Skessuhorn - 16.03.2022, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 16. MARS 2022 31
Höttur og ÍA mættust í 1. deild
karla í körfuknattleik síðastliðið
fimmtudagskvöld og fór leikurinn
fram í MVA-höllinni á Egilsstöð-
um. Skagamenn mættu frekar
fámennir til leiks og með ungt lið
því aðeins voru átta á leikskýrslu
og þar vantaði meðal annars þeirra
besta leikmann í vetur, Christoph-
er Clover sem var veikur. Það virt-
ist þó ekki koma að sök í fyrsta leik-
hluta því Skagamenn komu heima-
mönnum á óvart og voru yfir við
lok hans, staðan 25:27. En fljótlega
í öðrum leikhluta skoraði Höttur
15 stig í röð og staðan allt í einu
orðin allt önnur, 42:32. Svipað-
ur stiga munur hélst út annan leik-
hlutann og staðan í hálfleik 58:47
fyrir Hetti.
Í þriðja leikhluta tóku heima-
menn öll völd, gestirnir höfðu
engin svör og Hattarmenn voru
komnir í hundrað stigin þegar hon-
um lauk og með 35 stiga forystu,
100:65. Þeir slökuðu lítið á klónni í
síðasta fjórðungnum og lokastaðan
öruggur sigur Hattar, 128:84.
Það er því ljóst eftir þennan leik
að Skagamenn eru fallnir í 2. deild
því þeir geta aðeins jafnað Hamar
að stigum ef þeir vinna síðustu þrjá
leiki sína í deildinni og það dugar
ekki sökum innbyrðis viðureigna
liðanna í vetur. Skagamenn fengu
óvænt boð rétt fyrir mót að taka
slaginn í 1. deildinni en hafa átt
erfitt uppdráttar og aðeins unnið
einn leik til þessa. En mótlætið
gerir ekki annað en að herða menn
og vonandi geta stuðningsmenn
ÍA fylgst með sínum mönnum í 2.
deild á næsta tímabili.
Stigahæstir hjá ÍA voru þeir
Lucien Christofis með 27 stig,
Aron Elvar Dagsson með 26 stig
og Þórður Freyr Jónsson með 18
stig. Hjá Hetti var Arturo Rodrigu-
ez með 24 stig, Timothy Guers
með 20 stig, 12 fráköst og 13
stoðsendingar og Matej Karlovic
með 19 stig.
Næsti leikur ÍA var Vesturlands-
slagur gegn Skallagrími og fór hann
fram í gær, eftir að Skessuhorn fór í
prentun. vaks
Leikmenn meistaraflokks ÍA í
karlaboltanum halda í æfingaferð
til Salou á Spáni á föstudaginn. Jón
Þór Hauksson þjálfari liðsins seg-
ir að ferðin sé hluti af lokaundir-
búningi liðsins fyrir Íslandsmótið
sem nú heitir Besta deildin. Fyrsti
leikur Skagamanna verður gegn
Stjörnunni í Garðabæ 19. apríl og
lýkur þann 17. september á Akra-
nesvelli gegn Leikni Reykjavík. Í
byrjun október hefst síðan úrslita-
keppni sem er nýjung í efstu deild
karla.
Jón Þór segir að æfingar hafi
gengið mjög vel eftir að hann tók
við liðinu, þrátt fyrir bakslag fljót-
lega eftir að hann kom til starfa
vegna meiðsla og Covid smita
hjá leikmönnum. Segir hann nú
allt komið á fullt fyrir lokaundir-
búninginn og kveðst sáttur með
frammistöðu liðsins í æfingaleikj-
unum í vetur.
„Ég er sáttur með leikmanna-
hópinn og tel að þeir leikmenn sem
við höfum fengið til liðs við hóp-
inn að undanförnu muni styrkja
hann mikið. Eins og flest lið erum
við áfram að líta í kringum okkur
í leikmannamálum og það kemur
bara í ljós hvað gerist en það eru
hins vegar ungir og efnilegir strák-
ar sem hafa verið að standa sig vel
í æfingaleikjunum sem ég hef fulla
trú á,“ segir Jón Þór.
