Skessuhorn - 16.03.2022, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 7
BORGARBYGGI>
ÍBÚAFUNDUR UM SKÓLASTEFNU
Borgarbyggð stendur fyrir íbúafundi vegna skólastefnu sveitarfélagsins. Um
er að ræða lokaþáttinn í þeirri vinnu sem unnin hefur verið í samstarfi við
skólastofnanir Borgarbyggðar og hagsmunaaðila.
Ingvar Sigurgeirsson, f.v. prófessor í kennslufræði verður fundarstjóri og mun
vera leiðandi í þeirri vinnu sem farið verður í.
Fundurinn verður haldinn 22. mars nk., kl. 20:00 í Hjálmakletti.
Áhugsamir eru hvattir til þess að mæta, enda mikilvægt að íbúar séu
þátttakendur í þessari vinnu.
Skráning fer fram á heimasíðu Borgarbyggðar, www.borgarbyggd.is.
Júlíana, hátíð sögu og bóka, verð-
ur haldin dagana 24.-26. mars
í Stykkishólmi og verður þetta
viðamesta hátíðin frá upphafi. Að
hátíðinni standa að þessu sinni
þær Ásdís Árnadóttir, Gréta Sig-
urðardóttir, Nanna Guðmunds-
dóttir og Sunna Guðný Högna-
dóttir. „Það verður rosalega
skemmtileg dagskrá hjá okkur í ár,
eins og alltaf,“ segir Gréta ánægð
í samtali við Skessuhorn.
Hátíðin verður formlega sett
í kirkjunni fimmtudagskvöldið
24. mars kl. 20:00 þar sem Litla
lúðrasveitin mun leika nokkur
lög og nemendur kynna það sem
þeir hafa verið að gera í samstarfi
grunnskólans og Júlíönu hátíð-
ar veturinn 2021. Hólmari ársins
verður heiðraður fyrir framlag
til menningarmála auk þess sem
verðlaun verða afhent í smásagna-
samkeppni. „Við höfum alltaf lagt
mikið upp úr samstarfi við grunn-
skólann og ákváðum að auka sam-
starfið í ár og bjóða öllum nem-
endum frá 5.-10. bekk að taka
þátt, en við höfum áður bara boð-
ið þremur bekkjum í einu,“ segir
Gréta. Gunnar Theodór Eggerts-
son rithöfundur kom og vann með
krökkunum að skapandi skrifum
fyrir hátíðina. Var áhersla lögð á
þjóðsögur eða Íslendingasögurn-
ar. Afrakstur samstarfsins verður
kynntur í Amtsbókasafninu föstu-
daginn 25. mars kl. 11:00.
Yrsa Þöll Gylfadóttir mun
lesa fyrir nemendur í fyrsta bekk
í hádeginu á föstudeginum og
Sveinn Davíðsson mun syngja og
spila á gítar á Dvalarheimilinu kl.
14:00 sama dag. Þá verða ýmsir
skemmtilegir viðburðir fram eftir
degi. Um kvöldið mun Ragnhild-
ur Sigurðardóttir frá Álftavatni
segja sögur Guðríðar Þorbjarnar-
dóttur í kirkjunni og svo mun
Anton Helgi Jónsson skáld flytja
tilgátuljóð sín við ljóð Jónasar
Hallgrímssonar. Á laugardeginum
verður boðið upp á Júlíönusúpu í
Narfeyrarstofu kl. 11:30. Þar mun
Bergsveinn Birgisson rithöfund-
ur hitta leshópinn sem hefur ver-
ið að lesa bókina hans „Leitin að
svarta víkingnum“ í aðdraganda
hátíðarinnar. „Leshópurinn hef-
ur verið að lesa þessa bók und-
ir stjórn Ólafs Ólafssonar Sýslu-
manns og bókaunnanda,“ seg-
ir Gréta. Þá verður skemmtileg
dagskrá í kirkjunni í Stykkishólmi
þar sem Einar Kárason kemur og
fjallar um Sturlunga og annað
fólk. Kl. 15:00 verður kaffisala í
Safnaðarheimilinu þar sem kven-
félagskonur verða með kaffi og
meðlæti. Steinunn Jóhannesdótt-
ir rithöfundur verður í kirkjunni
eftir kaffi þar sem hún mun fjalla
um Reisubók Guðríðar Símonar-
dóttur. Um kvöldið verður hátíð-
inni slitið með söng og gleði í
kirkjunni. Hægt er fylgjast með
viðburðum hátíðarinnar á Face-
book síðu Júlíönu-hátíð sögu og
bóka.
