Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2022, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 16.03.2022, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 9 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900 CONVOTHERM VANDAÐIR OFNAR FYRIR ÞINN REKSTUR Convotherm 4 easyDial Vandaður ofn með 7 skúffum Þægilegt viðmót - hentar smærri eldhúsum Convotherm 4 easyDial Vandaður ofn með 11 skúffum Þægilegt viðmót - hentar stærri eldhúsum Aðalfundur 2022 Stjórnendafélagsins Jaðars á Akranesi verður haldinn í Gamla Kaupfélaginu mánudaginn 21. mars kl 20:00 Dagskrá Venjuleg aðalfundarstörf a. Skýrsla stjórnar b. Reikningar félagsins c. Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga d. Kosning stjórnarmanna og varamanna e. Kosning skoðunarmanna reikninga f. Kosning í orlofsnefnd g. Tilnefning á aðal- og varafulltrúa í stjórn Sambands stjórnendafélaga Sumarhús félagsins að Norðurási 9, Kambshólslandi Svínadal, 301 Akranesi a. Umræður um sumarhús Eyþór Óli Frímannsson Kynningar- og menntafulltrúi STF Flytur erindi um kynningar og menntamál. Einar Óskarsson Varaform. Stjórnendafélags Vesturlands Flytur erindi um samruna félaga á Vesturlandi. Jóhann Baldursson Forseti og framkvæmdastjóri STF Aðildarfélögin og STF. Innra starf,staða og þróun til framtíðar. S K E S S U H O R N 2 02 2 Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar fimmtudaginn 10. mars var samþykkt að fela sveitarstjóra að undirrita samning um sölu á fasteign sveitarfélagsins í landi Grímsstaða í Reykholtsdal. Húsið var upphaflega byggt sem íbúðar- hús á jörðinni en hýsti síðustu árin leikskólann Hnoðraból sem nú hef- ur verið fluttur á Kleppjárnsreyki. Húsið var í eigu Borgarbyggð- ar og stendur á leigulóð í landi Grímsstaða sem er í eigu Guð- mundar Kristinssonar og Jóhönnu Steinunnar Garðarsdóttur, en þau eru jafnframt kaupendur að hús- inu. Húsið er 195,6 fm að stærð og var byggt árið 1977 og þarf eign- in töluvert viðhald. Fasteignamat er 17,8 milljónir króna og þar af er húsið metið á 13,5 milljónir og lóðin á rúmlega 4,2 milljónir. Sölu- verð hússins er 7,5 milljónir og hef- ur það þegar verið fullgreitt, að því er fram kemur í kaupsamningi sem birtur var á vef Borgarbyggðar í síðustu viku. arg Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. föstudaginn 18. febrúar hvatti hafnarstjórn Faxaflóahafna sveitar- félagið Hvalfjarðarsveit til að bæta við skilgreindu svæði í botni Hval- fjarðar sem mögulegt vatnstöku- svæði í endurskoðun sinni á aðal- skipulagi sveitarfélagsins. „Með því verði haldið opn- um möguleikum á áframhaldandi uppbyggingu á Grundartanga en forsenda hennar er að svæðinu verði tryggt nægjanlegt vatn til framtíðar,“ segir í fundargerð. Á Grundartanga starfa um 20 iðn- og þjónustufyrirtæki og um 1.110 manns vinna þar að jafnaði, auk þess sem rekja má um 2.100 afleidd störf til starfsemi á svæðinu. Mik- ill áhugi hefur verið að undan- förnu á lóðum á Grundartanga og í nágrenni undir atvinnustarfsemi og krefst það meira vatns. arg Borgarbyggð selur hús sem áður hýsti Hnoðraból Hvetja til að bætt verði við skilgreindu vatnstökusvæði

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.