Morgunblaðið - 28.04.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
PORTÚGAL
9 DAGA FERÐ, FLUG, GISTING OG FARARSTJÓRI
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.IS INFO@UU.IS
30. APRÍL - 09. MAÍ
CLUBE ALBUFEIRA 3*
SUPERIOR ÍBÚÐ
VERÐ FRÁ89.900 KR
Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 127.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
30. APRÍL - 09. MAÍ
APARTHOTEL VICTORIA 4*
ÍBÚÐ MEÐ
VERÐ FRÁ125.500 KR
Á MANN FULLORÐNA OG 2 BÖRN
VERÐ FRÁ 198.900 KR. FYRIR 2 FULLORÐNA
INNIFALIÐ: FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR
BEINT
FLUG
Þorsteinn Ásgrímsson Melén
Logi Sigurðarson
Lárus Blöndal stjórnarformaður
Bankasýslunnar og Jón Gunnar
Jónsson forstjóri Bankasýslunnar
sátu fyrir svörum á opnum fundi
fjárlaganefndar um sölu á eignahlut-
um ríkisins í Íslandsbanka í gær.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
átti að halda fundinn á mánudag en á
sunnudagskvöld var fundinum frest-
að. Sala ríkisins á 22,5% hluta þess í
Íslandsbanka hefur sætt mikilli
gagnrýni vegna ógagnsæi og vegna
þeirra aðila sem tóku þátt í útboðinu,
en þar á meðal var Benedikt Sveins-
son faðir fjármálaráðherra.
Sökuð um huglægt mat
Kristrún Frostadóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar, velti því upp á
fundinum með hvað hætti flokkun
fjárfesta hefði farið fram, eins og
kveðið var á um í minnisblaði Banka-
sýslunnar um söluferlið. Það er að
segja hvernig var ákveðið hvort fjár-
festir væri annars vegar skamm-
tímafjárfestir eða hins vegar lang-
tímafjárfestir. Sömuleiðis sakaði hún
Bankasýsluna um það að hafa beitt
huglægu mati þar sem tveimur fjár-
festum var meinað að taka þátt í út-
boðinu á grundvelli þess að þeir
þóttu „of kvikir“. Sagði hún að með
þessu væri ekki verið að gæta jafn-
ræðis. Á fundinum kom í ljós að
Bankasýslan hafði ekki upplýsingar
um hvort fjárfestar sem tóku þátt í
útboðinu hefðu skuldsett sig fyrir
kaupunum. Að sögn Jóns Gunnars
spurði Bankasýslan ekki um það
hvort fjárfestarnir sem keyptu hefðu
skuldsett sig fyrir kaupunum þar
sem stofnunin hafi ekki heimild til
þess. Upp komst á fundinum að sum-
ir starfsmenn Bankasýslunnar höfðu
fengið gjafir í tengslum við söluna á
hlut ríkisins í bankanum. Í samtali
við Morgunblaðið segir Lárus að
hvorki hann né stjórnin hafi fengið
gjafir í tengslum við söluna.
„Hins vegar eru þetta einhverjar
tækifærisgjafir sem eru óverulegar
að verðmæti. Það verður gerð grein
fyrir því og ég held að það sé ekkert
óeðlilegt þar á ferðinni.“
Hann segir að fjárhagslega hafi
salan tekist vel en lítandi til baka
hefði sýslan átt að kynna betur út-
boðsferlið fyrir almenningi.
Bjarni með endanlega ábyrgð
Aðspurður segist Lárus ekki gera
neina athugasemd við þá aðila sem
tóku þátt í útboðinu að því gefnu að
þeir séu allir fagfjárfestar.
„Við gerðum ekki kröfu um neitt
lágmark og ef fagfjárfestar sem hafa
heimild til þess að taka þátt bjóða
lága upphæð þá er það ekkert síðra
boð en hærri upphæðir,“ segir hann.
„Ég tel að við berum auðvitað
ábyrgð á framkvæmdinni gagnvart
Bjarna en það er náttúrlega ljóst að
hin endanlega ábyrgð hvílir á ráð-
herranum sem gefur okkur sam-
þykki fyrir sölunni og þeim aðgerð-
um sem við ráðumst í.“ Fullyrðir
hann að salan hafi verið framkvæmd
með ábyrgum hætti og í samræmi
við það sem lagt var upp með.
