Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2022, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 12.01.2022, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 20228 Ók á bæjarskilti BORGARFJ: Vegagerðin til- kynnti um mannlausan bíl sem hafði hafnað utan vegar við Snældubeinsstaði í Reykholtsdal síðasta laugardag. Haft var sam- band við skráðan eiganda bílsins og kom í ljós að sonur hans hafði lent í ógöngum á bílnum, lent utan vegar og ollið skemmdum á skilti og á bílnum. Vegagerðin er eigandi skiltisins og því á ök- umaðurinn von á reikningi frá henni á næstunni. -vaks Nappaður í símanum BORGARNES: Síðasta fimmtu- dag var ökumaður nappaður við að tala í símann við akstur. Þessi óheppni ökumaður á von á 40 þúsund króna sekt frá yfirvöld- um. Ökumönnum er bent á að það má ekki halda á símanum við akstur og vera með á „speaker“, það þarf að leggja hann frá sér við akstur. -vaks Sofnaði undir stýri HVALFJ.SVEIT: Seinnipart fimmtudags fór bíll út af við Fiskilæk í Melasveit og lenti á girðingu. Ökumaður sagðist hafa sofnað undir stýri og vaknað þegar hann var kominn út af veg- inum. Ástand ökumanns var í lagi en sýnilega þreytulegur að sjá og slapp með lítil meiðsli. -vaks Aflatölur fyrir Vesturland 1.-7. janúar Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 4 bátar. Heildarlöndun: 10.034 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 6.293 kg í einni löndun. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 8.324 kg. Mestur afli: Rán SH: 8.324 kg í einum róðri. Grundarfjörður: 4 bátar. Heildarlöndun: 221.226 kg. Mestur afli: Akurey AK: 142.215 kg í einni löndun. Ólafsvík: 10 bátar. Heildarlöndun: 130.245 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarnason SH: 39.842 kg í fimm löndunum. Rif: 11 bátar. Heildarlöndun: 317.996 kg. Mestur afli: Bárður SH: 72.931 kg í fimm róðrum. Stykkishólmur: 3 bátar. Heildarlöndun: 22.150 kg. Mestur afli: Kári SH: 11.798 kg í tveimur löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Akurey AK – GRU: 142.215 kg. 6. janúar. 2. Harðbakur EA – GRU: 70.881 kg. 5. janúar. 3. Örvar SH – RIF: 53.223 kg. 6. janúar. 4. Tjaldur SH – RIF: 45.034 kg. 6. janúar. 5. Bárður SH – RIF: 26.966 kg. 7. janúar. -arg Mega útskrifa sig sjálfir LANDIÐ: Heilbrigðisráðu- neytið vekur athygli á því að þeir sem lokið hafa sjö daga einangrun eftir staðfest smit af völdum Covid-19 geta nú og mega útskrifa sig sjálfir, að því tilskildu að þeir finni ekki fyr- ir sjúkdómseinkennum. Í til- kynningu kemur fram að Covid göngudeild Landspítala hef- ur alla jafnan samband við fólk fyrir útskrift, en vegna mikils álags er ekki skylt að bíða eft- ir skilaboðum frá Covid göngu- deildinni, að því gefnu að öll skilyrði fyrir útskrift séu upp- fyllt. „Einangrun hefst frá þeim tíma að telja sem fyrir liggur já- kvætt PCR-próf um sýkingu viðkomandi. Hvorki jákvætt heimapróf né hraðpróf telst viðmið fyrir upphaf einangrun- ar.“ -mm Grunnskóla- kennarar semja LANDIÐ: Daginn fyrir gaml- ársdag skrifuðu Félag grunn- skólakennara og samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfé- laga undir nýjan kjarasamning. Samningurinn var undirritaður með rafrænum hætti hjá emb- ætti ríkissáttasemjara. Gild- istími er frá 1. janúar 2022 til 31. mars 2023. „Þetta er í fyrsta sinn sem Félag grunnskóla- kennara og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrita nýj- an kjarasamning áður en gild- andi samningur rennur út. Nýr kjarasamningur fer nú í kynn- ingu meðal félagsmanna Félags grunnskólakennara og hjá Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, en niðurstaða atkvæðagreiðslu um samninginn mun liggja fyr- ir þann 14. janúar 2022,“ segir í tilkynningu frá SÍS. -mm Fíkniefnaakstur BORGARNES: Á þriðju- dag í liðinni viku var ökumað- ur handtekinn um hádegisbil- ið vegna gruns um að aka und- ir áhrifum fíkniefna. Maðurinn var fluttur á lögreglustöðina, blóðsýni tekið og fór mál hans hefðbundna leið. -vaks Kveikjum eld AKRANES: Krakkar gerðu sér það að leik á þriðjudag í síðustu viku að kveikja eld við Melteig á Akranesi um hálftíu leytið að kvöldi. Safnað var í haug sem innihélt púðurkerlingar, hrúga af gömlum skottertum og dag- blöðum. Þegar lögreglan kom á staðinn var búið að slökkva eldinn en rætt var við ung- mennin. -vaks Tekinn próflaus í annað sinn NORÐURÁRD: Á miðviku- dag í síðustu viku var ökumað- ur handtekinn við Hótel Bifröst grunaður um ölvunarakstur. Við nánari grennslan