Skessuhorn - 09.03.2022, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 9. MARS 20222
Leggja til
breytingar á gælu-
dýrahaldi í fjölbýli
LANDIÐ: Þingmenn Flokks
fólksins hafa lagt fram frumvarp á
Alþingi sem felur í sér breytingu
á lögum um gæludýrahald í fjöl
eignarhúsum. Þar er m.a. lagt
til að hunda og kattahald í fjöl
eignarhúsi verði ekki háð sam
þykki annarra eigenda. Gert er
ráð fyrir að húsfélag geti sett
nánari reglur um hunda og
kattahald á húsfundi með sam
þykki allra eigenda, enda séu þær
eðlilegar, málefnalegar og á jafn
ræði reistar. Þó eru reistir var
naglar en í frumvarpinu segir:
„Húsfélag getur með samþykki
tveimur þriðja hluta eigenda lagt
bann við dýrahaldi ef það veld
ur öðrum íbúum verulegum ama,
ónæði og truflunum og eigandi
dýrsins neitar að gera bót þar á.“
-mm
Ólsari góður
í tippinu
LANDIÐ: Það var Ólafsvíkingur
sem var með alla leikina 13 rétta
á enska getraunaseðlinum síðast
liðinn laugardag og vann rúmar
930 þúsund krónur. Í tilkynningu
frá Íslenskri getspá kemur fram að
hann var með sex leiki tvítryggða
og sjö með einu merki og kostaði
seðillinn 896 krónur. Fast á eftir
honum kom Siglfirðingur, einnig
með 13 rétta og fær sá 915 þús
und krónur í sinn hlut. Hann var
með fimm leiki tvítryggða og átta
með einu merki og kostaði seð
illinn 448 krónur. Tve i r tipparar
voru svo með 13 rétta á Sunnu
dagsseðlinum og hlutu þeir rúm
ar 300 þúsund krónur í sinn hlut.
-mm
Hjólhýsi
splundraðist
SVÍNADALUR: Í snörpum
suðaustan hvelli síðastliðinn
föstudagsmorgun losnaði hjól
hýsi á Þórisstöðum í Svínadal,
fauk og splundraðist. Björgunar
félag Akraness var kallað út til
verðmætabjörgunar. -mm
Lækka greiðslu-
þátttöku
LANDIÐ: Hámarksgreiðsla
aldraðra, örorkulífeyrisþega,
barna og ungmenna í fyrsta
þrepi greiðsluþátttökukerf
is lyfja lækkar um 20%, eða úr
14.000 kr. í 11.000 kr., samkvæmt
nýrri reglugerð heilbrigðis
ráðherra sem tekur gildi 1. apr
íl. „Breytingin er í samræmi við
markmið stjórnvalda um að draga
úr greiðsluþátttöku fólks fyrir
heilbrigðisþjónustu með áherslu
á að bæta stöðu viðkvæmra hópa
og jafna aðgengi fólks að heil
brigðisþjónustu. Framlag ríkis
sjóðs vegna þessarar breytingar
nemur um 270 milljónum króna
á ársgrundvelli,“ segir í tilkynn
ingu frá heilbrigðisráðuneytinu.
-mm
Úrslitin í Söngvakeppni Sjón-
varpsins um hvaða lag verður val-
ið til að keppa fyrir Íslands hönd
í Eurovision fer fram á laugar-
dagskvöldið á RÚV. Margir bíða
spenntir og þá sérstaklega börn-
in sem virðast hafa miklar mætur
á keppninni. Svo erum við þessi
eldri sem fussum og sveium yfir
þessu og tuðum yfir því að þetta
hafi nú verið miklu betra í gamla
daga. Aðal málið er þó kannski
að horfa á þetta með jákvæð-
um huga, fá sér popp og kók og
mynda smá stemningu með fjöl-
skyldu og vinum. Það er morgun
ljóst að ekki veitir af á þessum
víðsjárverðu tímum og kannski
bara upplagt að lyfta sér aðeins
upp í hversdagsleikanum.
Á fimmtudag verður vaxandi
suðaustanátt, 10-18 m/s síðdegis.
Rigning, fyrst suðaustan og aust-
anlands en norðaustlægari og
slydda eða snjókoma norðvest-
an til fram eftir degi. Lengst af úr-
komulaust á Norðurlandi. Hlýn-
ar í veðri. Á föstudag er gert ráð
fyrir suðaustan og sunnan 10-
18 m/sek og rigningu eða skúr-
um, en úrkomulítið fyrir norðan.
Hiti 3 til 8 stig. Á laugardag er út-
lit fyrir minnkandi suðlæga átt og
skúr eða slydduél, en bjartviðri á
Norður- og Austurlandi. Hiti 0 til
5 stig. Á sunnudag má búast við
fremur hægri suðlægri átt og úr-
komulítið en dálítil væta við suð-
austurströndina síðdegis. Hiti 2 til
6 stig yfir daginn.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hefur þú greinst
með Covid?“ Meira en helming-
ur sagði „Nei,“ eða 56% af þeim
sem tóku þátt, 41% sagði „Já, einu
sinni“ en aðeins 2% sögðu „Já,
tvisvar eða oftar.“
Í næstu viku er spurt:
Hvað hlustar þú á í bílnum?
