Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2022 11
arionbanki.is
Nú er útibú Arion
í Borgarnesi opið frá 10-15
Breyttur opnunartími
Með appinu geturðu átt öll helstu
bankaviðskiptin þín hvaðan sem er
AUGLÝSING UM SKIPULAG –
BORGARBYGGÐ
Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að breytingu
á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Aðalskipulagsbreyting Húsafell í Borgarbyggð
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að auglýsa tillögu að breytingu
á aðalskipulagi í Húsafelli í Borgarbyggð.
Sett er fram stefna um verslun og þjónustu á 5,3ha svæði í landi Húsafells 1 og Bæjargils.
Ástæða breytingar er fyrirhugaður gisti- og veitingarekstur, safn og safnasvæði, vinnustofa,
menningartengd ferðaþjónusta og starfsemi tengd listum. Aðkoma er um héraðsveg (5199).
Í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst tillaga að nýju
deiliskipulagi í Borgarbyggð.
Deiliskipulag Jötnagarðsás í Munaðarnesi
Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti þann 10. febrúar 2022 að
auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi frístundabyggðar Jötnagarðsás 9, 11 og 30-40
í landi Munaðarness í Borgarbyggð.
Deiliskipulagið tekur til 8,75 ha svæðis með 13 frístundalóðum. Aðkoma að lóðum er um
Jötnagarðsás sem tengist Þjóðvegi 1. Eldra skipulag frá árinu 1989 mun falla úr gildi. Tillagan
samræmist Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022.
Ofangreindar skipulagsáætlanir eru aðgengilegar á heimasíðu Borgarbyggðar www.
borgarbyggd.is frá 21. febrúar til og með 6. apríl 2022. Ef óskað er eftir nánari kynningu á
ofangreindum tillögum þarf að panta tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera
athugasemd við auglýstar skipulagstillögur og er frestur til að skila inn athugasemdum til
6. apríl 2022. Athugasemdum skal skila skriflega í Ráðhús Borgarbyggðar, Bjarnabraut 8,
310 Borgarnesi, b.t. skipulagsfulltrúa eða á netfangið skipulag@borgarbyggd.is
eða thjonustuver@borgarbyggd.is.
Borgarbyggð, 16. febrúar 2022
Skipulagsfulltrúi Borgarbyggðar.
Verktakar hafa staðið vaktina síð
ustu daga við að halda götunum
ökuhæfum víða um land. Snjó hef
ur kyngt niður í Grundarfirði eins
og annarsstaðar og hafa stórvirkar
vinnuvélar verið á ferðinni við að
hreinsa burt snjóinn sem ökumenn
og gangandi vegfarendur komist
leiðar sinnar. Búið er að moka upp
í gríðarstóra snjóhauga víðs vegar
um bæinn þar sem yngri kynslóðin
freistast til að nýta í snjóhúsagerð
og sleðabrautir.
tfk
Snjóþungt í Grundarfirði