Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Page 16

Skessuhorn - 25.08.2021, Page 16
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 202116 dagbjört dúna rúnarsdóttir býr ásamt fjölskyldu sinni í Böðvars- holti í Staðarsveit á Snæfellsnesi. Hún er gift Þorkeli Marvini Hall- dórssyni sem er menntaður bakari og vinnur sem matráður í grunn- skóla Snæfellsbæjar, Lýsudeild, þar sem dætur þeirra tvær ganga einnig í leik- og grunnskóla, þær Árelía Ósk og viðja Margrét. Árið 2018 klár- aði dagbjört B.Ed. gráðu í grunn- skólafræðum en fór í framhaldi af því í Ma nám í hagnýtri menning- armiðlun sem hún lauk 2020. „við bjuggum í reykjavík á námsárun- um en þegar ég var að ljúka nám- inu á síðasta ári fluttum við aftur heim í sveitina okkar, þaðan sem við erum bæði ættuð og uppalin,“ segir dagbjört í samtali við Skessu- horn. „Hér viljum við búa og starfa með okkar fjölskyldu og erum við öll mjög sátt hér, í þessu umhverfi, innan um vini og fjölskyldu,“ bætir hún ánægð við. Segir sögur á Snæfellsnesi dagbjört hefur starfað við ýmislegt síðan hún flutti aftur í sveitina sína. Hún var í hlutastarfi við kennslu í Laugagerðisskóla frá áramót- um síðasta vetur en verður í hluta- starfi á komandi vetri í gSNB, Lýsudeild. Hún er einnig formað- ur í stjórn félagsins Sagnaseiður á Snæfellsnesi og tekur að sér sögu- fylgd víða um Snæfellsnes. „Það felst í því að hitta fólk á áhugaverð- um stöðum, ganga með því stuttar gönguleiðir eða jafnvel keyra með það hring um nesið og segja þá sög- ur af svæðinu og svara spurningum sem fólk hefur um lífið og tilveruna hér á nesinu. Þetta eru oft erlend- ir ferðamenn sem vilja skyggnast inn í líf okkar heimamanna og sögu landsins en einnig íslenskir hóp- ar sem vilja fá að heyra sögur og fá auka upplifun í ferð sinni um nes- ið,“ segir dagbjört um sögufylgd- ina. Þykir saga kirkjunnar mögnuð Það sem dagbjörtu þykir þó vænst um að fá að sinna á svæðinu er að vera kirkjuvörður í Búðakirkju. „Kirkjan stendur hjarta mínu mjög nærri. Þarna var ég skírð, fermd og gift, dætur mínar voru skírð- ar í kirkjunni, ýmsar athafnir ást- vina haldnar og ættingjar eru jarð- aðir í kirkjugarðinum. En kirkjan er ekki síður mikilvæg af því að mér finnst umhverfi kirkjunnar og hún sjálf svo stórbrotin bæði hvað varð- ar fegurð og af því að saga kirkj- unnar er svo mögnuð,“ segir dag- björt um Búðakirkju á Snæfellsnesi. „Þegar ég tek á móti hópum þar í sögufylgd get ég rakið sögu kirkj- unnar frá því um 1700 þegar allt að 130 manns bjuggu á Búðum, lýsi þá lífinu þar, kaupmennskunni og að- stæðum fólks. Segi frá fyrstu kirkj- unni sem var reist árið 1703, til- komu hennar og endalokum, og þaðan að Steinunni Sveinsdóttur sem barðist fyrir endurbyggingu kirkjunnar upp úr 1840 og fékk að lokum konungsleyfi til að byggja þá kirkju sem nú stendur á Búðum og hefur verið undir vernd húsafriðun- ar frá 1990,“ bætir dagbjört við um svörtu kirkjuna og sögu hennar. „Í raun byrjaði þetta með því að ég sóttist eftir því við sóknarnefnd- ina að fá að fara með hópa í Búða- kirkju sem hluta af sögufylgd hjá mér. Í framhaldi af því var ég beð- in um að taka það að mér að opna kirkjuna fyrir hópa sem spurðust fyrir um það beint við sóknarnefnd- ina að skoða kirkjuna og síðan vatt það upp á sig þannig að núna sé ég um allt utanumhald, móttöku, þrif og almennt eftirlit með Búða- kirkju,“ útskýrir dagbjört sem er titluð kirkjuvörður í Búðakirkju. Kirkjan á hjara veraldar dagbjört hefur borið titilinn kirkju- vörður Búðakirkju síðan í júní 2019 og segir hún töluverðar breytingar hafa átt sér stað hvað varðar Búða- kirkju. „Undanfarin rúm tíu ár hafa orðið miklar breytingar á kirkjunni, ekki útlitslega, heldur hvað varðar notkun og eftirspurn. Það er stöð- ugur straumur fólks á svæðið sem vill skoða umhverfið á Búðum en ekki síður fá að sjá þessa litlu svörtu kirkju á hjara veraldar sem