Spurður út í meiðsli leikmanna
þá segir hann að bæði Hallur Flosa-
son og Hollendingurinn Wout
Droste væru að glíma við meiðsli.
Hallur væri farinn að æfa en Hol-
lendingurinn hefur ekkert get-
að æft í vetur vegna meiðsla. En
góðu fréttirnar væru þær að Oli-
ver Stefánsson lék í þrjátíu mínútur
í æfingaleik gegn Haukum í Akra-
neshöllinni síðastliðinn fimmtudag
í leik sem Skagamenn sigruðu 3:0
og hefði liðið að mestu verið skipað
yngri leikmönnum. se
Skallagrímur tók á móti Hruna-
mönnum í 1. deild karla í
körfuknattleik á föstudagskvöldið
og fór leikurinn fram í Fjósinu í
Borgarnesi. Gestirnir voru sterk-
ari í fyrri hluta fyrsta leikhluta og
komust í 6:12 en heimamenn komu
síðan til baka og staðan 20:21 fyr-
ir Hrunamönnum við flautið. Jafn-
ræði var með liðunum allan ann-
an leikhlutann, lítið skildi á milli
og staðan í hálfleik 49:46 fyrir
Skallagrími.
Baráttan hélt áfram í þriðja leik-
hluta, Hrunamenn þó ívið sterkari
en Skallarnir áttu síðasta orðið með
fimm stigum á síðustu mínútunni,
staðan 67:70. Gestirnir bættu síð-
an aftur í, náðu 15 stiga forystu um
miðjan fjórða leikhluta og heima-
menn áttu engin svör, lokastað-
an tólf stiga sigur Hrunamanna frá
Flúðum, 86:98.
Stigahæstir hjá Skallagrími voru
þeir Bryan Battle með 23 stig, Sim-
un Kovac var með 18 stig og 15 frá-
köst og Marinó Þór Pálmason með
13 stig. Hjá Hrunamönnum var
Clayton Ladine með 26 stig, Karlo
Lebo með 22 stig og 10 fráköst og
Yngvi Freyr Óskarsson með 15 stig.
Næsti leikur Skallagríms var
Vestur landsslagur gegn ÍA í gær á
Akranesi en leiknum var ekki lokið
þegar Skessuhorn fór í prentun. vaks
Snæfell og Hamar-Þór mættust í
1. deild kvenna í körfuknattleik á
laugardaginn og fór leikurinn fram
í Stykkishólmi. Leikurinn var mjög
mikilvægur í baráttunni um sæti í
úrslitakeppninni en fyrir leik var
Snæfell í þriðja sæti deildarinnar
með 22 stig og Hamar-Þór í sjö-
unda sæti með 18 stig. Leikmenn
Hamars-Þór voru ákveðnari í fyrsta
leikhluta og leiddu með sex stig-
um, 12:18. Snæfell náði að minnka
muninn í tvö stig fljótlega í öðrum
leikhluta en eftir um sex mínútna
leik var staðan 24:31 fyrir gestun-
um. Aftur náðu Snæfellsstúlkur að
minnka forskotið en gestirnir gáfu
síðan í og fóru með fimm stiga for-
ystu inn í hálfleikinn, 31:36.
Snæfell átti ágætis þriðja leik-
hluta og komst yfir undir lok hans
í annað skiptið í leiknum eftir að
hafa komist í 2:0 í byrjun leiks,
staðan fyrir síðasta fjórðunginn
52:51 Snæfelli í vil. En gestirn-
ir neituðu að gefast upp og virtust
vilja sigurinn meira. Staðan var þó
jöfn 62:62 eftir rúman fimm mín-
útna leik og þegar tæp ein mín-
úta var eftir af leiknum var staðan
67:68 fyrir gestunum. Þær áttu hins
vegar síðasta orðið og skoruðu síð-
ustu sex stigin í leiknum, lokastað-
an 67:74 Hamri-Þór í vil.
