Skessuhorn


Skessuhorn - 01.09.2021, Page 6

Skessuhorn - 01.09.2021, Page 6
MiðVikUdAgUR 1. SEptEMbER 20216 Sjóvá tryggir bæinn AKRANES: Á fundi bæj- arráðs Akraneskaupstaðar í síðustu viku var kynnt niður- staða útboðs á vátryggingum bæjarins og stofnana hans fyrir árin 2022 til og með 2024. bæjarráð samþykkti að gengið verði til samninga við Sjóvá, en tilboð félagsins var lægst í nýafstöðnu útboði. tilboð tM var sjónarmun hærra og missti því af lest- inni að þessu sinni. -mm Atvinnuleysi var 5,2% í júlí LANDIÐ: Atvinnuleysi var 5,2% í júlí 2021 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Saman- burður við júní 2021 sýnir að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi dróst saman um 0,4 pró- sentustig á milli mánaða sem samsvarar fækkun um 900 einstaklinga. Hlutfall starf- andi jókst um 0,5 prósentu- stig á milli mánaða sem sam- svarar 1.500 manna fjölgun. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hefur dregist saman um 2,5 prósentustig á milli ára en atvinnuleysi mældist 7,7% í júlí 2020. -mm Rafmagnslaust í einn dag AKRANES: Veitur hafa til- kynnt um rafmagnsleysi einn dag í næstu viku við nokkr- ar götur á Akranesi. Vegna tengivinnu verður rafmagn tekið af garðabraut, Höfða- braut, Skarðsbraut 2 og 4 og Jaðarsbraut 27-41 mið- vikudaginn 8. september frá klukkan 09:00 til klukk- an 19:00. Nánar má lesa um þetta á veitur.is þar sem fólki er bent á að slökkva á rafmagnstækjum sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Þetta á sérstaklega við um eldavél- ar, mínútugrill og fleiri hit- unartæki. Eins er ráðlegt að slökkva á viðkvæmum tækj- um. Í rafmagnstruflunum er einnig gott að hafa kæli- og frystiskápa ekki opna leng- ur en þörf krefur. Því má við þetta bæta að skrifstofa Skessuhorns verður straum- laus þennan dag og því verð- ur einungis hægt að ná sam- bandi við starfsfólk í farsíma, eða senda reykmerki. -mm Vetraropnun í Guðlaugu tekur gildi AKRANES: Í dag er fyrsti september og þá tekur í gildi vetraropnun í guðlaugu við Langasand. Frá og með deg- inum í dag er opið á mið- vikudögum og föstudögum frá kl. 16:00 til 20:00 og á laugardögum og sunnudög- um frá kl. 10:00 til 18:00. -glh Kvennahlaup LANDIÐ: Sjóvá kvenna- hlaup ÍSÍ verður haldið laugardaginn 11. september. Fyrsta kvennahlaupið var haldið árið 1990 með það markmið að fá fleiri konur út að hreyfa sig og hvetja þær til þátttöku í íþróttastarfi á Íslandi. Í dag er markmið hlaupsins m.a. að efla sam- stöðu kvenna og að eiga ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum. „Hlaupið er árviss viðburður hjá mörgum konum sem taka daginn frá til að hlaupa með dætrum, mæðrum, ömm- um, systrum, frænkum og vinkonum sínum og marg- ir karlmenn slást líka í hóp- inn,“ segir í frétta á vef ÍSÍ. Á Vesturlandi verður hlaup- ið á Akranesi, grundarfirði, Snæfellsbæ, búðardal og á Reykhólum. -arg Óku undir áhrifum VESTURLAND: tveir ökumenn höfðu fengið sér aðeins of marga drykki áður en þeir óku af stað síðastlið- inn sunnudag, 29. ágúst. Var annar þeirra stöðvaður af lögreglu á Vesturlandsvegi skammt utan við borgar- nes. Hinn stöðvaði lögregl- an inni í Hvalfirði. Fóru þau mál bæði í viðeigandi ferli hjá lögreglunni. -arg Ók á kind SNÆFELLSNES: Lög- reglunni á Vesturlandi var tilkynnt um að ekið hafi ver- ið á kind á Snæfellsnesvegi fimmtudaginn 26. ágúst. kindin slasaðist nokkuð en var á lífi. Ekki er þó vitað um afdrif hennar. -arg Akurey Ak-10 kom inn til lönd- unar í grundarfirði á sunnudag- inn. Skipið gerði stutt stopp á með- an löndun stóð yfir og svo var siglt út á miðin aftur. Rétt tæp áttatíu og tvö tonn komu á land og var megn- ið af því þorskur. Það var því mik- il umferð flutningabíla og lyftara á höfninni á meðan löndun stóð yfir sem tók þó skamman tíma. tfk Seðlabankinn tilkynnti um stýri- vaxtahækkun síðastliðinn miðviku- dag, en stýrivextir hækka nú um hvorki meira né minna en 25%, fara úr 1,0% í 1,25%. til að út- skýra þessa ákvörðun segir pen- ingastefnunefnd stofnunarinnar að efnahagshorfur hafi batnað frá fyrri spá og horfur séu á meiri hagvexti í ár en spáð var í maí. Þá var spáð 3,1% hagvexti en nú hljóðar spáin upp á fjögurra prósenta hagvöxt í ár. Sú bjartsýnni spá ræðst að mestu af því að ferðamönnum hefur fjölg- að meira en ráð var fyrir gert og at- vinnuleysi minnkað umfram vænt- ingar. peningastefnunefnd telur enn vera nokkra óvissu um fram- vindu Covid-19 vegna útbreiðslu delta-afbrigðisins. Verðbólguþrýstingur fer nú minnkandi þrátt fyrir að þrýstingur vegna undirliggjandi verðbólgu sé enn mikill. Hækkun vísitölu ræðst að hluta af þenslu á húsnæðismark- aði. Seðlabankinn spáir þó að verð- bólga verði yfir fjórum prósentum út árið en verði komin í markmið á seinni hluta næsta árs. Verðbólgu- markmið Seðlabankans er 2,5% og vikmörk við eitt og fjögur pró- sent. „peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verð- bólga hjaðni aftur í markmið inn- an ásættanlegs tíma,“ segir í yfirlýs- ingu stofnunarinnar. mm Akurey landaði í Grundarfirði Stýrivextir voru hækkaðir um fjórðung

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.