Skessuhorn - 25.08.2021, Side 11
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 2021 11
HUGMYNDASAMKEPPNI
UM HÖNNUN OG SKIPULAG
LANGASANDSSVÆÐISINS Á AKRANESI
Um samkeppnina
Akraneskaupstaður ákvað árið 2020 að efna til hugmyndasamkeppni um
skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við
er að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir
m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnar-
svæðið.
Svæðið sem um ræðir nær frá Innnesvegi til norðausturs, Langasandi og
Leyni til suðvesturs, norðvestur afmarkast svæðið við gatnamót Jaðars-
brautar og Faxabrautar, suðaustur af bæjarmörkum Akraneskaupstaðar.
Svæðið er um 35 hektarar að stærð og er stór hluti svæðisins innan
hverfisverndar í gildandi aðalskipulagi. Það nær yfir útivistarsvæði frá
Leynisfjöru, Sólmundarhöfða, meðfram Langasandi að Faxabraut. Eftir
svæðinu liggur strandstígur, íþróttasvæðið að Jaðarsbökkum,
íbúðabyggð á Sólmundarhöfða, hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði sem
og fjölbýlishúsalóðir við Garðabraut, Höfðabraut og Jaðarsbraut.
Leiðarljós samkeppninnar
Leiðarljós samkeppninnar er að skapa heildræna sýn á notkun og
upplifun á Langasandi og skal við hönnun og skipulag svæðisins hafa
eftirfarandi atriði í huga:
• Hönnun og skipulag skal taka tillit til framþróunar í vistvænni
byggingartækni og mannvirkjagerð ásamt því að tryggja lágmarks
viðhalds- og rekstrarkostnað.
• Hönnun og skipulag svæðisins komi til móts við þá sem nota svæðið
og ýti undir afþreyingu, útivist og hreyfingu almennings á sem
fjölbreyttastan hátt allan ársins hring og styrki aukna menningar-
starfsemi.
• Hönnun og skipulag skal stuðla að sjálfbærni svæðisins, s.s. sjálfbærri
nýtingu auðlinda og kolefnisbindingu. Ásamt því skal hönnun og
skipulag taka mið af vistvænum lausnum með það að markmiði að
bæta gæði ofanvatns með blágrænum lausnum og stuðla að grænna
umhverfi.
• Tryggja skal náttúrulegan fjölbreytileika landslags, lífríkis og
menningarminja með markvissri verndun og viðhaldi.
• Tryggja öryggi á svæðinu og aðgengi fyrir alla.
• Áherslur og þarfir íbúa Akraness séu höfð til hliðsjónar í hönnun og
skipulagi svæðisins, þar sem staðarandi nýtur sín óskertur og tryggt
að ánægja og áhugi fólks á notkun svæðisins glatist ekki.
• Svæðið skal vera álitlegur áningastaður og stuðla að markmiðum
Heilsueflandi samfélags og Bláfánavottunnar.
• Að svæðið fái fallegt heildaryfirbragð og geti þróast og öðlast heild-
stætt hlutverk til framtíðar sem stuðlar að fjölbreyttri notkun þess og
skapi sér fastan sess í daglegri útivist sem flestra íbúa á Akranesi.
Markmið samkeppninnar
vellíðan, heilsu og upplifun fyrir alla notendur með eftirfarandi atriði í
huga:
• Hönnun og skipulag sé í samræmi við meginstefnu Aðalskipulag
Akraness 2006-2017 ásamt drögum að endurskoðun Aðalskipulags
Akraness 2020-2032.
• Hugmyndir innihaldi tillögur um uppbyggingu Guðlaugar til
framtíðar s.s. búnings- og sturtuaðstöðu, veitingasölu eða önnur
tengd rekstrartækifæri sem eiga samleið með Guðlaugu og styrkja
svæðið í heild.
• Hönnun og skipulag tengist uppbyggingu og skipulagi íþróttamann-
virkja á Jaðarsbökkum.
• Hugmyndir innihaldi tillögur um framtíð útisvæða Knattspyrnufélags
Akraness t.d. tilfærsla á keppnisvelli og mannvirkjum.
• Hugmyndir styðji við varðveislu minja og náttúru svæðisins.
