Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2022, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 16.03.2022, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 202230 Hvað er skemmtilegast við það að vinna á leikskóla? Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Margrét Helga Jóhannsdóttir „Fjölbreytnin.“ Hulda Sigríður Höskuldsdóttir „Passa börnin.“ Elísabet Birgisdóttir „Að enginn dagur er eins og líka hvað krakkarnir eru skemmti- legir og hópurinn fjölbreyttur.“ Salbjörg Ósk Reynisdóttir „Mjög gefandi starf og einnig að enginn dagur er eins.“ Margrét Aradóttir „Þegar maður sér að maður nær árangri í sínu starfi.“ Íþróttamaður vikunnar Íþróttamaður vikunnar er nýlegur liður hjá Skessuhorni. Þar leggjum við fyrir tíu spurningar til íþrótta- manna úr alls konar íþróttum á öll- um aldri á Vesturlandi. Íþrótta- maður vikunnar að þessu sinni er knattspyrnukonan Minela Crnac frá Ólafsvík. Nafn: Minela Crnac Fjölskylduhagir: Bý í Ólafsvík með foreldrum mínum. Hver eru þín helstu áhugamál: Mín helstu áhugamál eru fótbolti og líkamsrækt. Hvernig er venjulegur dagur hjá þér um þessar mundir: Flest- ir dagar eru eiginlega eins hjá mér. Ég fer í skólann og þegar ég er búin í skólanum fer ég að vinna. Ég er að þjálfa stelpur í fótbolta hér á Snæfellsnesinu og eftir vinnu þá tek ég æfingu, fer í ræktina eða fer sjálf út í fótbolta þegar veður leyfir. Hverjir eru þínir helstu kost- ir og gallar: Mínir helstu kostir eru að ég er ákveðin og með mikið keppniskap. Gallarnir eru að ég er mjög tapsár, það hata allir að tapa. Hversu oft æfir þú í viku: Eg reyni að æfa fimm til sjö sinnum í viku en í minnsta lagi tek ég fimm æfingar í viku. Hver er fyrirmynd þín í íþrótt- um: Mín fyrirmynd í íþróttum er Zlatan Ibrahimovic vegna þess að hann er bara geggjaður leikmaður og einnig bróðir minn, hann Anel Crnac. Hann er að láta draumana sína rætast í fótbolta og vinnur hart fyrir öllu sem hann vill í lífinu. Af hverju valdir þú knattspyrnu: Ég valdi knattspyrnu vegna þess að þegar ég var yngri þá vildi ég gera allt eins og stóri bróðir minn. Þegar hann fékk síma þá þurfti ég að fá síma, þegar hann byrj- aði að æfa fótbolta þá þurfti ég að byrja að æfa fótbolta. Svo byrjaði hann og pabbi minn alltaf að fara út í fótbolta með mér og reyna að kenna mér að skjóta í bolta. Þá kom áhuginn og hef æft síðan ég var sex ára. Hver er fyndnastur af þeim sem þú þekkir: Ég myndi segja Sylvía Dís Scheving besta vinkona mín, hún lætur mig alltaf hlæja sama hvernig skapi ég er í. Hvað er skemmtilegast og leiðinlegast við þína íþrótt: Skemmtilegast við mína íþrótt er að maður getur alltaf spilað íþróttina. Ef manni líður illa fer maður bara í fótbolta, ef manni líður vel fer maður bara í fótbolta. Síðan eru ferðalögin líka mjög skemmtileg. Að ferðast saman í rútu og gista saman, það er alltaf jafn gaman. Leiðinlegast við mína íþrótt er þrekæfingar og útihlaup á Íslandi í hálku og kulda. Er mjög tapsár Deildarkeppni BSÍ í badminton fór fram um síðustu helgi í TBR húsinu í Reykjavík. Alls tóku 16 lið frá sjö félögum þátt í keppninni en keppt var í þremur deildum; Úrvalsdeild, 1. deild og 2. deild. Badmintonfé- lag Akraness sendi lið til keppni í 2. deild en þar voru átta lið skráð og spiluðu þau í tveimur fjögurra liða riðlum. Í sínum riðli tapaði ÍA í fyrsta leik fyrir BH/TBS 3-5, gerði síðan jafntefli við TBR-Jóakúlurnar 4-4 og unnu síðan Hamar 6-2 í síð- asta leik sínum í riðlinum.Eftir það kepptu öll liðin einn leik í viðbót, um sæti eitt til átta. Um fyrsta sætið í 2. deild kepptu TBR-Jóakúlurnar og TBR-Sleggj- ur og unnu Jóakúlurnar viður- eignina 5-3 í hörkuleik og eru því Íslandsmeistarar í 2. deild 2022. Skagamenn léku gegn Aftureldingu í leik um þriðja sætið og unnu öruggan 6-2 sigur. vaks Í síðustu viku lauk keppni á Íslands- móti öldunga í keilu 2022. Guð- mundur Sigurðsson frá ÍA og Snæfríður Telma Jónsson frá ÍR stóðu uppi sem sigurvegarar eft- ir úrslitakeppni þriggja efstu. Þetta er í þriðja skiptið sem Guðmund- ur landar þessum titli og hefur þar með jafnað Rögnu Matthíasdóttur sem vann þetta mót einnig þrisvar sinnum á sínum glæsta keiluferli. Snæfríður Telma var að vinna þetta mót í fyrsta sinn. vaks Liðsmenn Guðjóns Þórðarsonar í knattspyrnuliði Víkings Ólafsvíkur hafa ekki getað æft á Ólafsvíkurvelli síðustu mánuði vegna snjóa á vellinum. Í síðustu viku mættu þeir ásamt stjórnarmönnum í félaginu fyrir æfingu til að ryðja völl- inn og flýta fyrir því að snjóinn taki upp svo hægt sé að æfa á vellinum og spila heimaleikina sem eftir eru af Lengjubik- arnum. Eitthvað verður þó umhleypinga- samt áfram þannig að þeir gætu þurft að moka aftur en best er þó að hreinsa völl- inn jafnóðum svo ekki safnist svona mikill snjór sem verður svo að klaka. þa Lið ÍA sem varð í þriðja sæti á mótinu um helgina. Ljósm. bsí Badmintonfélag ÍA náði þriðja sætinu Snæfríður Telma og Guðmundur eru Íslandsmeistarar öldunga í keilu árið 2022. Ljósm. klí Guðmundur Íslands- meistari öldunga Hreinsa völlinn til að hægt verði að spila þar heimaleiki

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.