Skessuhorn - 16.03.2022, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 202218
Í síðustu viku kynnti Sjálfstæðis-
flokkurinn í Borgarbyggð fram-
boðslista sinn fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar í vor. Nýtt fólk á vett-
vangi sveitarstjórnarmála skipar
efstu sæti listans fyrir utan oddvita
hans, en Lilja Björg Ágústsdótt-
ir verður áfram í forystu. Á þessu
kjörtímabili hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn skipað meirihluta í sveitar-
stjórn ásamt VG og Samfylkingu.
Lilja Björg hefur setið í byggðar-
ráði auk þess að vera forseti sveitar-
stjórnar. Blaðamaður Skessuhorns
settist niður með Lilju Björg á
skrifstofu hennar í Borgarnesi í síð-
ustu viku. Hennar aðalstarf eru nú
lögfræðistörf hjá Opus lögmönn-
um en hún er einn eigenda stof-
unnar og hennar sérsvið á þeim
vettvangi er sifjaréttur. Lilja Björg
er fjögurra barna móðir og eigin-
kona, gift Þorsteini Pálssyni raf-
magnstæknifræðingi, og eru þau
búsett á Signýjarstöðum II í Hálsa-
sveit. Fjölskyldan mun reyndar nú í
vor taka sig upp og flytur í nýupp-
gert hús sem Halldór E Sigurðsson
byggði við Þórunnargötu í Borgar-
nesi.
Dalakona búsett
í Borgarfirði
Lilja Björg er fædd og uppalin í
Búðardal. Þegar grunnskóla lauk
þurfti hún eins og önnur ungmenni
í Dölum að hleypa heimdraganum
til að sækja framhaldsskóla og var
stefnan tekin á nám í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi. Lilja
Björg er menntaður grunnskóla-
kennari og síðar lögfræðingur frá
Háskólanum á Bifröst, tók það-
an bæði grunn- og masterspróf.
Þá hefur hún sömuleiðis aflað sér
réttinda sem héraðsdómslögmaður.
„Ég bjó á Akranesi í tvö ár en flutti
svo til Reykjavíkur og þar átti ég
elsta son minn með þáverandi sam-
býlismanni. Síðar kynnist ég Þor-
steini, fyrst bjuggum við í Reykja-
vík og eitt ár í Vogum áður en við
fluttum í Borgarfjörðinn. Synir
mínir eru fjórir, sá yngsti er fimm
ára og sá elsti verður 21 á árinu.
Tveir þeir eldri eru að læra raf-
virkjun en þeir yngri eru í leik- og
grunnskóla á Kleppjárnsreykjum.
Árið 2006 flytjum við fjölskyldan
í Borgarfjörðinn og ég fékk vinnu
við Kleppjárnsreykjaskóla. Sam-
hliða starfi leiðbeinanda þar tók ég
kennarapróf frá HÍ í fjarnámi. Mér
finnst kennarastarfið skemmtilegt
og gefandi en lokaritgerðin mín
fjallaði um lestrarkennslu yngstu
barnanna. Við byggjum okkur svo
hús á spildu úr landi Signýjarstaða
þar sem við höfum búið síðan. Við
höfum nú keypt hús í Borgarnesi en
ætlum áfram að eiga húsið okkar í
sveitinni enda ræturnar þar sterkar.
Með flutningi í Borgarnes sé ég
fyrst og fremst kostina að þurfa
minna að aka til og frá vinnu og
tíminn með fjölskyldunni verður að
sama skapi meiri,“ segir Lilja Björg.
Virða mörk vinnu
og einkalífs
Aðspurð hvernig það gangi upp
að standa fyrir stóru heimili, starfa
sem lögmaður og sitja jafnframt
í sveitar stjórn, svarar Lilja Björg
að það krefjist skipulagningar.
„Þetta getur stundum verið flókið
púsluspil. Ég er í 80% vinnu sem
lögmaður og lít þannig á að sveit-
arstjórnarstörfin og nefndarseta sé
20% starf, en það er í takti við þau
launakjör sem okkur eru reiknuð.
Ég reyni að þjappa minni vinnu
fyrir sveitarfélagið saman og skila
henni sem mest á fimmtudögum,
en þá eru m.a. fundir í byggðarráði
en samt er vinnuframlagið mun
meira. Með þessu móti er ég að
reyna að stilla vinnunni þannig af
að fjölskyldan fái einnig sinn tíma.
Eins styður eiginmaðurinn 100%
við bakið á mér en þetta væri erfitt
öðruvísi,“ segir Lilja Björg. Til að
fá frið segist hún jafnvel slökkva á
símanum á kvöldin. „Það þarf að
finna þetta jafnvægi milli vinnu og
einkalífs, það er öllum nauðsyn-
legt,“ segir hún staðföst.
