Skessuhorn - 25.08.2021, Page 14
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 202114
Undanfarnar vikur hafa starfsmenn
og verktakar frá Malbikun akureyr-
ar unnið hörðum höndum á Snæ-
fellsnesi við að malbika götur þétt-
býliskjarnanna á svæðinu. reikn-
að er með að þessar framkvæmdir
standi yfir eitthvað fram í septem-
ber enda næg verkefni fram undan.
Miðvikudaginn 18. ágúst síðastlið-
inn var mikið um að vera á grund-
argötunni í grundarfirði þegar nýtt
malbik var lagt þar. Þetta er aðal
umferðargatan í bænum enda ligg-
ur hún í gegnum allan bæinn. Tals-
vert rask var á umferð eins og gef-
ur að skilja en þó ekki svo mikið að
allir komust leiðar sinnar sem það
þurftu.
tfk
Síðastliðinn miðvikudag var
lokahátíð Sumarlesturs á Bóka-
safni akraness. Hátíðin tókst mjög
vel, en um 50 börn mættu og tóku
þátt í leikjum og léttu gríni í tilefni
dagsins. Í Sumarlestrinum að þessu
sinni tóku 105 börn þátt. voru þau
á aldrinum 6-12 ára. Börnin lásu
samtals 662 bækur, eða 56.149
blaðsíður. „Það er náttúrlega frá-
bær árangur hjá þessum ungu les-
urum,“ segir Halldóra Jónsdótt-
ir bæjarbókavörður. „Börnin hafa
verið einstaklega skemmtilegir
safngestir í sumar og hafa örugg-
lega eflt lestrarfærni sína. Það
kemur þeim vel þegar þau setjast
aftur á skólabekk,“ segir Halldóra
sem vildi jafnframt koma á fram-
færi þökkum starfsfólks bókasafns-
ins til styrktaraðila átaksins.
mm/ Ljósm. mm & Nanna.
akraneskaupstaður ákvað árið 2020
að efna til hugmyndasamkeppni
um skipulag og hönnun Langa-
sandssvæðisins á akranesi í sam-
starfi við FÍLa, Félag íslenskra
landslagsarkitekta. Markmiðið með
samkeppninni var að fá hugmynd-
ir um framtíðarskipulag svæðisins í
heild sem tengir m.a. strandsvæði,
skólasvæði, framtíðar uppbygging-
arreit og hafnarsvæðið. Svæðið sem
um ræðir nær frá innnesvegi til
norðausturs, Langasandi og Leyni
til suðvesturs, norðvestur afmarkast
svæðið við gatnamót Jaðarsbrautar
og Faxabrautar, suðaustur af bæjar-
mörkum akraneskaupstaðar. Svæð-
ið er um 35 hektarar að stærð og er
stór hluti þess innan hverfisvernd-
ar í gildandi aðalskipulagi. Það nær
yfir útivistarsvæði frá Leynisfjöru,
Sólmundarhöfða, meðfram Langa-
sandi að Faxabraut. Eftir svæð-
inu liggur strandstígur og á því er
íþróttasvæðið að Jaðarsbökkum,
íbúðabyggð á Sólmundarhöfða,
hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði
sem og fjölbýlishús við garðabraut,
Höfðabraut og Jaðarsbraut.
Á vefsíðu akraneskaupstaðar
er sagt frá því að apríl arkitektar,
Kanon arkitektar og Landmótun
sf. ásamt Sei Stúdíó séu þau þrjú
teymi sem tóku þátt í hugmynda-
samkeppninni en þau voru form-
lega dregin út í útdrætti 20. mars
á þessu ári. útbúin hefur verið
rafræn viðhorfskönnun um hug-
myndir arkitektastofanna sem íbú-
ar geta fyllt út og sent dómnefnd-
inni. verða niðurstöður hafðar til
hliðsjónar við ákvörðun um úrslit
í samkeppninni. Könnunin er opin
til 5. september næstkomandi.
Íbúar eru beðnir um að draga
fram helstu kosti í tillögunum í
stuttu máli. vakin er athygli á því að
þetta eru hugmyndir sem eru sett-
ar fram en ekki endanlegt skipulag,
sú vinna fer í gang að lokinni sam-
keppni. verður þá eitt teymi dreg-
ið út sem vinnur endanlegt deili-
skipulag með akraneskaupstað.
Tillögurnar verða einnig til sýnis
á Langasandi milli guðlaugar og
ærslabelgs frá og með deginum í
dag, miðvikudaginn 25. ágúst. Sjá
nánar á akranes.is. vaks
Rafræn viðhorfskönnun
um hönnun
Langasandssvæðisins
Mynd úr flygildi yfir Grundargötuna í austurátt.
Grundargatan
í Grundarfirði
malbikuð
Verið að sturta efni ofan í malbikunarvélina með tilheyrandi bendingum.
Grundargatan einbreið
og umferð stýrt úr sitt-
hvorri áttinni.
Línurnar lagðar fyrir leiki dagsins.
Húllumhæ á
bókasafninu
Hópurinn að afloknu Húllumhæi. Ljósm. Nanna.
Prúðbúnir starfsmenn í tilefni dagsins.
Í einni þrautinni þurfti að ná legókubbum úr vatni með
tánum.