Skessuhorn


Skessuhorn - 25.08.2021, Síða 25

Skessuhorn - 25.08.2021, Síða 25
MiðviKUdagUr 25. ÁgúST 2021 25 Þriðja sumarið í röð vinnur hópur sérhæfðs starfsfólks á vegum Land- græðslunnar að mælingum og út- lagningu vöktunarreita víðs veg- ar um landið. Mæling reitanna er hluti gróLindar, langtímaverkefn- is sem hefur það meginmarkmið að vakta ástand gróður- og jarðveg- sauðlindar Íslands. Þær upplýsing- ar sem fást úr vöktuninni eru dýr- mætar þegar kemur að ákvarðana- töku um endurheimt vistkerfa og landnýtingu, segir í tilkynningu frá Landgræðslunni. gróLind er fyrsta verkefnið af þessari stærðargráðu sem ráð- ist hefur verið í á landsvísu og er samstarfsverkefni Landgræðslunn- ar, Landssamtaka sauðfjárbænda, Bændasamtaka Íslands og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins. að jafnaði er unnið í tveimur þriggja manna teymum við útlagningarn- ar. Stór hluti starfsfólks eru sumar- starfsmenn sem hafa hlotið þjálf- un í gróðurgreiningu og mæling- arvinnu. Mælingar verða gerðar í reitunum á fimm ára fresti og verða þær upplýsingar sem þar fást færðar inn í gagnagrunn gróLindar. reit- irnir eru hver um sig 50 x 50 metr- ar að stærð og fylgja flestar mæl- ingar línum sem dregnar eru í kross út frá miðpunkti. Þær upplýsingar sem fást með mælingum í reitun- um eru fjölbreyttar. dýpt og gerð jarðvegs er mæld ásamt gróðurhæð og gróðurþekju. Jafnframt er mæld samsetning gróðurs ásamt gerð og alvarleika rofs ef það er til staðar. Þessar mælingar endurspegla gerð og ástand vistkerfanna sem mæld eru. Mælingarnar verða endur- teknar fimmta hvert ár og verður þá hægt að sjá hvort og þá hvern- ig vistkerfi svæðanna er að breyt- ast, t.d. hvort að rof sé að aukast, minnka eða hvort hlutfall gróður- flokka sé að breytast. alls var gert ráð fyrir 1.499 reit- um á landsvísu en af þeim verða um 1.000 reitir mældir þar sem að ekki er raunhæft að mæla alla reiti m.a. vegna erfiðs aðgengis. Takmarkið er að búið verði að leggja út alla reiti í lok sumars 2024. mm Útlagning gróðurreits á heiðarlandi upp af Lundarreykjadal. Botnssúlur í baksýn. Ljósm. Landgræðslan. Í verkefninu GróLind er ástand gróðurs vaktað sem reyndist honum einstaklega vel þann tíma sem hann dvaldi í Banda- ríkjunum, Steingrímur arason, seinna kennara í Kennaraskólan- um og barnabókahöfundur. Hann var við rannsóknir í New York á ár- unum 1940-’46 og var heimili hans og konu hans orðlagt fyrir gest- risni og hjálpsemi við Íslendinga og vestur-Íslendinga á þessum árum. Steingrímur fór með Pétri og tal- aði fyrir hans hönd við skólastjór- nendur New York háskóla sem varð til þess að umsókn hans um skóla- vist var tekin til athugunar og síð- ar samþykkt. Í viðskiptadeild skól- ans lagði Pétur stund á helstu við- skiptagreinar þess tíma, markaðs- mál, reikningshald og starfsmanna- mál. að auki sótti hann sér fræðslu í ensku, vélritun og hraðritun því hann taldi þetta geta orðið sér gagnlegt þegar heim kæmi. Kynntist Dale Carnegie Frá því er einnig að segja að á með- an ameríkudvölinni stóð gekk Pét- ur í skóla dale Carnegie og kynnt- ist sjálfum dale persónulega og var fyrstur Íslendinga til að ganga í skóla hans. Nú er fræðslustarf í nafni dale Carnegie þekkt um allan heim og stundað hér á landi meðal annars. Markmið Péturs segir hann hafa verið að útrýma feimninni og hræðslu við fólk sem hrjáði hann framan af ævinni. Þeg- ar allt kemur til alls var það dvölin í ameríku sem fleytti Pétri að eigin sögn hvað mest áfram í lífinu hvað atvinnu, félagsstörf og stjórnmál varðar. Eitt ár í háskóla var vissu- lega ekki langur tími og hefði Pét- ur viljað vera lengur en tvennt stóð í vegi þess. Hann átti kærustu á Ís- landi og hafði heitið henni að koma aftur að ári liðnu og efnin leyfðu ekki lengri dvöl. Heimkoman var því sjálfgefin. Þrennt stóð upp úr hjá Pétri eftir ameríkudvölina eins og hann segir í bókinni: Í fyrsta lagi var