Skessuhorn - 16.03.2022, Page 10
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 202210
Á sjöunda tímanum á þriðjudags-
kvöldið í síðustu viku var Slökkvi-
lið Grundarfjarðar kallað út vegna
elds í atvinnuhúsnæði við Sólvelli
5 í Grundarfirði. Fljótlega var ljóst
að um stórbruna væri að ræða og
var kallað eftir liðsauka frá Slökkvi-
liði Snæfellsbæjar. Í húsinu voru
þrjú fyrirtæki starfrækt. Húsið var
mannlaust þegar eldurinn gaus upp
og var fólk því ekki í hættu. Vindátt
var hagstæð að því leyti að vindur
stóð af atvinnuhúsnæði Ragnars og
Ásgeirs ehf. sem er skammt frá hús-
inu sem brann.
Slökkvistarfi lauk á tíunda tíman-
um um kvöldið og var ljóst að um
altjón var að ræða á húsinu og því
sem í því var.
tfk
Altjón þegar verkstæðishús brann í Grundarfirði
Horfðu á verkstæðið sitt fuðra upp
Þriðjudaginn 8. mars síðastliðinn
varð laus eldur í Bifreiðaþjón-
ustu Snæfellsness að Sólvöllum
5 í Grundarfirði. Þar eru einnig
fyrirtækin Rútuferðir og Álfar og
Tröll til húsa en rekstraraðilar allra
þessara fyrirtækja eru hjónin Hjalti
Allan Sverrisson og Lísa Ásgeirs-
dóttir. Ljóst er að tjónið er umtals-
vert enda húsið gjörónýtt og allt
sem í því var. Það var þung brúnin
á eigendunum þegar ljósmyndari
Skessuhorns kíkti á þau hjón-
in á meðan stórvirkar vinnuvélar
voru að rífa niður rústirnar síðasta
laugardag.
„Við vorum ágætlega tryggð en
það bætir að sjálfsögðu ekki allan
skaðann sem við urðum fyrir,“ seg-
ir Lísa Ásgeirsdóttir í stuttu spjalli
við fréttaritara. „Nú liggur mest á
að finna húsnæði til leigu þar sem
við getum þjónustað rúturnar okk-
ar og vonandi skýrist það á næstu
dögum,“ bætir hún við, en Snæ-
fellsnes Excursions er rútufyrir-
tæki sem sér um strætóferðir og
skólaakstur á svæðinu.
„Sem betur fer þá sluppu allar
rúturnar við skemmdir og því get-
um við haldið ótrauð áfram með
þann rekstur. Við vitum ekki alveg
hvernig þetta þróast enda stutt síð-
an þetta gerðist. Okkur lá mest á
að fjarlægja rústirnar enda er þetta
slysagildra ef einhverjir færu að
flækjast þarna,“ segir Hjalti, en
niðurrifi og hreinsunarstarfi var að
mestu lokið á sunnudeginum. „Nú
þurfum við bara að sjá til hvað við
gerum. Byggjum aftur eða reyn-
um að finna hentugt húsnæði und-
ir starfsemina en þetta þarf allt að
vega og meta næstu vikur,“ segir
hann.
„Svo viljum við þakka kærlega
fyrir þann samhug sem við höfum
fundið síðustu daga frá öllum. Eins
eiga slökkviliðin tvö sem komu að
þessu sérstakt hrós skilið því liðs-
menn þeirra stóðu sig frábærlega.“
Það var ekki neina uppgjöf af
finna á þeim hjónum, þó verkefnin
framundan séu krefjandi. tfk Lísa Ásgeirsdóttir og Hjalti Allan Sverrisson fyrir framan brunarústirnar.
Vinnuvél með krabbakló byrjuð að rífa verkstæðið niður. Stærðar skurðgrafa byrjuð að moka rústunum upp í gáma.
Myndir sem teknar voru daginn eftir brunann.