• Hönnun og skipulag tengist uppbyggingu og skipulagi á
Langasandsreit (Sementsreit).
• Hugmyndir styðji við atvinnusköpun á svæðinu í anda heilsu og
vellíðunar.
• Hönnun og skipulag svæðisins tryggi aðgengi allra að svæðinu sem
og einnig innan svæðisins ásamt góðu og öruggu aðgengi að fjörum
svæðsins, þ.e. Langasandi og Leynisfjöru.
• Hugmynd að hönnun strandstígar meðfram svæðinu, stígur sem
hefur möguleika til góðra tenginga við núverandi stígakerfi og
nærliggjandi svæði og verður fyrirmynd fyrir strandlengju Akraness.
Hönnun stígs horfi til samspils gangandi og hjólandi umferðar.
• Hönnun og skipulag geri svæðið líflegt, skapi skjólsæl svæði, stuðli
að heilsueflingu, sé áhugavert og fræðandi og eftirsóknarvert fyrir
fjölskyldur og aðra hópa.
• Raunhæf framtíðarsýn við hönnun og skipulag þar sem virðing er fyrir
því sem vel hefur verið gert á svæðinu, viðhalda sjónrænum tengslum
við hafið og hugmyndir nýtist óháð árstíðum.
styrki staðaranda svæðisins og tengist heilsu og vellíðan.
uppbyggingu á svæðinu ásamt því að meta hvernig eða hvort
núverandi mannvirki og/eða svæði geti nýst betur eða öðruvísi fyrir
svæðið í heild.
• Sérstaða svæðisins sé nýtt til fulls.
Þitt álit skiptir máli
Apríl Arkitekter, Kanon Arkitektar og Landmótun sf. ásamt Sei
Stúdíó eru þau þrjú teymi sem taka þátt í hugmyndasamkeppni
en þau voru formlega dregin í útdrætti þann 2. mars 2021.
Hugmyndir þeirra eru hér til sýnis án auðkennis og á hvert teymi
raðnúmer sem verður opinberað við niðurstöðu dómnefndar í
byrjun september.
Þitt álit skiptir okkur máli og óskum við eftir að heyra frá ykkur.
Útbúin hefur verið rafræn viðhorfskönnun um hugmyndirnar sem
íbúar geta fyllt út og sent dómnefndinni. Verða niðurstöður
hafðar til hliðsjónar við ákvörðun um úrslit í samkeppninni.
Allar nánari upplýsingar um
Framboðslistar Frjálslynda lýðræð-
isflokksins hafa nú verið birtir í öll-
um landsbyggðarkjördæmum, en
listar fyrir reykjavíkurkjördæmin
verða birtir í næstu viku. Flokkur-
inn hefur fengið úthlutað listabók-
stafnum O. Listi flokksins í Norð-
vesturkjördæmi er þannig:
Nr. 1 Sigurlaug guðrún inga
gísladóttir, verslunarmaður
Nr. 2 Jóhann Bragason, rafvirki
Nr. 3 Hafþór Magnússon,
sjómaður
Nr. 4 Jón Sigurðsson, smiður
Nr. 5 reynir Sigurður
gunnlaugsson, iðnaðarmaður
Nr. 6 Karl Löve, öryrki
Nr. 7 Ásta Björg Tómasdóttir,
öryrki
Nr. 8 Sigurður Þorri Sigurðsson,
öryrki
Nr. 9 ingólfur daníel Sigurðsson,
tæknimaður
Nr. 10 Jóhanna María
Kristjánsdóttir, eldri borgari
Nr. 11 gunnar Karl Halldórsson,
prentari
Nr. 12 Friðfinnur v Hreinsson,
viðskiptafræðingur
Nr. 13 guðrún K. Ívarsdóttir,
matreiðslumaður
Nr. 14 Símon Sverrisson,
kaupmaður
Nr. 15 Höskuldur davíðsson, eldri
borgari
Nr. 16 gunnlaugur dan
Sigurðsson, öryrki.