arg
Dómsmálaráðherra hefur hleypt
af stokkunum gagngerri endur-
skoðun á skipulagi sýslumanns-
embætta landsins meðal annars til
að fylgja eftir skýrslu um framtíðar-
sýn í starfsemi sýslumanna sem
ráðuneytið gaf út í mars árið 2021
og til þess að bregðast við skýrslum
og úttektum sem gerðar hafa verið
á starfsemi og rekstri sýslumanns-
embættanna undanfarin ár. „Mark-
miðið er að efla núverandi starf-
semi þannig að úr verði nútíma-
legar þjónustueiningar, einskon-
ar stjórnsýslustöðvar ríkis í heima-
byggð, sem veita framúrskarandi
þjónustu, óháð staðsetningu borg-
arans eða stjórnsýslustöðvarinn-
ar. Framangreind endurskoðun
dómsmálaráðherra hefur jafn-
framt skýra samsvörun við áherslur
í byggðamálum, sem koma meðal
annars fram í hvítbók um byggða-
mál, sem var útgefin af samgöngu-
og sveitastjórnarráðuneytinu í maí
árið 2021,“ segir í tilkynningu frá
dómsmálaráðuneytinu.
Fyrirætlanir ráðherra hafa verið
kynntar sýslumönnum og áformin
tekin til umræðu. Munu ráðherra
og starfsmenn ráðuneytisins jafn-
framt heimsækja öll sýslumanns-
embættin á næstu vikum til að ræða
málin nánar og halda vinnufundi
með starfsfólki. Þannig er áætlað
að áformin verði unnin í nánu sam-
starfi við sýslumenn og starfsfólk
þeirra.
Með breyttu skipulagi telur ráð-
Stefna að stafrænum og skilvirkum
stjórnsýslustöðvum sýslumanna
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra. Ljósm. úr safni Skessuhorns.
herra einnig hægara um vik að fela
starfsstöðvunum ný verkefni hins
opinbera sem snúa að þjónustu við
almenning og er undirbúningur
þess þegar hafinn hjá ráðuneytinu.
Hver starfsstöð verði áfram öflug-
ur vinnustaður í heimabyggð til að
þjónusta bæði heimamenn og allt
landið, ásamt því að málsmeðferðin
verður skilvirkari, samræmdari
og vandaðri. Þá skapast sveigjan-
leiki með innleiðingu nútímalegri
stjórnsýsluhátta sem auðveldar
starfsfólki að vinna verkefni hvar
sem er á landinu og eru því tækifæri
fyrir hendi að geta boðið starfsfólki
upp á störf án staðsetningar í anda
opinberrar stefnu þar um.
Fyrirhugað er að ljúka almennu
samráði og undirbúningsvinnu
fyrir næsta haustþing og leggja þá
fram frumvarp um breytta högun
sýslumannsembætta landsins.
mm
Júlíana framundan í Stykkishólmi
Frá verðlaunaafhendingu í ljóða-
samkeppni Júlíönu hátíðar í fyrra. F.v.
Sigþrúður Silja Gunnarsdóttir, formað-
ur dómnefndar, Ægir Þór Jahnke sem
hlaut 1. verðlaun í ljóðasamkeppninni,
Birna Hjaltadóttir sem hlaut 2. verð-
laun og Sigrún Björnsdóttir, sem hlaut
3. verðlaun. Ljósm. úr safni/ Anna
Melsteð.
Sími 433 5500 • skessuhorn.is
Starf blaðamanns
á Skessuhorni
Skessuhorn – fréttaveita Vesturlands, auglýsir starf
blaðamanns laust til umsóknar.
Viðkomandi þarf að hafa áhuga á umfjöllun um líf og störf íbúa á
Vesturlandi, en starfssvæðið nær frá Hvalfirði í suðri, um Akranes,
Borgarfjörð, Snæfellsnes og Dali og í Reykhólasveit. Aðalskrifstofan
er á Akranesi, en til greina kemur að viðkomandi hafi búsetu á
öðrum stöðum innan starfssvæðisins.
Skessuhorn ehf. rekur samnefnt vikublað og vef. Miklar breytingar
eru framundan á fréttavef okkar og felur starfið m.a. í sér umsjón
með honum, auk almennra fréttaskrifa og viðtala.
Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á íslensku máli í ræðu og
riti, sem og staðgóða kunnáttu í ensku og notkun samfélagsmiðla.
Þá þurfa umsækjendur að geta unnið sjálfstætt, hafa áhuga á
málefnum líðandi stundar, hafa góða samskiptahæfileika, sýna
frumkvæði og metnað.
Umsóknir sendist á netfangið; skessuhorn@skessuhorn.is
fyrir 27. mars nk. Ráðið verður í starfið við fyrsta hentugleika.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Magnússon ritstjóri í
síma 894-8998.