Rennur blóðið
til skyldunnar
Þátttaka Lilju Bjargar í pólitíkinni í
Borgarbyggð hófst árið 2012. „Mín
fyrstu kynni af störfum að málefn-
um sveitarfélagsins var að ég tók
að mér sem ópólitískur fulltrúi
nefndarsetu í fræðslunefnd. Árið
2014 var ég á lista hjá Sjálfstæðis-
flokknum, skipaði þá fjórða sætið,
og man að það vantaði einung-
is örfá atkvæði að ég fengi þá sæti
í sveitarstjórn. Í síðustu kosning-
um skipaði ég svo oddvitasætið
líkt og ég geri núna. Okkar mark-
mið í kosningunum í vor verður að
endurheimta fyrri styrk og stefn-
um óhikað á þrjá eða fjóra fulltrúa í
sveitarstjórn.“
Aðspurð segir Lilja Björg að það
taki langan tíma að komast inn í
þau mál sem fjallað er um á vett-
vangi sveitarstjórnarstigsins og þess
vegna hafi hún ákveðið að gefa aft-
ur kost á sér. „Pólitíkin er skemmti-
leg, en mjög svo krefjandi. Það tek-
ur tíma að komast inn í málin og
því ákvað ég strax í vetur að gefa
kost á mér að nýju. Í rauninni er
maður eitt kjörtímabil að læra og
nýtist því best á öðru. Fannst mér
renna blóðið til skyldunnar að
hætta ekki á þessum tímapunkti.
Það er nauðsynlegt að í bland við
nýliða í sveitarstjórn sé reynslu-
fólk.“ Á næstu dögum segir Lilja
Björg að unnið verði að málefna-
skrá framboðsins og hún kynnt.
Stór verkefni að baki
Lilja Björg segir að samstarf
meirihlutans í Borgarbyggð hafi
gengið mjög vel. „Það eru auðvitað
áskoranir sem fylgja því að mynda
meirihluta úr þremur framboðum,
en heilt yfir hefur samstarfið verið
mjög gott. Ég er þakklát fyrir að fá
tækifæri til að geta tekið áfram þátt í
sveitarstjórnarstörfunum af heilum
hug og hafa áhrif á þróun samfé-
lagsins okkar. Á síðasta kjörtímabili
hefur átt sér stað mikil innviðaupp-
bygging. Meðal annars hefur verið
kláruð framkvæmd við viðbyggingu
Grunnskólans í Borgarnesi með
fjölnota sal og mötuneyti, byggð-
ur leikskóli á Kleppjárnsreykjum
og fest kaup á húsnæði við Digra-
nesgötu undir starfsemi ráðhússins.
Þá voru líka teknar ákvarðanir um
enn frekari uppbyggingu með því
að eyrnamerkja fjármuni í fjárhags-
áætlun til að endurbæta fótbolta-
völlinn í Borgarnesi, byggja við
íþróttahúsið og fara í endurbæt-
ur á skólahúsnæðinu á Kleppjárns-
reykjum. Það var ákveðið að fara í
það um leið og byggingin var rifin
þar sem leikskólinn stendur nú, en
það voru í raun teknir ansi margir
fermetrar af grunnskólanum við
þá framkvæmd. Eru báðar þessar
framkvæmdir farnar í gang og búið
að skipa byggingarnefndir.“
Stjórnsýslan skilvirkari
Þá segir Lilja Björg að einnig hafi
verið unnið mikið úrbótastarf í
stjórnsýslunni. „Farið var í gagn-
gera stjórnsýsluúttekt með áherslu
á skipulags- og byggingarsvið á
kjörtímabilinu. Þegar í stað var
farið í að framkvæma samkvæmt
niðurstöðu úttektarinnar þ.e. aukin
stöðugildi, aukin áhersla á faglega
þekkingu, skerpt á verkferlum, inn-
leiddar gæðahandbækur, aukin raf-
ræn þjónusta og sett á þjónustuver,
en allt þetta á að auka þjónustu-
stig við íbúa og stytta málsmeð-
ferðartíma erinda. Þetta hefur ekki
gengið áfallalaust fyrir sig en far-
ið að bera þó nokkurn árangur og
finnur maður í samtölum við íbúa
að þeir finna marktækan mun. En
það er að sjálfsögðu enn af mörgu
að taka og þarft að halda áfram á
þessari braut. Eins brutum við upp
fastanefndir á kjörtímabilinu með
það að leiðarljósi að veita ákveðn-
um þáttum frekara rúm í stjórnsýsl-
unni en til dæmis var sett á laggirnar
atvinnu-, markaðs og menningar-
málanefnd til að fjalla m.a. sérstak-
lega um atvinnuþróun, tækifæra-
sköpun, menningarauð og mark-
aðssetningu sveitarfélagsins. Enda
voru stórauknir fjármunir í mark-
aðssetningu, unnin markaðsstefna
og farið í bæði innri og ytri mark-
aðssetningu. Eins var komið á fót
umhverfis- og landbúnaðarnefnd
m.a. til þess að koma til móts við
auknar kröfur í umhverfismálum
og sérstaklega til að veita landbún-
aði meira rými í umræðunni, en
hann er ein af grunnstoðum sam-
félagsins.“
Erfið mál
„Það að sitja í sveitarstjórn á síð-
ustu fjórum árum hefur í raun verið
ákveðin eldskírn fyrir alla fulltrúa.
