Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Side 17

Skessuhorn - 25.08.2021, Side 17
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 2021 17 • Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com Vinnum fyrir öll tryggingafélög FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ www.frumherji. is Stykkishólmur 2019 Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu Dekk & Smur, Nesvegi 5 Miðvikudaginn 1. september Fimmtudaginn 2. september Föstudaginn 3. september Allar gerðir ökutækja skoðaðar Tímapantanir í síma 438–1385 Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 S K E S S U H O R N 2 02 1 Jón Jóel Einarsson, ferðaþjónustu- bóndi á arnarstapa á Snæfellsnesi, hefur sent opið bréf til vegagerð- arinnar þar sem hann lýsir þungum áhyggjum af umferðaröryggi á arn- arstapa. Áður hafði hann sömuleið- is lýst áhyggjum sínum við bæjar- yfirvöld í Snæfellsbæ. „Ég leyfi mér að fullyrða að arnarstapi sé fjöl- sóttasti ferðamannastaður á Snæ- fellsnesi yfir sumartímann, jafn- vel á öllu vesturlandi. gott væri að hafa tölur til að styðjast við,“ seg- ir Jón Jóel sem furðar sig reyndar á að bílaumferð skuli ekki vera talin á arnarstapa eins og víða er gert. „En áhyggjur mína snúast mest um umferðarhraða hér á arnar- stapavegi, þ.e. á afleggjaranum frá útnesvegi (574) niður að höfn. Stutt frá vegamótunum er eitt skilti sem sýnir 50 km hámarkshraða og er það eina umferðarskiltið á svæð- inu. Um veginn fara daglega marg- ar rútur af öllum stærðum í bland við smábíla, suma daga vöru- og fiskflutningar, mótorhjól, húsbílar og -vagnar. Trúlega ekki færri en á annað hundrað farartæki á dag. reyndar er sjálfstætt og vaxandi áhyggjuefni hraðakstur fjórhjóla/ -torfærubíla sem hafa sest að hér á Stapanum og þar eru augljóslega líka börn við stýrið.“ Bréfritari bendir á að mikið sé af ferðamönnum, gangandi fólki, sem þverar títt arnarstapaveg á leið sinni á veitingastaði eða í skoðun- arferðir og er arnarstapavegur- inn líka nýttur sem göngustígur. „Einn veitingastaðurinn stendur þétt við veginn en stærsta bílastæð- ið er hinum megin götunnar þaðan sem flestir koma. Þrátt fyrir þetta er ekkert umferðarskilti á svæðinu sem varar við eða sýnir gangandi umferð. Óskiljanlegt! Ég vil kalla þetta hættu- og ófremdarástand og óttast að hér verði slys ef ástandið verður óbreytt. Umferðarskipu- lag og skipulagsmál almennt hér á arnarstapa eru í miklum ólestri og verður ekki leyst í einu snatri. En í snatri má setja upp fleiri og skýr umferðarmerki eins og t.d. það sem sýnir hraða og bros- eða fýlukall. Það má e.t.v. setja fleiri þrengingar en þær tvær sem nú eru.“ að lokum skrifar hann: „Ef einhver er í vafa um umferðarþungann þá er auðvi- tað lausnin að setja upp teljara.