mm
Á fésbókarsíðunni „Bakland ferða-
þjónustunnar“ kom nýverið mynd
af skilti við Kirkjufellsfoss á Snæ-
fellsnesi. Þar var auglýst gjaldtaka
fyrir bílastæði og var skiltið merkt
fyrirtækinu Sannir landvættir. Það
fyrirtæki sér einnig um gjaldtöku
og uppbyggingu á innviðum á fleiri
stöðum á Íslandi eins og við Náma-
skarð og Laufskálavörðu en þau
svæði eru einnig í einkaeigu líkt og
Kirkjufellsfoss. Á heimasíðu fyrir-
tækisins má sjá eftirfarandi texta:
„Sannir landvættir bjóða viðskipta-
vinum sínum upp á víðtæka þjón-
ustu á sviði uppbyggingar á ferða-
mannastöðum. allt frá einfaldri
ráðgjöf til allsherjar uppbygging-
ar, fjármögnunar og rekstrar stórra
svæða.“
Bílastæðið við Kirkjufell var
byggt upp með styrk frá Fram-
kvæmdasjóði ferðamannastaða og
hófst sú vinna árið 2018. Á fundi
bæjarráðs grundarfjarðar í júlí
2019 var óskað eftir breyting-
um á samningnum á milli land-
eiganda og bæjarins með aðkomu
Framkvæmdasjóða ferðamanna-
staða. Í janúar 2021 voru lögð fram
drög að samningi grundarfjarðar-
bæjar við fyrirtækið Sanna land-
vætti um bílastæði við Kirkjufells-
foss ásamt beiðni grundarfjarðar-
bæjar til Framkvæmdasjóðs ferða-
mannastaða í júlí 2019 um að
verkþáttur vegna bílastæða verði
tekinn út úr framkvæmdaáætlun
vegna styrkveitingar við áningar-
staðinn Kirkjufellsfoss. Áður höfðu
landeigendur og Sannir landvætt-
ir gengið til samninga um rekstur
svæðisins. Félag á vegum Sannra
landvætta tekur þá yfir rekstur
bílastæðisins og sinnir þjónustu
á því. Bílastæðinu yrði þá afsalað
til félagsins gegn greiðslu fram-
kvæmdakostnaðar. Í júlí í sumar
var svo undirritaður samningur við
Sanna landvætti lagður fyrir bæjar-
ráð til endanlegrar staðfestingar og
var það samþykkt samhljóða. Nú er
gjaldtaka að hefjast og fara tekjurn-
ar af innheimtunni í að reka svæðið
í framtíðinni.
„Í raun er þetta mjög sanngjörn
leið til að sjá til þess að reka svæðið
og veita góða þjónustu þannig að
upplifun gesta sé góð,“ segir Björg
Ágústsdóttir bæjarstjóri grundar-
fjarðarbæjar í samtali við Skessu-
horn. „Tekjur sem af þessu koma,
fara í að sjá um vetrarþjónustu á
svæðinu, til að hafa umsjónarmann
sem losar rusl, sandar, saltar, læt-
ur moka á veturna og hefur eftirlit
með svæðinu svo eitthvað sé nefnt.“
Þó nokkrar framkvæmdir eru á
döfinni hjá Sönnum landvættum
en stefnt er að því að byggja upp
göngustígana betur og bæta að-
gengi fyrir fatlaða. verður spenn-
andi að fylgjast með framvindunni
á svæðinu næstu misserin.
gjaldskylda er ekki byrjuð og
fólki frjálst að leggja endurgjalds-
laust á svæðinu. Sá háttur verður
hafður á til að byrja með en í fram-
tíðinni verður gjald innheimt fyrir
þá sem leggja á svæðinu nema lagt
sé í mjög skamman tíma. Á næst-
unni þurfa þeir sem ætla að skoða
Kirkjufellsfoss að greiða 1.000
krónur fyrir fólksbíl, 1.800 kr. fyrir
húsbíl og 6.400 kr. fyrir rútur. að
vísu er veglegur afsláttur af gjald-
inu á meðan framkvæmdum stend-
ur. tfk
Frjálslyndi lýðræðisflokkur-
inn birtir framboðslista sinn
Sannir landvættir hyggja á
gjaldtöku við Kirkjufell
Skiltið við bílastæðið þar sem gestir ganga að fossinum.