Ábyrgðin hvíli á ráðherra
- Bankasýslan hafði ekki upplýsingar um skuldsetningu aðila fyrir kaupunum
- Fulltrúar sýslunnar þáðu gjafir á borð við vínflöskur, flugelda og konfektkassa
Morgunblaðið/Eggert
Fjárlaganefnd Fulltrúar Bankasýslu ríkisins mættu á opinn fund hjá fjárlaganefnd Alþingis í gærmorgun, til að ræða söluna á Íslandsbanka.
Morgunblaðið/Eggert
Bankasýslan Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson, for-
stjóri Bankasýslunnar, svöruðu mörgum spurningum frá nefndarmönnum.
„Við getum nátt-
úrulega ekki
þannig séð tjáð
okkur um einstök
mál,“ var meðal
þess sem kom
fram í svari for-
stjóra Banka-
sýslu ríkisins,
þegar þingmaður
Framsóknar-
flokksins spurði
hann hvort hann kannaðist við at-
hugasemdir viðskiptaráðherra við
framkvæmd sölunnar á 22,5% hlut
ríkisins í Íslandsbanka. Í viðtali í
Morgunblaðinu 11. apríl sagði Lilja
Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra að
hún hefði ekki verið hlynnt þeirri að-
ferðafræði sem varð ofan á við söl-
una á bréfum í Íslandsbanka. Kvaðst
hún vera mótfallin því að bréfin yrðu
seld til valins hóps fjárfesta og að
hún hafi komið þessum sjónarmiðum
skýrt á framfæri í aðdraganda út-
boðsins. Lilja situr í ráðherranefnd
um efnahagsmál en þann 4. febrúar
kynnti Bankasýslan fyrirhugaða
söluaðferð og önnur atriði fyrir
nefndinni.
Tjá sig
ekki um
einstök mál
- Spurði út í at-
hugasemd Lilju
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Vínflöskur, flugeldur og konfekt-
kassar voru meðal þeirra gjafa sem
Bankasýsla ríkisins þáði frá aðilum í
tengslum við söluna á hlut ríkisins í
Íslandsbanka. Þetta kom fram í
svari Jóns Gunnars Jónssonar for-
stjóra Bankasýslunnar á opnum
fundi fjárlaganefndar í gærmorgun.
Jón Gunnar svaraði því játandi og
sagði einnig að fulltrúar á vegum
stofnunarinnar hafi átt hádegis- og
kvöldverði með ráðgjöfum. Björn
Leví Gunnarsson þingmaður Pírata
fór í kjölfarið fram á að fá formlegt
minnisblað um gjafirnar og mat-
arboðin, og kostnað vegna þeirra.
Hádegis- og
kvöldverðir
Vinstri grænir vilja flýta borgarlínu
fái þeir til þess umboð að loknum
borgarstjórnarkosningum í næsta
mánuði. Flokkurinn kynnti stefnu-
mál sín í Úlfarsárdal í gær.
„Við ætlum að flýta borgarlínu og
tryggja að vistvænir ferðamátar
verði sjálfsagður valkostur borgar-
búa,“ segir í kynningu á kosningaá-
herslum Vinstri grænna.
VG hefur hug á að nýta borgar-
landið undir annað en mislæg gatna-
mót: „Mislæg gatnamót verði víkj-
andi í skipulagi borgarinnar því það
er betra fyrir lífsgæðin að nýta borg-
arlandið undir húsnæði og græn úti-
vistarsvæði.“
Eitt og annað kemur fram í kosn-
ingaáherslum framboðsins varðandi
húsnæðismálin. VG ætlar að byggja
500-1.000 félagsbústaði á ári fyrir
borgarbúa til viðbótar við húsnæð-
isáætlun borgarinnar. VG ætlar
einnig að fjölga leiguíbúðum Fé-
lagsbústaða og íbúðum fyrir fatlað
fólk um 700 á kjörtímabilinu.
Kosningaáherslur VG má lesa í
frétt á mbl.is.
Morgunblaðið/Eggert
VG Líf Magneudóttir, Elín Björg Jónasdóttir og Stefán Pálsson kynntu
áherslur Vinstri grænna fyrir komandi borgarstjórnarkosningar.
Mislæg gatnamót verði
víkjandi í skipulagi
- VG kynnti áherslur sínar í Reykjavík
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR