leið sinni suður í gegnum Norð- urárdal með þeim afleið- ingum að bíllinn fór út af og valt. Tveir voru í bíln- um og sluppu þeir báðir án meiðsla. Um kl. 5 á sunnu- dagsmorgun, 22. ágúst, sofn- aði ökumaður rétt við Fjár- húsaás í Borgarfirði, einn- ig með þeim afleiðingum að bíllinn valt. Bíllinn skemmd- ist nokkuð en ekki urðu slys á fólki. Þá sofnaði ökumað- ur á ferð sinni við Hagamel í Hvalfjarðarsveit á mánudag- inn, 23. ágúst, með þeim af- leiðingum að hann fór utan í bíl sem kom á móti. Ekki varð mikið tjón en speglar bílanna tveggja skullu saman og brotnuðu. -arg Þrír bílar saman BORGARNES: Þriggja bíla óhapp varð rétt norðan við Borgarnes á þriðjudag- inn í síðustu viku, 17. ágúst. Einn ökumaður ók yfir á öf- ugan vegarhelming og lenti á öðrum bíl. Þriðji bíllinn fór út af. Engin slys urðu á fólki. -arg Breyttar reglur um sóttkví í skólum LANDIÐ: Sóttvarnalækn- ir hefur endurskoðað leiðbein- ingar um sóttkví á öllum skóla- stigum og í frístundastarfi og félagsmiðstöðvum. Með breyt- ingunum má gera ráð fyrir að færri þurfi að sæta sóttkví ef smit kemur upp. Í leiðbeining- um vegna breyttra reglna eru skilgreind viðmið um sóttkví eftir því hvort samvera við smit- aðan einstakling hafi verið mikil eða ekki. Ef samskipti hafa ekki verið mikil samkvæmt skilgrein- ingu verður ekki gerð krafa um sóttkví heldur smitgát og getur viðkomandi þá mætt í skólann. Hraðapróf verða notuð þegar í hlut eiga einstaklingar sem ein- ungis þurfa að sæta smitgát, eins og nánar er skýrt í leiðbeining- um. reglugerðin tók gildi í gær, þriðjudag. -mm Vissi ekki hvert hann var að fara VESTURLAND: Töluverður erill var um helgina hjá Lögregl- unni á vesturlandi vegna ferða- fólks sem sem átti leið í gegn- um umdæmið. Ekki var þó um stór mál að ræða heldur mörg smærri; fólk að veikjast, lenda í smávægilegum óhöppum og slíkt. Einn þeirra sem þurfti á aðstoð lögreglunnar að halda hafði fengið sér aðeins of mik- ið neðan í því og vissi ekki hvert hann ætti að fara eða hvern- ig hann ætti að komast þang- að. Lögreglan gat þó aðstoðað manninn sem komst að lokum heill á áfangastað. -arg vel hefur gengið að ráða í stöð- ur heilsugæslulækna í Borgarnesi á liðnum dögum. Um tíma í sumar leit út fyrir að læknislaust yrði eft- ir 1. september, en nú horfir dæmið öðruvísi við. Þessu fagnar forsvars- fólk Heilbrigðisstofnunar vestur- lands, en blaðamaður Skessuhorns hitti á mánudaginn að máli þau Jó- hönnu Fjólu Jóhannesdóttur for- stjóra HvE, Þóri Bergmundsson framkvæmdastjóra lækninga og Ás- geir Ásgeirsson framkvæmdastjóra fjármála. „Þetta leit vissulega illa út á tímabili í sumar eftir að yfirlæknir okkar í Borgarnesi sagði upp störf- um og jafnvel var útlit fyrir að Borg- arnes yrði læknislaust umdæmi nú 1. september. við gripum því eðli málsins samkvæmt til þess ráðs að auglýsa, bæði á Starfatorgi en einnig í lokuðum hópum lækna. Þá hringd- um við maður á mann í alla þá sem mögulega kæmu til greina. vorum hreinlega með allar klær úti. Þessi leit okkar að læknum hefur nú skil- að þeim árangri að nú lítur út fyr- ir að fullmannað