Skessuhorn


Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 202222 Framboðstilkynningar: Bára býður sig ekki fram aftur Bára Daðadóttir, sem hefur verið bæjarfulltrúi fyrir Sam­ fylkinguna á Akranesi síðustu fjögur ár, tilkynnti það á face­ book síðu sinni á mánudags­ kvöldið að hún hafi ákveðið að bjóða sig ekki aftur fram til starfa í bæjarstjórn næsta kjör­ tímabil. „Undanfarin fjögur ár hef ég setið í bæjarstjórn Akraness og verið formað­ ur skóla­ og frístundaráðs. Að hafa fengið tækifæri til þessara starfa eru forréttindi að mínu mati og ég er mjög þakklát fyrir það. Ég tel okkur hafa verið að vinna vel og að góðum verkefnum fyrir bæ­ inn okkar. Bæjarstjórnarstarf­ ið er að mestu unnið síðdegis og á kvöldin. Tíma sem hent­ ar alls ekki fjölskyldufólki en á kjörtímabilinu minnkaði ég líka starfshlutfallið mitt (svona þegar ég var ekki í fæðingaror­ lofi) til þess að ná að halda öll­ um boltunum mínum á lofti. Ég hef því ákveðið að bjóða mig ekki aftur fram til starfa í bæjarstjórn þetta kjörtímabil og njóta seinnipartanna og kvöldanna með fjölskyldunni og minnka púsluspilið,“ seg­ ir Bára meðal annars í færslu sinni. vaks Davíð gefur kost á sér Davíð Sigurðsson í Miðgarði, sem skipar annað sæti á lista Framsóknarflokksins í Borg­ arbyggð, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér að nýju á lista flokksins. „Við höfum staðið vaktina sem minnihluti og bent ótal sinnum á hluti sem við töldum að ætti að gera á annan hátt og stundum fengum við áheyrn og stund­ um ekki. Þannig er það bara, ég viðurkenni að það tekur á taugarnar að ná ekki alltaf sínu fram en þannig er það bara í lífinu,“ segir Davíð m.a. í færslu á Facebook síðu sinni. „Þrátt fyrir að það hafi ver­ ið misjafnlega skemmtilegir tímar á kjörtímabilinu þá hef ég tekið ákvörðun um að gefa aftur kost á mér á lista Fram­ sóknarflokksins fyrir kosn­ ingar í vor og ég er búinn að tilkynna uppstillingarnefnd um það,“ skrifaði Davíð. mm Stofnfundur Hjólreiðafélags Vest­ urlands verður haldinn á Bara Öl­ stofu Lýðveldisins að Brákarbraut 3 í Borgarnesi þriðjudaginn 22. febrúar næstkomandi eða, 22.02.22 kl. 20:02. Síðastliðið haust var það Helgi Guðmundsson sem plant­ aði litlu fræi í tvo Facebook hópa, Hjólað í Borgarbyggð og Samhjól Vesturlandi, þar sem hann viðraði þá hugmynd við meðlimi hópanna hvort það væri ekki áhugi fyrir því að stofna hjólreiðafélag. Vel var tekið í hugmyndina og strax hent í fund í kjölfarið. „Það voru fimmt­ án manns sem mættu á fundinn, sem var svona hálfgerður upplýs­ ingafundur. Aðalmarkmiðið var að athuga hvort það væri áhugi fyr­ ir því að stofna hjólreiðafélag yfir höfuð,“ útskýrir Guðríður Hlíf Sigfúsdóttir sem hefur verið hluti af ákveðnum undirbúningshópi sem settur var á laggirnar í kjöl­ far upplýsingafundarins. Ásamt henni í undirbúningshópnum eru Helgi Guðmundsson, Anna Hall­ dórsdóttir, Sigurkarl Gústavsson og Haukur Erlingsson. „Við buð­ um okkur öll fram til að undirbúa stofnfund sem verður núna næst­ komandi þriðjudag, 22. febrúar.“ Allir Vestlendingar velkomnir í félagið Félagið verður kallað Hjólreiða­ félag Vesturlands og verður Vest­ lendingum öllum velkomið að vera með í því. „Við hugsuðum að til þess að þetta yrði stórt og öflugt félag að gefa öllum á Vesturlandi tækifæri á að vera með,“ útskýr­ ir Guðríður. „Pælingin er einnig að þetta á að vera opið fyrir all­ ar tegundir reiðhjólaiðkunar og á öllu getustigi. Það getur verið að það verða einhverjar deildir innan félagsins seinna meir, en við eigum eftir að sjá betur hvernig því verð­ ur háttað eftir stofnfundinn,“ bæt­ ir hún við. Helstu markmiðin eru að fá fleiri iðkendur í sportið, auka aðstöðu til hjólreiða bæði innanhúss og utan­ dyra og einnig að auka fræðslu, halda námskeið, bæta við hjólaleið­ um og þar fram eftir götum. „Það eru fullt af skemmtilegum leiðum hérna í kring og viljum við gera þær enn betri og bæta við leiðum. Okk­ ur langar líka að kynna svæðið okk­ ar hérna á Vesturlandi og fá fólk til að staldra lengur við heldur en bara í sjoppunum. Til dæmis í Borgar­ nesi, þá sérðu fullt af fólki með hjól á þakinu keyra hérna í gegnum bæ­ inn, en það er ekkert að koma hing­ að til að hjóla heldur frekar fer það norður eða eitthvað álíka. En ef upplýsingar um hjólaleiðir yrðu að­ gengilegri, þá myndi það kannski stoppa aðeins lengur við í bænum.