Skessuhorn


Skessuhorn - 12.01.2022, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 12.01.2022, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2022 23 Leiðinlegast þegar æfingarnar rekast á Íþróttamaður vikunnar Íþróttamaður vikunnar er nýr liður hjá Skessuhorni. Þar leggj- um við fyrir tíu spurningar til íþróttamanna úr alls konar íþróttum á öllum aldri á Vestur- landi. Fyrst í röðinni er klifur- og fótboltakonan Þórkatla Þyrí frá Akranesi. Nafn? Þórkatla Þyrí Sturludóttir Fjölskylduhagir? Ég er 13 ára, er elst af systkinum mínum og bý hjá mömmu og pabba. Hver eru þín helstu áhugamál? Klifur og fótbolti. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér um þessar mundir? Vakna snemma og fer í skólann, kem heim og les. Svo fer ég á æfingu eða æf- ingar. Hverjir eru þínir helstu kostir og gallar? Erfit að segja það sjálf en ég veit að ég er samviskusöm með mikinn metnað sem kosti. Galli að ég er stundum of vandvirk og lengi að ákveða mig þegar það þarf að velja á milli hluta. Hversu oft æfir þú í viku? Ég fer á sjö æfingar og er æfingartíminn um 11 klst. yfir vikuna og svo er ég auðvitað eins og allir í leikfimi og sundi í skólanum sem er gott fyrir báðar íþróttirnar. Hver er þín fyrirmynd í íþrótt- um? Í klifri er það Brimrún Eir Óðinsdóttir, hún æfði með ÍA og svo Janja Garnbret ólympíumeist- ari. Í fótboltanum er það Hallbera Rún Gísladóttir, hún er eina ÍA stelpan í landsliðinu og spilar í vörn og ég er oftast líka þar. Af hverju valdir þú fótbolta og klifur? Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var í leikskóla og var líka að æfa fimleika áður en ég fór í klifrið. Ég var í 2. bekk og man ekki alveg nákvæmlega en mamma segir að ég hafi sagt að ég hafi strax ver- ið viss um að vera mjög góð í því en ég var alltaf að klifra út um allt áður en ég byrjaði. Hver er fyndnastur af þeim sem þú þekkir? Aldís Ósk í bekknum mínum er mjög fyndin. Hvað er skemmtilegast og leiðinlegast við þína íþrótt? Það sem er skemmtilegt í báðum íþrótt- um eru góðir hópar sem ég æfi með og gaman á æfingum. Leiðinlegast að æfingarnar rekast stundum að- eins á og þá næ ég ekki að vera með í öllu á báðum stöðum. vaks Kraftlyftingakonan Kristín Þór- hallsdóttir var á þrettándanum kjörin Íþróttamaður Akraness árið 2021, en úrslitin voru kunngjörð í Frístundamiðstöðinni á Garða- völlum. Í öðru sæti í kjörinu var sundmaðurinn Enrique Snær Llor- ens Sigurðsson og badmintonkon- an Drífa Harðardóttir í þriðja sæti. Þetta er í annað sinn sem Krist- ín hlýtur þennan titil en hún var einnig kjörin í fyrra. Nýr verðlaunagripur Íþróttamaður Akraness fékk í fang- ið nýjan bikar. Frá árinu 1977 hef- ur Friðþjófsbikarinn verið af- hentur. Það var gert fyrst árið 1991 og var því afhentur í rétt 30 skipti. Nú var sú ákvörðun tekin að leggja hann til hliðar til varðveislu hjá ÍA. Við þessi tímamót var jafn- framt ákveðið að taka í notkun nýjan bikar og hefur hann feng- ið nafnið Helga Dan bikarinn, til minningar um Helga Daníelsson. Helgi Dan var öðrum fremur sá sem kom að því að Íþróttamaður Akraness skyldi valinn árið 1965 og gerði hann það í minningu bróð- ur síns Friðþjófs sem lést ungur af slysförum. Helga Dan þarf vart að kynna fyrir Skagamönnum en hann var ötull félagsmaður í starfi ÍA allt fram á síðasta dag, starfaði sem rannsóknalögreglumaður og ljósmyndari. Helga Dan bikarinn er gefinn af syni Helga, Steini Helgasyni, konu hans Elínu Klöru og börnum þeirra, Steindóru, Írisi, Helga Dan, Helenu og Marellu. vaks Snæfell og Þór Akureyri mættu- st á laugardaginn í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Stykkishólmi. Mikið