Það hefur riðið yfir heimsfaraldur
með öllum tilheyrandi áskorunum.
Það hefur hins vegar gengið nokk-
uð vel að stýra skútunni í Borgar-
byggð í gegnum þessar þrengingar
en við byggjum á sterkum grunni.
Rekstur sveitarsjóðs hefur geng-
ið vel og við höfum náð að halda
dampi í þeim framkvæmdum sem
hafa verið í pípunum.“
Þá segir Lilja Björg að komið hafi
upp nokkur mál sem tengjast áskor-
unum í húsnæðismálum á kjör-
tímabilinu, til dæmis vegna myglu
og ríkari krafna í lögum og reglu-
gerðum. „Eitt af þeim málum er t.d.
Eyjumálið svokallaða en þar kom
upp sú staða að loka þurfti húsnæði í
eigu sveitarfélagsins í Brákarey, þar
sem félagasamtök og hluti stofn-
ana sveitarfélagsins höfðu aðsetur.
Þar til bær yfirvöld létu loka hús-
næðinu og það var of kostnaðar-
samt fyrir sveitarfélagið að fara í
endurbætur svo húsnæðið uppfyllti
reglugerðir og lög. Þetta var mikið
áfall fyrir okkur öll en sveitarstjórn
hefur í heild sinni unnið hörðum
höndum í því að reyna að leysa þá
flóknu stöðu sem komin var upp.
Búið er að vera samtal í gangi við
umrædd félagasamtök og fundið
hefur verið rými fyrir aðstöðu ein-
hverra þeirra annars staðar í hús-
næði sveitarfélagsins. Auk þess hafa
verið samþykktir styrkir til félag-
anna frá sveitarfélaginu þ.e. eins
konar flutningsstyrkir. Nú er mik-
ilvægt að horfa til framtíðar og því
hefur byggðarráð ákveðið að stofn-
að verði þróunarfélag til að standa
að uppbyggingu í Brákarey sem er
óslípaður demantur. Þá skal halda
í sérkenni eyjunnar, m.a. litið til
þess að varðveita „burstirnar þrjár“
og hugsanlega fleiri byggingar sé
það raunhæft. Á svæðinu skal vera
blönduð byggð, með íbúðabyggð,
menningartengdri starfsemi, léttum
iðnaði, útivist og frístundastarfs-
semi, í sátt við núverandi starfsemi
í eyjunni.
Aðalskipulag framundan
„En nú lítum við til framtíðar,“ seg-
ir Lilja Björg. „Það er búið að sam-
þykkja framboðslista þar sem bæði
er reynslumikið fólk og nýlið-
ar og það er mikill hugur í hópn-
um. Það verður skemmtilegt að
taka samtal við íbúa og ræða stefnu-
mál í komandi baráttu. Eitt mik-
ilvægasta verk efni næstu sveitar-
stjórnar verður að stuðla að áfram-
haldandi uppbyggingu bæði inn-
viða og samfélagsins alls. Verið er
að fara í vinnu við nýtt aðalskipulag
og er mikilvægt að nýta það tæki-
færi til þess að marka okkur stefnu
varðandi það hvernig við viljum
að byggðin í Borgarbyggð vaxi, en
eins að taka afstöðu til mála eins
og t.d. vindorkunýtingar og þétt-
býliskjarna í dreifbýli. Í skipulags-
málunum felast tækifærin til upp-
byggingar og við verðum að hugsa
stórt til að stækka. En nú er t.d.
búið að ákveða að fara í hugmynda-
samkeppni um nýtt hverfi hand-
an Borgarvogsins og hefst sú vinna
vonandi fljótlega. Mikilvæg breyta í
fjölgun íbúa og uppbyggingu svæð-
isins eru bættar samgöngur og er ég
sannfærð um að þær samgöngubæt-
ur sem á að ráðast í á næstu misser-
um á milli Reykjavíkur og Borgar-
byggðar munu gera það að verkum
að Borgar byggð stimplar sig enn
frekar inn sem raunhæfur búsetu-
kostur fyrir fólk af höfuðborgar-
svæðinu. Það eru því spennandi
tímar fram undan í Borgarbyggð,“
segir Lilja Björg Ágústsdóttir að
endingu. mm
Lilja Björg Ágústsdóttir, oddviti Sjálfstæðismanna í Borgarbyggð.
„Það eru spennandi tímar fram undan í Borgarbyggð“
Rætt við Lilju Björg Ágústsdóttur sem áfram mun leiða framboð Sjálfstæðisflokksins