Skessuhorn


Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 21

Skessuhorn - 16.02.2022, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2022 21 112 dagurinn er haldinn hátíðlegur hjá viðbragðsaðilum 11. febrúar ár hvert, en þá minna viðbragðsaðilar á sig og brjóta aðeins upp daginn. Í Grundarfirði fóru viðbragðsað­ ilar einn hring um bæinn á föstu­ daginn með tilheyrandi hávaða og ljósasýningu. Þeir stoppuðu stutt við Grunnskóla Grundarfjarðar þar sem krökkunum gafst tækifæri á að skoða herlegheitin. Svo var haldið áfram og stoppað nálægt leikskól­ anum þar sem yngsta kynslóðin fékk að virða þessa vælandi bifreið­ ar fyrir sér. tfk Rauði krossinn á Akranesi hefur keypt nýtt húsnæði fyrir deildina. Það er á Kirkjubraut 12 í rými þar sem Modus var áður til húsa. Að sögn Úrsúlu Áradóttur formanns deildarinnar er nýja húsnæðið mun hentugra fyrir starfsemina og í al­ faraleið. Í desember á síðasta ári seldi Rauði Krossinn á Akranesi fyrra húsnæði sitt sem er við Skóla­ braut 25a. Akranesdeild Rauða krossins var stofnuð 4. júní 1941. Félagsmenn eru um 800 og virkir félagar um 50. Starfsemin árið 2020 til 2022 hef­ ur markast af kórónufaraldrinum og legið niðri tímabundið en ver­ ið vakin upp þegar sóttvarnarregl­ ur hafa leyft. Skyndihjálparnám­ skeið hafa verið stór þáttur í starfi deildarinnar. Fyrirtæki og einstak­ lingar á öllu Vesturlandi hafa nýtt sér námskeiðin og deildin býr að mjög hæfum og áhugasömum leið­ beinendum. Prjónahópur er bæði fjáröflunarhópur og góður félags­ skapur kvenna sem búa til og selja prjónavörur. Aðaláherslan hefur verið á sölu á endurnýttum lopa­ peysum. Heimsóknarvinir er hóp­ ur fólks innan Rauða krossins sem nú bíður þess að opið verði fyr­ ir heimsóknir til þeirra sem þess óska. Matarklúbbur og Skvísuhóp­ ur eru hópar sem hittast reglulega og vinna að því að rjúfa félagslega einangrun t.d. nýbúa og erlendra íbúa á Akranesi, veita stuðning og mynda tengsl. Börn og umhverfi eru vel sótt námskeið fyrir unglinga sem haldin eru á hverju ári. vaks Viðbragðsaðilar í Snæfellsbæ óku um sveitarfélagið á sunnudaginn með blikkandi ljósum og sírenum í tilefni af 112 deginum sem var síð­ asta föstudag. Endaði fjörið í björg­ unarstöðinni Von í Rifi þar sem gestum gafst kostur á að skoða hin ýmsu tæki viðbragðsaðila ásamt því að í boði var Svali fyrir börnin. Á hverju ári er lögð áhersla á ákveðið málefni við þetta til­ efni og að þessu sinni var það að vinna gegn hvers konar ofbeldi en ofbeldis hegðun hefur farið vax­ andi síðustu tvö ár sem Covid far­ aldurinn hefur geisað. Við þetta sama tækifæri afhenti Slökkvilið Snæfellsbæjar viðurkenningu fyr­ ir eldvarnagetraun en á hverju ári heimsækja slökkviliðsmenn nem­ endur í 3. bekk grunnskólanna og fræða þá um eldvarnir. Börnin fá svo með sér heim handbók um eldvarnir heimilisins og söguna af Brennu­Vargi og Loga og Glóð. Þeim gefst einnig kostur á að taka þátt í eldvarnagetrauninni en heppnir þátttakendur fá svo jafnan afhent vegleg verðlaun á 112 deg­ inum og var engin breyting á því í ár. Að þessu sinni var það Egill Míó Jóhannsson sem var dreginn út og fékk hann viðurkenninguna sína af­ henta við þetta tækifæri. þa Rauði krossinn festir kaup á nýju húsnæði Úrsúla Árnadóttir, formaður Akranesdeildar RKÍ, og Róbert Gíslason frá Pacta við undirskrift kaupsamningsins. Nýja húsnæðið á Skólabraut 12. Á myndinni með Agli Míó eru slökkviliðsmennirnir Emanúel Þórður Magnússon, Matthías Páll Gunnarsson, Birgir Tryggvason og Kjartan Hallgrímsson. Viðbragðsaðilar á ferðinni á 112 deginum Ekið eftir Ólafsbrautinni. 112 dagurinn í Grundarfirði Björgunarsveit, sjúkrabíll og slökkviliðsbílar röðuðu sér upp við Kjörbúðina þar sem hægt var að skoða. Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri í grunnskólanum stóðst ekki mátið og skellti sér upp á beltahjól björgunarsveitarinnar Klakks. Mateusz Moniuszko björgunarsveitarmaður hjá Klakki í björgunarsveitarbíln- um. Dominik Bajda sjúkraflutningamaður er við hliðina á honum. Þessum fannst ansi forvitnilegt að skoða inn í sjúkrabílinn og virða búnaðinn fyrir sér. Yngstu íbúar Grundarfjarðar fengu líka að skoða og fannst spennandi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.