jafn- ræði var með liðunum í fyrsta leik- hluta, þau skiptust á að ná foryst- unni og staðan 20:18 fyrir Snæfell við lok hans. Baráttan hélt áfram í öðrum leikhluta en Snæfell var þó með undirtökin og náði níu stiga forystu fljótlega í leikhlutanum. Þær náðu að halda því forskoti að hálfleik þó að Þórsstúlkur reyndu hvað þær gátu til að minnka mun- inn en staðan í hálfleik 47:39 fyr- ir Snæfell. Í þriðja leikhlutanum var allt á svipuðum nótum til að byrja með en þá var besti leikmaður Snæfells, Sianni Martin, rekin í sturtu eftir rúman fimm mínútna leik. Þór náði í kjölfarið að koma spennu í leikinn með því að minnka muninn nið- ur í fimm stig. Snæfell kom síðan til baka eftir að hafa jafnað sig eft- ir brottreksturinn, sýndi mikla bar- áttu og munurinn kominn í tíu stig þegar liðin gerðu sig tilbúin fyrir fjórða og síðasta leikhluta, 63:53. Í stuttu máli fór allt í baklás og skrúfuna hjá gestunum í honum því Snæfell vann lokakaflann 26:9. Fyrirliði Snæfells, Rebekka Rán Karlsdóttir, var þar fremst í flokki, átti frábæran leik og Snæfell sigldi sigrinum örugglega í höfn, loka- staðan 89:62 fyrir heimamenn. Stigahæstar hjá Snæfelli voru þær Rebekka Rán með 22 stig, Sianni Martin var með 21 stig og Rósa Kristín Indriðadóttir með 9 stig. Hjá Þór var Heiða Hlín Björns- dóttir með 14 stig og þær Ionna McKensie, Hrefna Ottósdóttir og Marín Lind Ágústsdóttir voru allar með 11 stig hver. Næsti leikur Snæfells er gegn KR þriðjudaginn 18. janúar í Stykkis- hólmi og hefst leikurinn klukkan 18. vaks Kosningu er lokið fyrir Íþrótta- mann Borgarfjarðar árið 2021 og vegna aðstæðna í samfélaginu hef- ur verið ákveðið að hafa hátíðina í ár rafræna, sem sagt með svipuðum hætti og í fyrra. Frá þessu er greint á síðu Ungmennasambands Borg- arfjarðar. Í dag, miðvikudaginn 12. janúar, verður myndband með Íþróttamanni Borgarfjarðar birt á síðu UMSB og á facebook síðu sambandsins. UMSB hefur feng- ið tækninefnd Menntaskóla Borg- arfjarðar með sér í samstarf og ætla þau að klippa saman og útbúa myndband um Íþróttamann Borg- arfjarðar. Alls eru 13 íþróttamenn tilnefnd- ir, sjö konur og sex karlar. Þeir sem eru tilnefndir eru eftirfarandi í staf- rófsröð: Alexandrea Rán Guðnýj- ardóttir kraflyftingar, Bjarki Péturs- son golf, Bjarni Guðmann Jónsson körfubolti, Embla Kristínardótt- ir körfubolti, Erla Ágústsdóttir ólympískar lyftingar, Guðrún Kar- ítas Hallgrímsdóttir frjálsar íþrótt- ir, Heiður Karlsdóttir körfubolti, Helgi Guðjónsson knattspyrna, Jósep Magnússon hlaup, Kolbrún Katla Halldórsdóttir hestaíþrótt- ir, Kristín Þórhallsdóttir kraft- lyftingar, Sigursteinn Ásgeirsson frjálsar íþróttir og Viktor Már Jón- asson knattspyrna. vaks Stjórn KKÍ kom saman á fjarfundi í síðustu viku og tók þá ákvörðun að færa VÍS bikarinn í körfunni til 16.- 20. mars að tillögu mótanefndar. Þetta þýðir að fyrirhuguð VÍS bik- arvika verður ekki leikin í næstu viku. Þetta er gert í ljósi fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun. Smitbylgjan sem nú gengur yfir hefur þegar haft talsverð áhrif á mótahaldið en hund- ruðir einstaklinga eru þátttakendur í VÍS bikarvikunni. mm Bjarki Pétursson kylfingur var Íþróttamaður Borgarfjarðar árið 2020. Ljósm. umsb Tilnefningar til Íþrótta- manns Borgarfjarðar Rebekka Rán Karlsdóttir var öflug í liði Snæfells gegn Þór. Hér í leik fyrr í vetur á móti KR. Ljósm. sá Snæfell vann öruggan sigur á Þór Kristín kjörin Íþróttamaður Akraness Kristín Þórhallsdóttir með nýja verðlaunagripinn, Helga Dan bikarinn, á lofti. Ljósm. vaks VÍS bikarinn færður til mars

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.