hefur verið ljósmynduð í bak og fyrir eins og sést þegar Búðakirkja er slegið inn á leitarstreng google,“ útskýr- ir dagbjört. „Fólk kemur langar leiðir til að ljósmynda á Íslandi og fer sérstaka ferð hingað á Snæfells- nesið til að mynda kirkjuna og um- hverfi hennar. Minnst af því er þó eitthvað sem þarf að sinna þar sem það fer aðallega fram utan veggja kirkjunnar. afleiðing þessarar óbeinu markaðssetningar sem fal- legar ljósmyndir eru, er hins vegar aukin eftirspurn um athafnir, við- burði og heimsóknir í Búðakirkju. Það er það sem starfið hjá kirkju- verði felur einna helst í sér; um- stang í kringum heimsóknir, brúð- kaupsathafnir, skírnir, tónleika og sögumiðlun.“ Erlend pör vilja gifta sig í Búðakirkju Frá því dagbjört tók við starfi kirkjuvarðar í Búðakirkju í júní 2019 hafa verið haldin 60 brúð- kaup í kirkjunni og að sögn kirkju- varðarins eru 25 brúðkaup bókuð fram að næstu áramótum. Nú þeg- ar eru komnar bókanir alveg fram til ársins 2024, svo eftirsóknarverð er Búðakirkja. „Það voru aðeins tíu athafnir í heildina árið 2020 vegna Covid, sem gerði mikið hlé í að- sókninni. Flestir kusu að færa at- hafnir sem þurfti að afbóka vegna takmarkana, mjög fáir afbókuðu al- veg en vildu heldur bíða til að geta komist til landsins og haft brúð- kaupið sitt í Búðakirkju þegar tak- mörkunum léttir,“ útskýrir dag- björt. „Langflestar brúðkaupsathafn- irnar eru fyrir erlend pör. Það eru að jafnaði kannski þrjú íslensk brúðkaup á ári en restin eru útlend- ingar alls staðar að úr heiminum. Ekki aðeins brúðkaup því það eru núna farnir að koma foreldrar að skíra börnin sín í Búðakirkju sem höfðu gift sig þar nokkrum árum áður,“ bætir hún við. Brúðkaup eru langalgengust af öllu því sem fram fer í kirkjunni, þar á eftir er mót- taka hópa en á sumrin eru til dæm- is fastir hópar sem koma í kirkj- una í hverri viku, annars vegar eru það gestir úr skemmtiferðaskipum sem koma vikulega í grundarfjörð og svo vikulegir hópar sem gista á Hótelinu á Búðum sem koma til dagbjartar í sögufylgd í kirkj- unni fyrir lokakvöldverðinn þeirra í skipulagðri ferð. Gott samstarf við Hótel Búðir Tónleikar hafa einnig verið að bæt- ast í flóruna. Í vetur fór Hótel Búð- ir í samstarf við Búðakirkju um að halda tónleika fyrir gesti sína í kirkjunni. Með þessu fyrirkomulagi var hægt að virða allar samkomu- og fjöldatakmarkanir en samt halda úti starfsemi á hótelinu. „Þau voru með pakkatilboð á gistingu, mat og tónleikum. Þá voru gerð tvö sótt- varnahólf á hótelinu og tók hótel- ið helming gestanna í mat á meðan hinn helmingurinn var á tónleik- um. Síðan fóru þau sem voru á tón- leikum í mat en þau sem voru búin að borða komu á seinni tónleikana. Þetta var skemmtilegt og gott sam- starf,“ rifjar dagbjört upp. „Þarna voru tónlistarmenn eins og Bríet, ragnheiður gröndal, KK, Högni og fleiri. Það var yndislegt að sjá svona líf í kirkjunni sem er ekki annars mikið um á veturna,“ bæt- ir hún ánægð við og segir jafnframt að það ríki gott samstarf á milli Hótel Búða og Búðakirkju en báð- ar byggingar eru staðsettar nánast á sama reitnum án þess þó að vera með nein eiginleg tengsl ef út í það er farið. Engu að síður hefur ná- lægð þessara bygginga nýst fólki til góðs sem gistir á hótelinu og nýtur alla þá þjónustu sem þar er að finna samhliða því að vera með viðburð eða athöfn í kirkjunni. Sóknarkirkja heimamanna „Búðakirkja er fyrst og fremst sóknarkirkja okkar heimamanna „Kirkjan stendur hjarta mínu mjög nærri“ -segir Dagbjört Dúna, kirkjuvörður í Búðakirkju á Snæfellsnesi Dagbjört Dúna Rúnarsdóttir, kirkjuvörður í Búðakirkju. Ljósm. aðsend. Dagbjört Dúna ásamt fjölskyldu sinni á Búðum þann 17. júní. Frá vinstri: Viðja Margrét, Þorkell Marvin, Dagbjört Dúna og Árelía Ósk. Ljósm.aðsend. Búðakirkja. Ljósm. Gunnhildur Lind. Altarið í Búðakirkju. Ljósm. Gunnhildur Lind.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.