verði í allar stöður í Borgarnesi á næstu dögum,“ segir Þórir Bergmundsson. við starfi yfirlæknis í Borgarnesi tekur Jóhann Johnsen sem í fyrstu ræður sig þó tímabundið til starfa, en til framtíðar ef vel líkar. Þá kem- ur Sigurður gunnarsson heimilis- læknir til starfa og vildi hann sömu- leiðis máta sig inn í starfið til að byrja með. „Þá erum við í viðræð- um við þriðja lækninn sem nú bíður eftir starfsleyfi hér á landi, en við- komandi nam læknisfræði í Banda- ríkjunum, en vill flytja í Borgarnes þar sem hún þekkir aðeins til. Tveir af þessum læknum eru sérfræðing- ar í heimilislækningum sem um leið gefur okkur möguleika á að ráða kandidata til starfa,“ segir Þórir. Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir for- stjóri HvE segir mikinn létti fylgja því að nú sé að leysast farsællega úr yfirvofandi læknaskorti í Borgarnesi. „við erum nú á miklu betri stað en við vorum bara fyrir nokkrum vik- um síðan. Erum að fá til starfa fólk sem bæði hefur langa starfsreynslu en einnig nýlega komið úr námi.“ Þórir bætir við að auk fyrrgreindra lækna hafi kona sem er á síðasta ári í læknisfræði boðið fram aðstoð sína til afleysinga í Borgarnesi frá sept- ember til desember. „Það gefur okk- ur kost á að aðrir læknar geti tekið út frí sem þeir eiga inni. Þessu til við- bótar hafa eldri reynsluboltar, fólk sem hefur starfað hjá okkur í lengri eða skemmri tíma í Borgarnesi, lýst því yfir að það geti tekið að sér helg- arvaktir og hefur það vafalítið liðk- að fyrir vilja annarra að sækja um,“ segir Þórir. „Það er þekkt að langar helgarvaktir geta virkað hamlandi á lækna að taka að sér störf í læknis- héraði eins og Borgarfirði þar sem íbúafjöldi margfaldast um helg- ar og mikið gegnumrennsli er auk þess um þjóðvegi í héraðinu. Það er ákveðinn fælingarmáttur sem felst í því að standa langar vaktir úti á landi auk þeirrar bindingar sem það fel- ur í sér. Því er mikilvægt að ætíð sé fullmannað í stöðurnar. Heilsugæsla á landsbyggðinni er allt öðruvísi en á höfuðborgarsvæðinu og allt ann- ar raunveruleiki sem læknar þar búa við. Það verður því að nást að byggja upp umgjörð um heilsugæsluna í landinu þannig að hægt sé að manna þessi störf án verulegra vandkvæða,“ segir Jóhanna Fjóla. Þau Ásgeir, Þórir og Jóhanna eru sammála um að læknamál í Borgarnesi standi nú betur en þau hafi gert í mörg ár ef allt fer fram sem horfir. varðandi húsnæði fyrir lækna í Borgarnesi segir Jóhanna Fjóla að ríkiseignir eigi tvö einbýlishús í Borgarnesi sem læknar eru nú að flytja í. „við erum að leita að þriðju íbúðinni eða húsi. Höfum reynd- ar óskað eftir því við ríkiseign- ir að annað einbýlishúsið verði selt í skiptum fyrir tvær góðar íbúðir. Mögulega munum við leysa hús- næðismálin með að taka til leigu hentuga íbúð eða hús til langs tíma. Þetta mun skýrast á næstu dögum og vonandi leysast líkt og mönnun í störf lækna er að fá farsælan endi,“ segir Jóhanna Fjóla að endingu. mm Þórir Bergmundsson, Jóhanna Fjóla Jóhannesdóttir og Ásgeir Ásgeirsson. Farsæl lending í mönnun lækna í Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.