Aðeins ein umferð er eftir í 1.
deild kvenna og fer hún fram í
kvöld og á morgun. Ármann og ÍR
eru efst og örugg með sæti í úrslita-
keppninni en Snæfell, Þór Akur-
eyri, KR og Hamar-Þór berjast um
hin tvö sætin. Snæfell, Þór og KR
eru öll með 22 stig og Hamar-Þór
með 20 stig.
Stigahæstir í liði Snæfells voru
þær Rebekka Rán Karlsdóttir með
16 stig, Gunnhildur Gunnarsdóttir
var með 14 stig og Preslava Koleva
með 11 stig. Hjá Hamri-Þór var
Astaja Tyghter með 31 stig og 14
fráköst, Julia Demirer með 22 stig
og 17 fráköst og Helga María Jan-
usdóttir með 11 stig.
Síðasti leikur Snæfells í deildinni
í vetur var í gærkvöldi gegn liði
ÍR en honum var ekki lokið þegar
Skessuhorn fór í prentun.
vaks
Aðeins þrjú lið af Vesturlandi léku
um helgina í Lengjubikarnum í
knattspyrnu. Skallagrímur reið á
vaðið á laugardaginn þegar liðið
sótti heim KFB í nýju knattspyrnu-
höllina Miðgarð í Vetrarmýri í
Garðabæ. KFB komst í 2-0 í fyrri
hálfleik með mörkum frá Joost
Haandrikman og Garðari Geir
Haukssyni . Elís Dofri Gylfason
minnkaði muninn í 2-1 á 65. mín-
útu og fimm mínútum síðar jafn-
aði Hlöðver Már Pétursson fyr-
ir Skallagrím. Það var síðan Elís
Dofri sem kom Skallagrími yfir á
75. mínútu og tryggði liði sínu sinn
fyrsta sigur í C deild karla í ár.
Skagamenn léku á mánudaginn
gegn Stjörnunni í Miðgarði í
Garðabæ og með sigri hefðu Skaga-
menn náð efsta sætinu í riðlinum
og komist í undanúrslit Lengju-
bikarsins. Adolf Daði Birgis son
kom Stjörnunni yfir í fyrri hálfleik
og Emil Atlason bætti við tveimur
mörkum fyrir heimamenn í seinni
hálfleik. Með þessum sigri náði
Stjarnan efsta sætinu og sæti í und-
anúrslitum á kostnað Breiðabliks
og ÍA.
Kvennalið ÍA lék á mánudaginn
gegn liði Fram og fór leikurinn
fram í Akraneshöllinni. Ylfa Lax-
dal kom ÍA í tveggja marka for-
ystu með mörkum eftir rúmlega
hálftíma leik og Unnur Ýr Har-
aldsdóttir bætti þriðja markinu
við skömmu fyrir leikhlé. Ana Da
Costa Bral minnkaði muninn fyr-
ir gestina í byrjun seinni hálfleiks
en þá settu Skagakonur í fluggírinn
og skoruðu fjögur mörk á tæplega
20 mínútna kafla. Ylfa Laxdal náði
fernu með tveimur mörkum og þær
Lilja Björg Ólafsdóttir og Sand-
ra Ósk Alfreðsdóttir voru með eitt
mark hvor. Lokastaðan 7-1 fyrir ÍA
og eru þær efstar í sínum riðli með
sex stig í C deild.
vaks
Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA. Ljósm. úr safni/kgk
Skagamenn á leið í
æfingabúðir til Spánar
Skallagrímur tapaði gegn Hrunamönnum
Bryan Battle var með 23 stig gegn Hrunamönnum. Hér í leik fyrr í vetur á móti
Hamri. Ljósm. glh
Rebekka Rán var með 16 stig í
leiknum. Hér í leik gegn Aþenu fyrir
skömmu. Ljósm. sá
Snæfell tapaði gegn Hamri Þór
Úr leik ÍA og Hamars á dögunum. Ljósm. vaks
Gulklæddir fallnir
í 2. deild í körfunni
Elís Dofri Gylfason skrifaði undir
samning fyrir helgina hjá Skallagrími
og skoraði síðan tvö mörk í fyrsta leik.
Ljósm. af facebook síðu Skallagríms.
Tveir sigrar og eitt
tap í Lengjubikarnum