mjög gagnlegt að læra svolítið um viðskipti, svo sem bókhald, við- skiptasamninga og fleira á því sviði. Í öðru lagi lagði hann sig fram við að yfirstíga feimnina sem háði honum sem ungum gutta. dvöl- in og samneyti við fólk af ólíkum uppruna gerði honum gott í þessu efni. Loks, í þriðja lagi, þroskað- ist Pétur mikið félagslega á dvöl- inni vestra. Bandaríkjamenn kunna manna best að blanda geði við ann- að fólk. Þessi framkoma í fari fólks féll honum afar vel því Pétur var þannig af náttúrunnar hendi gerð- ur að það var honum auðvelt að gefa sig á tal við fólk og fitja upp á umræðum. Aftur heim til Íslands Eftir heimkomuna í ágúst 1945 fór Pétur aftur til starfa hjá Lands- smiðjunni og með nýja sýn á bók- haldi og almennum skrifstofu- störfum. Landssmiðjan varð smám saman umsvifamesta fyrirtækið í málmiðnaði, skipaviðgerðum og innflutningi á ýmsum nauðsynj- um til málmiðnaðarins. Á þessum árum var allur innflutningur í viðj- um hafta og leyfa. gjaldeyrir var af skornum skammti og því ógern- ingur að verða við óskum og sann- kölluðum þörfum á innflutningi. vega þurfti og finna jafnvægi milli innflutnings á vörum til uppbygg- ingar atvinnulífsins og til að verða við óskum fólks um nauðsynjar. Um miðja öldina var skömmtunar- haldið samfara því sem við köllum nú til dags fyrirgreiðslu eða spilling einkennandi fyrir það tímabilið. Árið 1956 bauð Pétur sig fram til alþingis en allt frá skólaárun- um hafði hann brennandi áhuga á stjórnmálum og gekk ungur í al- þýðuflokkinn. Hann bauð sig fram á Snæfellsnesi og náði á þing ef til vill fyrir sakir kosningabandalags, „hræðslubandalags“, Framsóknar- flokksins og alþýðuflokksins. Sag- an segir að allir hreppsbúar Kol- beinsstaðahrepps hafi kosið hann, líka gegnheilir framsóknarmenn. Á þingi sat Pétur fram til 1959 en hann beitti sér mikið fyrir umbót- um í atvinnulífinu, frjálsari við- skiptum og á sviði tryggingamála. Í kosningunum 1959 náði Pétur ekki á þing en var varamaður á þingi í fjölda ára og landskjörinn 1970 fyr- ir Norðurland-vestra. „Afréttarinn“ Péturs verður líklegast lengst minnst fyrir uppbyggingu og stjórnun stórfyrirtækja landsmanna á árunum 1965-´80. Bygging Kísil- iðjunnar við Mývatn var stórmál á sínum tíma. Erfitt var að fá erlenda fjárfesta til að byggja upp iðnað hér á landi og í þá daga væri meira en lítið tekið eftir því ef reist væri spúandi verksmiðja í miðri nátt- úruperlunni Mývatnssveit. Þegar byggingu verksmiðjunnar lauk var Pétur fenginn til að taka að sér að endurreisa ullarverksmiðjuna Ála- foss sem á þessum tíma var stór- fyrirtæki og miklar vonir bundnar við. Áhersla var lögð á að efla út- flutning og afla gjaldeyris sem og að nýta afurðir sauðfjárbænda sem allra best. Ullarvörur voru um tíma sendar út um allan heim, einkum til ameríku og nokkuð til Evrópu- landa. Svipaða sögu má segja um aðkomu Péturs að Norðurstjörn- unni í Hafnarfirði að öll áhersla var lögð á að fullvinna sjávarfangið og selja fyrir gjaldeyri. Áberandi maður í þjóðlífinu Bókin um lífshlaup Péturs Pét- urssonar frá Mýrdal er áhugaverð lesning fyrir þá sem hafa gaman af sögu síðustu aldar. Hann er sjálfur látinn segja sína sögu þó að tuttugu og fimm ár séu liðin frá því hann féll frá. Þeim fækkar vissulega sem muna eftir Pétri sem töluvert áber- andi manni í þjóðlífinu. Kunn- ingjar og samstarfsmenn hans eru margir fallnir frá eins og að lík- um lætur en sú saga sem sonur hans Magnús Pétursson lætur Pét- ur segja bregður upp mynd af tíð- aranda og þjóðfélagi eins og það var á tíma foreldra okkar eða afa og ömmu þeirra sem yngri eru. glh/ Ljósm. aðsendar. Skírteini Péturs eftir að hann lauk Dale Carnegie þegar hann dvaldi í New York á stríðsárunum. Ungur Pétur Pétursson í Mýrdal. Synir Péturs og hálfbræður, Magnús Pétursson og Pétur Pétursson, halda uppi minningu föður síns. Ljósm/ glh.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.