“ Hefur alltaf hjólað En hvað hefur þú hjólað lengi? „Ég er frekar ný í þessu sporti,“ svar­ ar Guðríður og hlær. „Ég hef alltaf hjólað og þótt það rosalega gaman. En svo langaði mig að gera eitthvað meira með hjólið. Ég keypti mér nýtt hjól 2019 og kom mér í sam­ band við Dagnýju Pétursdóttur og þau sem voru á kafi í hjólreiðunum hérna í Borgarnesi. Það vildi líka til að á svipuðum tíma og ég fékk nýja hjólið hafði Dagný skipulagt hjól­ reiða námskeið í Borgarnesi. Ég skráði mig og kom mér á sama tíma betur inn í þennan heim,“ bæt­ ir Guðríður við um hjólaferilinn sinn en hún hjólar mest megnis á fjallahjóli. „Þetta er svo fjölbreytt sport. Ég, Dagný og Helgi erum til dæmis á fjallahjólunum. Hann Sigurkarl er meira í götuhjólum og sumir í bæði eins og hann Haukur, hann á öll hjólin,“ bætir hún við og hlær. Hjólreiðar sem heilsueflandi og útiveruaukandi „Ég vil hvetja sem flesta til þess að prufa hjólreiðar. Í dag er um margar mismunandi gerðir að velja og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Má þar nefna götu, mal­ ar, fjalla, rafmagns og innanhúss hjólreiðar,“ segir Dagný Péturs­ dóttir, hjóla og náttúruelskandi eins og hún gjarnan kallar sig. „Að hjóla fer afar vel með skrokkinn og eykur þolið mjög fljótt, hvort sem þú vilt hugsa um þær til heilsuefl­ ingar eða eingöngu til afþreyingar með það í huga að njóta í náttúr­ unni. Einnig er hrikalega gaman að finna aftur gleðina þegar hjólað er og má nefna það að hjólreiðar auka á þessa barnsgleði við hreyf­ ingu, sem við töpum gjarnan þegar við eldumst,“ bætir hún við. „Raf­ hjólin eru um þessar mundir að koma sterk inn og er það frábært því margir sem hefðu ekki farið á venjuleg hjól finna sig algjörlega á rafmagninu þar sem það hjálp­ ar við ákveðnar aðstæður. Ég hvet ykkur sem flest að mæta og prufa og það má alltaf hafa samband,“ segir Dagný glöð. Hægt er að hafa samband í gegnum Facebook hóp­ inn, Hjólreiðafélag Vesturlands, eða finna Dagnýju á Facebook og spyrja hana út í hjólreiðar. Allir hvattir til að mæta á stofnfund Ein af ástæðum þess að stofna til hjólreiðafélags var meðal annars til að auðvelda styrktar umsókn­ ir. „Styrkirnir verða meðal annars nýttir til að búa til brautir í skóg­ ræktarlandi, fá þjálfun og líka styrk til að senda fólk á þjálfaranámskeið svo við getum verið með okkar eig­ in þjálfara í heimabyggð. Við vilj­ um fjárfesta í einhverju sem myndi svo skila sér áfram í samfélagið okkar,“ útskýrir Guðríður bjartsýn að endingu. Eins og fyrr kemur fram þá verð­ ur stofnfundur Hjólreiðafélags Vesturlands haldinn á Bara Ölstofu Lýðveldisins næstkomandi þriðju­ dag kl. 20:02 og eru allir sem hafa einhvern áhuga á hjólreiðum á öll­ um getustigum hvattir til að mæta á fundinn. glh Lukkulegur hjólreiðahópur í júní 2020 eftir árlega Skarðsheiðarför. Hefð hefur verið að fara fyrsta laugardag í júní ár hvert og hjóla Skarðsheiðina. Stefnt er að því að fara 4. júní næstkomandi og verður það fimmta árið í röð sem það verður. Ljósm. aðsend. Stofnfundur Hjólreiðafélags Vesturlands verður haldinn í Borgarnesi Mæðgurnar Guðríður Hlíf og Þórdís Hrefna. Dagný Pétursdóttir, hjóla- og náttúruelskandi og einn af forsprökkum hjólreiða í Borgarnesi. Ljósm. aðsend.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.