Skessuhorn


Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 11

Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 11 Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi • JAFNRÉTTI • VIRÐING • FJÖLBREYTILEIKI ALLAR UPPLÝSINGAR UM NÁMSBRAUTIR OG NÁM VIÐ FVA ER AÐ FINNA Á WWW.FVA.IS INNRITUN FER FRAM Á WWW.MENNTAGATT.IS ÖLL VELKOMIN, SÉRSTAKLEGA NEMENDUR 10. BEKKJAR GRUNNSKÓLA OG FORRÁÐAMENN ÞEIRRA. NÁNAR AUGLÝST SÍÐAR. OPIÐ HÚS 25. apríl kl. 17-19 í sal FVA INNRITUN STENDUR YFIR KOMDU Í FVA! NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: GUÐRÚN NÁMS- OG STARFSRÁÐGJAFI - GUDRUNS@FVA.IS JÓNÍNA ÁFANGASTJÓRI - JONINA@FVA.IS Fjölbrautaskóli Vesturlands • Vogabraut 5, 300 Akranes • 433 2500 • skrifstofa@fva.is 25. apríl til 10. júní Innritun nemenda í 10. bekk Innritun nemenda í dreifnám 15. mars til 22. apríl Innritun eldri nemenda í dagskóla 1. maí til 31. maí Á liðnum mánuðum hefur starfs- hópur unnið að undirbúningi að stofnun sjálfseignarstofnun- ar Vestur lands, NýVest ses., sem ætlað er að hýsa Nýsköpunarnet á Vesturlandi. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi höfðu frumkvæði af því að ýta verkefnin úr vör og hefur undirbúningur verið fjármagnaður úr byggðaáætlun. „Nýsköpunarnetið er fyrir alla; fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög og einstaklinga. Því er ætlað að tengja saman ólíka hópa, miðla upplýsing- um, aðstoða frumkvöðla og fræða þá sem hafa áhuga á þróun atvinnu- lífs og nýjum verkefnum. Á Vestur- landi eru öflug fyrirtæki, öflugir skólar og drífandi einstaklingar, sem mikilvægt er að tengja mun betur saman en áður í því skyni að nýta sem best þau tækifæri sem til staðar eru í þróun atvinnulífs og nýsköpun,“ segir í tilkynningu. Stjórnvöld og sveitarfélög beina nú sjónum sínum í auknum mæli að nýsköpun og stuðningi við frum- kvöðla. „Því er mikilvægt að á Vesturlandi sé til staðar vettvang- ur og breið samstaða allra þeirra sem stutt geta við jákvæða þró- un atvinnumála og þar með sterk- ari búsetuskilyrði. Skilgreina má hugtakið „nýsköpun“ með ýmsum hætti – en rétt er að hafa í huga að nýsköpun þarf ekki að vera fjarlæg „geimvísindi“. Við horfum til þess að sérhver hugmynd til þróunar, nýbreytni, markaðssetningar eða starfsemi innan skapandi greina geta átt erindi við NýVest. Tilgangur NýVest er m.a. tenging hagsmunaaðila, aðstoð við styrkumsóknir, styrkjabrunnur – upplýsingar um styrki, tengilið- ur mismunandi aðila; atvinnulífs, skóla og rannsókna og faglegur stuðningur. Við munum stofna NýVest form- lega 6. apríl næstkomandi og allir sem áhuga hafa á því að gerast stofn- aðilar eru boðnir velkomnir. Stofn- framlag er tíu þúsund krónur fyr- ir einstaklinga og 30 þúsund krón- ur fyrir fyrirtæki og stofnanir. Nú þegar hafa verið stofnuð þróunar- setur og Fab Lab smiðjur á Vestur- landi og fleiri eru í undirbúningi. Með þátttöku í NýVest ses. legg- ur hver og einn sitt af mörkum við að efla atvinnulíf á Vesturlandi og skapa enn betri skilyrði til búsetu. Við hvetjum alla að taka þátt – því jákvæð þróun byggist á samstöðu og krafti þeirra sem láta sig mál- in varða. Þátttöku geta áhugasamir tilkynnt á netfangið ssv@ssv.is fyr- ir 23. mars nk,“ segir í tilkynningu frá starfshópi um stofnun Nýsköp- unarnets. mm Dreymir um nýsköpun. Ljósm. úr safni/ Steina Matt. Hvetja til þátttöku í stofnun Nýsköpunarnets Vesturlands Leikdeild Skallagríms sýnir hinn stórskemmtilega íslenska söngleik Slá í gegn í leikstjórn Elfars Loga Hannessonar. Söngleikurinn er eftir Guðjón Davíð Karlsson (Góa). Innblástur verksins er sóttur í lög Stuðmanna. Þetta er í fyrsta sinn sem áhugaleikfélag setur þennan söngleik á svið. Næstu sýningar verða í Félagsheimilinu Lyngbrekku sem hér segir: 5. Sýning Fimmtudaginn 17. mars klukkan 20:00 6. Sýning Föstudaginn 18. mars klukkan 20:00 7. Sýning Laugardaginn 19. mars klukkan 20:00 8. Sýning Sunnudaginn 20. mars klukkan 20:00 9. Sýning Þriðjudaginn 22. mars klukkan 20:00 10. Sýning Fimmtudaginn 24. mars klukkan 20:00 Miðaverð: 3500 krónur fyrir 14 ára og eldri 1500 krónur fyrir 13 ára og yngri 2500 krónur fyrir öryrkja og eldri borgara Miðapantanir eru í síma 696-1544 (Haffi) og einnig á netfangið: leikdeildskalla@gmail.com S K E S S U H O R N 2 02 2 Slá í gegn í Lyngbrekku

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.