Vinkonurnar Jófríður Jara Sturlu-
dóttir, Sigurveig Sara Elvarsdótt-
ir, Maren Rún Jónsdóttir, Hekla
María Davíðsdóttir, Regína Rún
Hauksdóttir og Guðrún Mar-
grét Halldórsdóttir komu fær-
andi hendi fyrr í vikunni og af-
hentu Rauða krossinum á Akra-
nesi samtals 62.500 krónur sem
þær höfðu safnað til styrktar
starfi Rauða krossins í Úkraníu.
Þær eru Vestlendingar vikunnar
að þessu sinni.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Menntaskóli Borgarfjarðar hlaut á
mánudaginn viðurkenningu frá Ís
landsdeild Amnesty International
sem mannréttindaskóli ársins 2021.
Þetta er í fyrsta sinn sem skólinn
sigrar í þessari keppni og hlaut hann
verðlaunin fyrir frammistöðu sína í
framhaldsskólakeppni samtakanna.
Nemendur skólans söfnuðu alls
475 undirskriftum sem voru hlut
fallslega flestar undirskriftir miðað
við nemendafjölda í framhaldsskól
Skagafiskur á Akranesi var að
bæta við sig vinnslu sem er stað
sett við Faxabraut niður við höfn
ina og hófst vinna þar upp úr ára
mótum. Að sögn Péturs Ingasonar,
annars eiganda Skagafisks, byrjuðu
þau með smá prufukeyrslu í desem
ber til að sjá hvernig þetta virkaði
og hafa verið að bæta í síðan. „Við
erum búin að panta nýja roðflettivél
sem við fáum eftir mánuð og erum
að byggja upp vinnsluna í rólegheit
um svona samhliða rekstrinum á
búðinni.“ Skagafiskur er bæði versl
un og dreifingaraðili fyrir fersk
an fisk og segir Pétur að stefnan sé
að auka þann hluta og þess vegna
eru þau komin með þessa vinnslu.
„Planið er að allur fiskur verði unn
inn í vinnslunni og komi pakkaður
hingað upp eftir í verslun ina. Við
búum til alla fiskréttina hér í versl
uninni en öll grófari vinnsla mun
fara fram í vinnslunni. Við keypt
um alltaf allan fisk af fiskheildsala
í Hafnarfirði en núna kaupum við
hann á fiskmörkuðunum og erum
því alltaf með ferskasta fisk sem
hægt er að fá,“ segir Pétur.
Húsnæðið er rúmir 100 fermetr
ar og segir Pétur að þau reikni með
að hafa þarna þrjá til fjóra starfs
menn en það sé erfitt að fá vant fólk
í þessi störf. „Við erum með einn
starfsmann núna, sem er að flaka og
svo erum við Jónheiður að hlaupa í
þetta með að roðfletta og slægja og
þess háttar. Það er bara viðbót sam
hliða því sem við erum að gera hér.
Svo þegar nýja roðflettivélin kem
ur mun það spara hellings tíma fyr
ir okkur. Við ákváðum að kaupa
litla og netta vél sem á eftir að flýta
mikið fyrir. Aðal vandamálið er að
finna starfsfólk en við höfum verið
að leita að starfsfólki í einn og hálf
an mánuð en ekki gengið nógu vel,“
segir Pétur að lokum. vaks
Að minnsta kosti tvö sveitarfélög á
Vesturlandi hafa óskað eftir upplýs
ingum frá íbúum í þeim um mögu
legt leiguhúsnæði, íbúðarhúsnæði/
herbergi, til leigu. Þetta er gert til
að svara kalli stjórnvalda sem vinna
nú að undirbúningi móttöku flótta
fólks frá Úkraínu á næstu dögum.
Þetta kemur fram á vefsíðum Akra
neskaupstaðar og Snæfellsbæjar.
Þeir sem hafa upplýsingar um
laust íbúðahúsnæði eru beðnir um
að hafa samband við viðkomandi
sveitarfélag þar sem þarf að koma
fram hver er eigandi húsnæðis,
staðsetningu þess (íbúð/herbergi),
stærð á íbúðarhúsnæði og áætlað
leiguverð. vaks
Menntaskóli Borgarfjarðar
Mannréttindaskóli ársins 2021
um á landinu. Menntaskóla Borgar
fjarðar er umhugað um að fræða
nemendur um mannréttindi sín
og annarra enda eru mannréttindi
einn af grunnþáttum menntunar.
Auk þess er sérstaklega mikilvæg t
á þessum tímum að huga að því að
efla virðingu fyrir mannréttindum.
vaks
Á myndinni má sjá þau Völu Ósk
Bergsveinsdóttur fræðslustýru
og Árna Kristjánsson, ungliða
og aðgerðastjóra frá Amnesty á
Íslandi, afhenda Daníel Fannari
formanni NMB og Sölva G.
Gylfasyni kennara verðlaunin.
Ljósm. MB
Sveitarfélög leita að íbúðarhúsnæði
fyrir flóttafólk frá Úkraínu
Jónheiður og Jónína
Björg voru að flaka
ýsu í nýju húsnæði
Skagafisks þegar
blaðamaður Skessu-
horns kíkti við hjá
þeim í gær.
Skagafiskur stækkar við sig