Morgunblaðið - 28.04.2022, Side 12

Morgunblaðið - 28.04.2022, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Í þetta sinn völdum við lög sem þeir eru vanir að syngja, en þó er eitt nýtt lag á dagskránni. Svo má vel vera að ég komi inn með fleiri ný lög fyrir kór- inn þegar ég fæ alfarið að ráða,“ segir Aron Axel Cortes, nýr stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur, eldri félaga, og á þar við vor- tónleika kórsins sem verða næstkomandi sunnudag í Háteigskirkju. „Með okkur á þessum tónleikum verður gestakór, Kordía, sem er kammerkór kirkj- unnar og Guðný Einarsdóttir stjórnar, en hún er einnig organisti við kirkjuna. Tónleik- arnir eru einmitt haldnir til að styrkja orgel- sjóð kirkjunnar, allur aðgangseyrir rennur í þann sjóð.“ Í Karlakór Reykjavíkur, eldri félögum, eru eins og nafnið gefur til kynna fyrrver- andi félagar úr aðalkór Karlakórs Reykjavík- ur. „Félagar í kórnum eru núna rúmlega þrjátíu og margir þeirra hafa sungið í áratugi í aðalkórnum, eða drengjakórnum eins og þeir kjósa að kalla Karlakór Reykjavíkur.“ Brá þegar hann var kynntur til leiks Aron tók við kórnum fyrsta janúar á þessu ári, svo hann er enn að kynnast þeim félögum sem skipa kórinn. „Ég var rosalega ánægður þegar ég fékk þetta kall, að taka við tónsprotanum úr hönd- um Friðriks S. Kristinssonar sem hefur stjórnað þeim undanfarin fjórtán ár. Þessir karlar eru miklir reynsluboltar í söng og þegar ég var kynntur til leiks sem nýr stjórnandi og fékk að hitta þá alla og stjórna einu lagi, þá brá mér. Það kom mér á óvart hversu flottar raddir þetta eru innan kórsins og ennþá kraftmiklar. Ég get því leyft mér að velja hvað sem er ofan í þá til að syngja. Þeir kunna þetta líka svo vel eftir áratuga þjálfun, tæknina að syngja, þetta er allt kom- ið vel inn í líkamann hjá þeim og inn í rödd- ina. Þeir eru vel sjóaðir, en við ákváðum til að byrja með að þeir segðu mér svolítið hvað þeir vildu og að ég væri ekki að bóka þá í einhverjar heimsreisur,“ segir Aron og hlær en tekur fram að þó sé vilji innan kórsins til að fara í söngferðalög, gera eitthvað annað og meira en einvörðungu koma saman og syngja. „Kórinn var stofnaður árið 1965, svo það eru ekki nema þrjú ár í sextíu ára afmælið, og af því tilefni ætlum við klárlega að blása til stórtónleika.“ Þeir láta ekki alltaf vel að stjórn Þegar Aron er spurður hvort kórfélagar séu eins og heimaríkir hundar sem láti ekki vel að stjórn hins unga nýja stjórnanda segir hann kankvís að ekki sé hægt að segja að þeir láti alltaf vel að stjórn. „Þeir eru vanir ýmsu og láta alveg í sér heyra ef það er eitthvað sem þeir eru ekki sáttir við, en ég verð þá bara að vera meiri frekja og beita mér,“ segir hann og hlær. „Ég er nú að gantast, þetta eru allt ljúf- ir karlar sem hlusta á allt sem ég segi, en ef við erum að byrja að æfa eitthvert lag og þeim finnst ég fara aðeins of hratt eða of hægt, þá fæ ég alveg athugasemdir frá þeim, en það er bara gaman,“ segir Aron, sem er nýfluttur heim til Íslands ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonu og tveimur börnum, eftir að hafa búið í Austurríki undanfarin tíu ár. Tónleikarnir á sunnudag 1. maí í Há- teigskirkju hefjast kl. 17. Flottar raddir og enn kraftmiklar „Þeir kunna þetta svo vel eftir áratuga þjálfun, tæknina að syngja, þetta er allt komið vel inn í líkamann hjá þeim og inn í röddina,“ segir Aron Axel Cort- es, nýr stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur, eldri félaga, sem allir eru í fínu formi og blása til vortónleika á sunnudaginn. Karlakór Reykjavíkur, eldri félagar Mynd tekin á samsöng kórsins í Osló, í Svenska Kyrkan, 2019, þá undir stjórn Friðriks. S. Kristinssonar. Aron Fyrstu tónleikar kórsins undir hans stjórn verða á sunnudag og hann hlakkar til. „Þeir eru vanir ýmsu og láta alveg í sér heyra ef það er eitt- hvað sem þeir eru ekki sáttir við, en ég verð þá bara að vera meiri frekja og beita mér.“ Í gær var mikið um dýrðir í borginni Maastricht í Hollandi þegar haldið var upp á konungsdaginn, enda ekki verið gert undanfarin tvö ár vegna heimsfaraldurs. Konungsfjölskyldan fór út á meðal fólks og Willem-Alex- ander konungur heilsaði m.a. upp á dragdrottningar og Maxima drottn- ing spreyjaði á vegg. Sólin skein á hátíðargesti Líf og fjör á konungsdegi AFP/Remko de Waal AFP/Patrick van Katwijk Króatía, Bosnía / Herzegovenia, Serbía, Svartfjallaland Glæsileg menning, mikil saga, stórkostleg, náttúrufegurð og bros- andi heimamenn. Við förum aftur í tíma og rúmi, sjáum gömul þorp, kirkjur, klaustur, og söfn svo eitthvað sé nefnt. Við förum upp í Mokra Gora fjöllinn, siglum um Drina gilið og skoðum töfrandi umhverfið. Þá verða á vegi okkar glæsilegar menningarborgir eins Sarajevo og höfuðborg Svartfjalla- lands sem rekja má til ársins 1326, svo og miðaldabæinn Herceg Novi í Króatíu sem stað- settur er á einstökum stað við Adríahafið, sjón er sögu ríkar. Þá munum við kynnast miðalda- borginni Riga frá 12. öld, sem ekki á sinn líka, menningarborg Evrópu 2014. Síðumúli 29 - 108 Reykjavík | Sími 588 8900 info@transatlantic.is | www.transatlantic.is Balkanskaginn og miðaldaborgin Riga 14.-26. september 2022 INNIFALIÐ • Flug með sköttum og tösku • Hótel með morgunmat 4 og 5 stjörnu • Fullt fæði á Balkanskaganum • Íslenskur fararstjóri • Innlendur enskumælandi fararstjóri (local) • Allar skoðunarferður skv. ferðaplani • Aðgangur þar sem við á skv. lýsingu • Allur flutningur skv. ferða- plani , rúta, bátur og lest VERÐ 418.700 kr. á mann í 2ja manna herbergi SUMMITS St. 36-41 /13.995 kr. withMemory Foam KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS MEÐ MEMORY FOAM INNLEGGI OG TEYGJUREIMUM ÞÆGILEGIR DÖMUSKÓR SKECHERS ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.