Skessuhorn - 16.03.2022, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 13
2021 - 2024
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ.
Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af
þessum gildum.
Starfshlutfall er breytilegt eftir þörfum. Umsóknarfrestur er til og með 21. mars nk.
Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri. Umsóknir óskast fylltar út á vinbudin.is
Nánari upplýsingar: Emilía Ingadóttir, borgarnes@vinbudin.is – 560 7862
og Thelma Kristín Snorradóttir, starf@vinbudin.is – 560 7700.
Vínbúðin Borgarnesi leitar að jákvæðum og röskum einstaklingum
sem eru tilbúnir að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu.
Hæfniskröfur
• Jákvæðni og góð þjónustulund
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Helstu verkefni og ábyrgð
• Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
• Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
• Umhirða búðar
ÁTVR rekur 51 Vínbúð um allt land. Stefna fyrirtækisins er að vera í hópi
bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Fyrirtækið vill að vinnustaðurinn sé öruggur, heilsueflandi og skemmtilegur
þar sem samskipti einkennast af lipurð, þekkingu og ábyrgð.
Lífleg sumarvinna fyrir
tvítuga og eldri
SUMAR
VINNUR ERU
SKEMMTILEGRI
EN AÐRAR
VÍNBÚÐIN BORGARNESI
• Bílasprautun • Bílaréttingar • Framrúðuskipti
BÍLASPRAUTUN VESTURLANDS
Sími: 860-0708 • bv.sprautun@gmail.com
Vinnum fyrir öll tryggingafélög
Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hef-
ur samþykkt tillögu þar sem lagt er
til að snjómokstur stíga- og gang-
stétta í bænum verði þjónustuflokk-
aður og tímasettur í verklagsreglum
á sam bærilegan hátt og snjómokstur á
götum bæjarins. Sviðsstjóra umhverf-
is- og skipulagssviðs hefur verið falið í
samráði við bæjarstjóra að útfæra til-
löguna.
Í greinargerð með tillögunni seg-
ir að meginmarkmið snjómoksturs sé
að minnka þau óþægindi sem snjór
og hálka getur valdið. „Hvað varð-
ar snjómokstur á stígum og gang-
stéttum kemur fram í verklagsreglun-
um að fyrst séu mokaðar fjölfarn-
ar gönguleiðir sem liggja að skóla og
leikskólum, því næst helstu stofnun-
um sveitarfélagsins. Þær áætlanir eru
ekki með tímasett markmið í verklags-
reglum. Þar á eftir eru aðrar fjölfarn-
ar gönguleiðir mokaðar. Með mokstri
gönguleiða er með reglunum stuðl-
að að góðum og öruggum samgöng-
um fyrir gangandi vegfarendur.“ Það
er tekið fram að markmið tillögunnar
sé að opna helstu leiðir sem liggja að
skólum á morgnana og „setja tímasett
markmið í þeim efnum sem og stuðla
að góðum samgöngum fyrir gangandi
vegfarendur og íbúar séu upplýstir um
forgangsröðun með birtingu upplýs-
inga með myndrænum hætti á heima-
síðu sveitarfélagsins.“
arg/ Ljósm. Visit Stykkishólmur.
Svandís Svavarsdóttir matvæla-
ráðherra kynnti á mánudaginn
nýtt upprunamerki, Íslenskt stað-
fest. Merkið á við um vörur sem
eru framleiddar og þeim pakk-
að á Íslandi og mun það auðvelda
neytendum að velja íslenskt. Til
að mega nota merkið þurfa fram-
leiðendur að ábyrgjast að hráefni
sé íslenskt og framleiðsla hafi far-
ið fram hér á landi. Kjöt, egg, sjáv-
arafurðir og mjólk skal í öllum til-
fellum vera 100% íslenskt. Allt að
25% innihalds í blönduðum/unn-
um matvörum má vera innflutt.
Svar við ósk neytenda
Í tilkynningu frá matvælaráðu-
neytinu kemur fram að neytend-
ur vilja skýrar upplýsingar um
uppruna matvöru og betri upp-
runamerkingar. Yfirgnæfandi
meirihluti, eða tæp 90% lands-
manna, vill velja íslenskt. Þá telja
um 20% svarenda að þeir hafi
Íslenskt staðfest er nýtt upprunamerki fyrir matvörur og blóm
Matvælaráðherra og forsvarsmenn Bændasamtaka Íslands kynntu nýja merkið
við athöfn í Hörpu.
upplifað að hafa verið blekktir
við innkaup hvað varðar uppruna
matvöru. Rúm 70% neytenda
segjast óánægðir með að erlend-
ar kjötafurðir séu seldar undir
íslenskum vörumerkjum og 63%
svarenda óska þess að innlend-
ar matvörur verði upprunamerkt-
ar. Ríflega 80% neytenda kjósa
íslenskar vörur í verslunum sé þess
kostur. Þessar niðurstöður fengust
úr viðamikilli könnun sem Gallup
gerði fyrir Icelandic Lamb á síð-
asta ári.
Bændasamtök Íslands eiga og
reka nýja upprunamerkið. Vott-
unarstofan Sýni sér um úttekt-
ir hjá þeim fyrirtækjum sem kjósa
að nota það, en enginn má nota
merkið nema hafa til þess leyfi sem
sótt er um sérstaklega, gangast
undir staðal merkisins og uppfylla
opinberar kröfur til sinnar starf-
semi. mm/ Ljósm. Stjórnarráðið.
Merkið á við um vörur sem eru framleiddar og þeim pakkað á Íslandi.
Auka áherslu á snjómokstur
fyrir gangandi vegfarendur