kom í ljós að ökumaðurinn hafði áður ver- ið sviptur ökuleyfi og á því von á mjög hárri sekt. Þá var einnig staðfest fíkniefnanotkun og ölv- un ökumanns. -vaks Kjör íþróttmanns Akraness fór að venju fram á þrettándanum. Þar bar sigur úr býtum Kristín Þórhalls- dóttir kraftlyftingakona sem nýver- ið var einnig kjörin Vestlending- ur ársins fyrir afrek sín. Í öðru sæti varð sundmaðurinn Enrique Snær Llorens Sigurðsson og badminton- konan Drífa Harðardóttir þriðja. Samhliða kjörinu var birt nýtt myndband sem Kristinn Gauti Gunnarsson tók saman og vann að beiðni ÍA en með styrk frá Akra- neskaupstað. Í því má á rúmum þremur mínútum sjá hina fjöl- breyttu flóru íþrótta sem stundað- ar eru innan vébanda Íþróttabanda- lags Akraness. Myndbandið er í senn vel gert og fræðandi um þann fjölda íþrótta sem stundaðar eru. Slóðina á myndbandið má finna á vef ÍA. mm Á þriðjudag í liðinni viku voru 45 ár frá því að leikskólastarf hófst í Grundarfirði en það var 4. janú- ar árið 1977 sem opnaður var leik- skóli í húsi grunnskólans. 15. nóv- ember 1979 varð Leikskólinn Sól- vellir svo til, þegar starfsemin flutti úr grunnskólanum í eigið húsnæði að Sólvöllum 1, þar sem hann er enn í dag. Frá þessum tímamótum segir á vefsíðu Grundarfjarðarbæj- ar. Þar er einnig hægt að lesa um sögu Leikskólans Sólvalla og er hér gripið niður í þá frásögn: „Áður en leikskóli var settur á stofn í Grundarfirði var rek- inn gæsluvöllur fyrir börn und- ir skólaaldri. Það voru kvenfélag- ið Gleym mér ei og Eyrarsveit sem ráku völlinn á sumrin árin 1966- 1979. Leikvöllurinn var byggður árið 1963 og var á opna svæðinu á milli Grundargötu, Hlíðarvegs og Borgarbrautar í Grafarnesi (nú oftast nefnt Þríhyrningur). Síðan var það árið 1974 að nokkrar kon- ur í Grundarfirði komu saman og ákváðu að kanna viðhorf sveitarfé- lagsins og vinnuveitenda til leik- skólareksturs, sem þær og gerðu. Ekki var mikill áhugi fyrir hendi hjá forystumönnum sveitarfélags- ins eða atvinnurekendum og meðal annars sagði einn þeirra; „elskurn- ar mínar, hjá mér eru allar konur komnar úr barneign,“ og fór mál- ið ekki lengra í bili. Árið 1976 var ákveðið að byggja leikskóla á Sól- völlum 1 og voru það Rauðakross- deildin og sveitarfélagið sem stóðu að byggingunni. Valin var bygging frá Einingarhúsum á Siglufirði sem reistu húsið. Í húsinu var ein deild með 42 börnum (21 barn í einu), starfsmannaaðstaða (skrifstofa, kaffistofa, salerni) og geymsla. Framlag Rauðakrossdeildarinn- ar fólst að mestu í sjálfboðavinnu sem félagar inntu af hendi (máln- ingarvinna og annað). Þann 15. nóvember árið 1979 var Leik- skólinn svo formlega opnaður.“ Vegna ytri aðstæðna var ekki hægt að efna til samkomu af ein- hverju tagi í tilefni afmælisins en síðastliðinn föstudag gerðu nem- endur og starfsfólk sér glaðan dag m.a. með kökum og blöðrum. vaks Fyrsta umferð spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, hófst á mánudaginn. Ekki verð- ur útvarpað frá keppnunum á Rás 2 Ríkisútvarpsins eins og verið hef- ur síðustu ár heldur verður beint streymi aðgengilegt á vef RÚV. 29 skólar taka þátt í keppninni í ár. Keppt verður næstu daga og lýkur fyrstu umferðinni á fimmtudags- kvöld. Sigurliðin komast svo áfram í aðra umferð sem verður í næstu viku, 17. og 19. janúar. Hægt verð- ur að fylgjast með öllum viður- eignum í streymi á ruv.is. Föstu- daginn 4. febrúar hefjast svo sjón- varpsútsendingar frá Gettu betur og sjálf úrslitaviðureignin fer fram 18. mars. Covid-19 litar andrúmsloftið í Gettu betur þriðja árið í röð. Að þessu sinni þurfa allir keppend- ur að fara í hraðpróf og þá verð- ur sérstaklega gætt að sóttvörnum í Efstaleiti. Engir áhorfendur eru leyfðir að þessu sinni. Verzlunar- skóli Íslands er handhafi hljóðnem- ans eftir sigur á Kvennaskólanum í úrslitum í fyrra. Tveir skólar af Vesturlandi taka þátt að þessu sinni. Fjölbrauta- skóli Vesturlands á Akranesi mætti Fjölbrautaskóla Suðurnesja í gær- kvöldi og lá niðurstaðan ekki fyrir þegar Skessuhorn var prentað. Þá mun Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi mæta Menntaskólan- um á Tröllaskaga og fer viðureign þeirra fram í kvöld, miðvikudaginn 12. janúar klukkan 19. mm Kynningarmyndband um fjölbreyttar íþróttir á Akranesi Spurningakeppnin Gettu betur er hafin Leikskólabörn í Grundarfirði á göngu fyrir einhverjum árum síðan. Ljósm. Bæring Cecilsson. Leikskólastarf í 45 ár í Grundarfirði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.