Skessuhorn - 16.03.2022, Qupperneq 25
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 25
Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter
var haldin í sjötta skiptið á Akranesi
um helgina. Hátíðin hófst klukk-
an 18 á föstudaginn og voru allir
viðburðir hennar haldnir á fyrstu
hæðinni í Gamla Landsbankahús-
inu á Suðurgötu 57, við Akratorg.
Opnunarmynd hátíðarinnar var
myndin Miracle Valley eftir Greg
Sestero og var Sestero viðstaddur
sýninguna og svaraði spurningum
gesta eftir sýningu myndarinnar á
föstudagskvöldið. Fjöldinn allur af
hryllingsstuttmyndum frá öllum
heimshornum voru einnig sýnd-
ar á hátíðinni um helgina og lauk
henni á laugardagskvöldið með
sýningu myndarinnar Faust: Love
of the Damned, eftir leikstjórann
Brian Yuzna frá árinu 2000 með
þeim Mark Frost og Isabel Brook í
aðalhlutverki. Að sögn Ársæls Raf-
ns Erlingssonar var nánast fullt á
allar sýningar um helgina og þurfti
stundum að bæta við sætum. Boð-
ið var upp á íslenska kjötsúpu og
íslenskt brennivín á laugardags-
kvöldið þar sem vel var mætt og
segir Ársæll þau afar ánægð með
viðtökurnar og hlakki mjög til
næstu hátíðar sem fram fer væntan-
lega á næsta ári.
Blaðamaður Skessuhorns skellti
sér á opnunarmynd hátíðarinnar,
Miracle Valley, skemmti sér mjög
vel og smellti af nokkrum myndum
í leiðinni.
vaks
Franska listakonan Catherine Red-
olfi er stödd í Grundarfirði þessa
dagana þar sem hún vinnur að list
sinni undir áhrifum frá umhverf-
inu. Catherine kom til landsins
í byrjun árs og verður út mars-
mánuð í listamannaíbúð ArtAk350
í Grundarfirði. Hún stefnir samt
á að dvelja á Íslandi í tvö ár. Þann
25. og 26. mars næstkomandi mun
hún halda sýningu á verkum sínum
í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði
og hvetur alla til að mæta.
„Ég pakkaði því sem ég gat í bílinn
og lagði af stað,“ segir Catherine í
stuttu spjalli við fréttaritara Skessu-
horns, en fyrir utan íbúðina stendur
lítill Suzuki jeppi á frönskum núm-
erum. „Ég er hannyrðakona og öll
mín verk eru gerð með þeim hætti.
Ég reyni að endurskapa landslag
sem ég sé á myndum og endurgeri
þær úr því efni sem ég hef aðgang
að. Ég nota mikið perlur og tvinna
í verkum mínum.“ Catherine sýnir
gesti myndir sem eru eftir loftmynd
af Skeiðarárjökli annars vegar og
svo brotnum ísjökum við Kirkju-
fellsfoss hins vegar.
Catherina starfaði sem vísinda-
maður á rannsóknarstofu þegar
hún var yngri. „Þegar ég var 45 ára
gömul fór ég á listsýningu þar sem
ég heillaðist algjörlega. Ég skráði
mig í listnám og fékk leyfi og náms-
styrk hjá vinnuveitendum mínum.
Síðan þá hef ég nær eingöngu ein-
beitt mér að listinni. Ég er einnig
heilluð af eldfjöllum og eldgosum
og geri margar svoleiðis myndir.“
Catherine ekur um og lætur lands-
lagið veita sér innblástur og er mik-
ið af ís og snjó í verkunum sem hún
er að vinna að núna. „Ég stefni svo
á að vera á Íslandi í tvö ár og er að
leita mér að íbúð eða herbergi á
Snæfellsnesi frá 1. apríl.“
Catherine er afar þakklát öllu
fólkinu á Snæfellsnesi en hún hefur
mætt velvild og hjálpsemi hvar sem
hún hefur komið. Lúðvík Karlsson,
eða Liston, fær sérstakt hrós frá
henni. „Liston átti að koma og vera
með mér á myndinni en var því
miður vant við látinn. Ég kom fyrst
til Íslands árið 1980 sem ferða-
maður og varð heilluð af landinu
og landslaginu. Ég vil vera hérna
næstu tvö árin að minnsta kosti og
vinna að listinni,“ segir hún að lok-
um.
tfk
Félagarnir Björgvin Franz Gíslason og Greg Sestero en Björgvin kemur fram í litlu
hlutverki sjónvarpskynnis í myndinni.
Fjör á Frostbiter um helgina
Hjónin Ársæll Rafn Erlingsson og Lovísa Lára Halldórsdóttir stóðu að hátíðinni
Frostbiter.
Feðgarnir Guðni Hannesson og Bergur Líndal voru hressir.
Hilmar Sigvalda og hjónin Tinna Grímars og Axel Freyr Gíslason voru hæstánægð
með hátíðina.
Frönsk listakona dvelur í húsnæði ArtAk
Verkið í svarta rammanum táknar brotinn ís og frosið gras
við Kirkjufellsfoss en verkið í hvíta rammanum er unnið eftir
loftmynd af Skeiðarárjökli.
Catherine Redolfi á vinnustofu sinni hjá ArtAk350 í Grundarfirði.
Hérna má sjá hvernig hún fær innblástur að verkum sínum en þarna hefur hún
tekið mynd af frosnum fossi í Búlandshöfða, teiknað upp og svo byrjað á mynd
með því efni sem hún hefur aðgang að. Catherine á vinnustofunni.