“ Jón Jóel sendi erindi þetta til vegagerðarinnar og fékk svar síð- astliðinn mánudagsmorgun frá guðjóni H Björnssyni: „Takk fyrir mjög svo góða ábendingu. Þetta er eitthvað sem við þurfum að skoða og reyna að bæta úr. Fyrir nokkrum árum var samþykkt að hámarks- hraði á arnastapavegi væri 50 km og vegurinn merktur samkvæmt því en engar frekari merkingar settar upp. við skoðum þetta og reynum að bæta úr sem fyrst,“ segir guðjón H. Björnsson. mm Lýsir áhyggjum af umferðaröryggi á Arnarstapa og í okkar umsjón eins og reglur Þjóðkirkjunnar segja til um,“ seg- ir dagbjört ákveðin um kirkjuna sína og sinna sveitunga. „Kirkjan sjálf er ekki undir neinu fyrirtæki eða rekstri sem markaðssetur hana sjálf. vinsældirnar eru í raun sjálf- sprottnar, byggðar á augljósu að- dráttarafli staðarins ásamt því að fólk dreifir myndum og myndbönd- um af sínum heimsóknum, athöfn- um og viðburðum í kirkjunni og þannig spyrst það út og fólk sækist eftir því að koma,“ segir dagbjört um vinsældir kirkjunnar. „Því var þetta voða mikið allt í einu kom- ið upp í hendurnar á okkur, þessi aukna vinna við utanumhald og umstang í kringum móttöku og at- hafnir í kirkjunni. Sem kirkjuvörð- ur svara ég öllum fyrirspurnum sem berast á netfang kirkjunnar, buda- kirkja@gmail.com, held utan um allar bókanir og dagatal kirkjunnar svo allt sé skýrt og rekist ekki á. Ég setti einnig upp og sinni vef kirkj- unnar, www.budakirkja.is, þar sem við reynum að koma á framfæri helstu upplýsingum um kirkjuna, stöðu hennar og mögulegt aðgengi að henni. Þar má til dæmis finna húsreglur sem við unnum að síðasta vor og snúa að því að vernda þessa 170 ára gömlu kirkju, viðhalda helgi hennar og skýra línurnar um aðgengi og notkun á kirkjunni fyrir ólíkar athafnir og viðburði. Vill helst hafa kirkjuna opna fyrir alla Það er innheimt gjald fyrir leigu á Búðakirkju og fyrir viðveru kirkju- varðar á leigutíma. Hlutverk dag- bjartar sem kirkjuvarðar í kringum útleigu eru fyrst skrifleg samskipti við fólk um leiguna, miðlun upp- lýsinga og innheimta gjalds. „Síð- an mæti ég og opna kirkjuna á um- sömdum tíma, er þá búin að þrífa og kveikja á ofnum ef þess þarf. Ég er svo til staðar við undirbún- ing eftir þörfum, leiðbeini um stað- setningu myndavélaþrífóta, hljóð- færa eða staðsetningu muna. Kirkj- an er ekki stór og stundum þarf að koma ýmsu fyrir. Munir í kirkjunni eru margir mjög gamlir og verður að umgangast þá varlega, þar kem ég helst að uppsetningu og undir- búningi ef þess þarf. Síðan, á með- an athöfn eða viðburður stendur yfir, þá er ég alla jafnan fyrir utan kirkjuna, læt aðra gesti á svæðinu vita að það sé viðburður eða athöfn í gangi og bið þá um að trufla ekki eða reyna að fara inn í kirkjuna,“ útskýrir dagbjört. „Fólk getur ver- ið mjög ákveðið þegar kemur að því að fá færi á að komast inn í kirkjuna, það koma stundum mörg hundruð manns á dag að Búðum þegar mest er og mikill erill um hlaðið. Fólk kemur gjarnan og vill komast inn meðan á undirbúningi stendur eða um leið og það sér að viðburði eða athöfn er lokið. Það getur verið erf- itt að vísa fólki stöðugt frá og sum- ir vilja gefa í bauk kirkjunnar gegn því að fá að komast inn þrátt fyr- ir að kirkjan sé ekki opin almenn- ingi. Ef ég er á staðnum fyrir eða eftir móttöku, viðburð eða athöfn þá leyfi ég oft fólki að kíkja inn. Ég myndi helst vilja geta haft kirkjuna opna fyrir alla að sjá og upplifa alla daga, en það er ekki hægt eins og er,“ segir dagbjört að endingu. glh Sr. Arnaldur Máni Finnsson, sóknarprestur í Staðastaðarprestakalli, við gifting- arathöfn í sumar. Ljósm. Gunnhildur Lind.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.