Morgunblaðið - 28.04.2022, Page 20

Morgunblaðið - 28.04.2022, Page 20
20 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 HJÁLPARTÆKI fyrir athafnir daglegs lífs Trönuhrauni 8 | 565 2885 | stod.is HREYFIÞJÁLFI FYRIR HENDUR OG FÆTUR 16.990 kr. VITILITY SMÁHJÁLPARTÆKI - í matartímanum - í endurhæfingunni - við eldhúsverkin - við lesturinn - fyrir matartímann - fyrir tómstundirnar - fyrir lífið sjálft SAMANBRJÓTANLEGUR STAFUR 6.190 kr. BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Íslensk stjórnvöld munu styðja um- sóknir Finnlands og Svíþjóðar ef þau ákveða að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu. Þetta hefur komið fram í máli Katrínar Jakobs- dóttur forsætisráðherra og Þórdísar Kolbúnar R. Gylfadóttur utanríkis- ráðherra. Mikil umræða fer nú fram í báðum þessum löndum um málið í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu. Er ákvörðunar að vænta í næsta mán- uði. Af þessu tilefni er full ástæða til að rifja upp vinabragð sem Finnar sýndu Íslendingum fyrir 50 árum þegar þeir lýstu yfir stuðningi við þá ákvörðun Alþingis Íslendinga að færa landhelgina úr 12 í 50 sjómílur frá og með 1. september 1972. Í byrjun mars 1972 fór Kristján Eldjárn forseti Íslands í opinbera heimsókn til Finnlands ásamt Hall- dóru Ingólfsdóttur eiginkonu sinni og embættismönnum. Móttökurnar voru höfðinglegar og voru heim- sókninni gerð góð og ítarleg skil í finnskum fjölmiðlum. Kekkonen eftirminnilegur Átta íslenskir fjölmiðlamenn voru í för með forsetahjónunum og var ofangreindur blaðamaður í þeim hópi, þá ungur blaðamaður á Al- þýðublaðinu sáluga. Öll fimm dag- blöðin sendu fulltrúa sem og útvarp og sjónvarp. Íslensku blaðamennirnir sátu m.a. fund hjá Uhro Kekkonen Finnlands- forseta í forsetahöllinni í Helsinki. Mjög sjaldgæft var að forsetinn héldi slíka fundi fyrir blaðamenn og því var hann mikil upplifun fyrir okkur alla. Óhætt er að segja að Kekkonen sé eftirminnilegur maður, hávaxinn og fyrirmannlegur. Hann hafði slíka útgeislun að fágætt er að hitta slíka menn. Flogið hafði fyrir að forsetinn ætlaði að lýsa yfir stuðningi við útfærslu Íslendinga á landhelginni. Eðlilega var hann því spurður um málið á fundinum. „Ég vona að útfæsla landhelginnar gangi vel hjá ykkur í haust, en ég hef því miður lítið um málið að segja,“ var svar forsetans á fundinum. Að kvöldi 2. mars hélt Kekkonen veislu til heiðurs íslensku forseta- hjónunum og þar kom yfirlýsingin sem beðið var eftir. „Eigi nokkur þjóð rétt á að draga fæðu sina úr sjónum, þá á íslenska þjóðin það. Það er réttur, sem nútíma tækni og stjórnmálaþróun skal ekki fá að hnekkja,“ sagði finnski forsetinn í ræðu sinni. „Með þetta sjónarmið i huga hefur Finnland með djúpri samúð fylgt viðleitni Íslands til þess að tryggja höfuðatvinnuvegi sínum, sjávarútveginum, örugga framtíð og Finnland mun styðja þessa viðleitni á alþjóðavettvangi, innan þeirra marka, sem raunhæfar aðstæður þess leyfa.“ Í viðtali sem ofanritaður blaða- maður Alþýðublaðsins átti við Einar Ágústsson utanrikisráðherra daginn eftir kvaðst ráðherrann vera mjög glaður yfir þessum eindregna stuðn- ingi Finna við útfærslu landhelg- innar í 50 mílur. Finnar væru fyrsta Norðurlandaþjóðin sem veitti Ís- lendingum stuðning í þessu mikil- væga máli og ein fyrsta þjóðin í heiminum sem það gerði. Togvíraklippurnar frægu Landhelgin var færð úr 12 í 200 mílur í þremur áföngum á árunum 1958-1975. Viðbrögð Breta voru afar hörð í öll skiptin og þeir sendu her- skip á Íslandsmið til að vernda bresku togarana gegn íslensku varð- skipunum. Þorskastríðin urðu þrjú en fullur sigur vannst árið 1976 eftir mikil átök á miðunum. Haustið 1972 var í fyrsta sinn beitt skæðu vopni Landhelgisgæslunnar, togvíraklipp- unum frægu. Diljá Mist Einarsdóttir þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins spurði Katr- ínu Jakobsdóttur forsætisráðherra um stöðu mála í óundirbúnum fyrir- spurnartíma á Alþingi 25. apríl sl. Í svari sínu ítrekaði Katrín stuðning Íslendinga við umsókn Finnlands og Svíþjóðar. „Þessi ríki eru auðvitað nú þegar mjög náin samstarfsríki Atlantshafsbandalagsins. Leiðtogar þeirra hafa iðulega setið leiðtoga- fundi. Þau hafa tekið þátt í bæði nor- rænu og norðurevrópsku öryggis- og varnarsamstarfi, þannig að þau hafa hingað til verið í hópi okkar nánustu samstarfsaðila á þessu sviði,“ sagði Katrín. Hún kvaðst hafa átt óformlegan fund með forsætisráðherra Finn- lands nú á dögunum þar sem hún áréttaði að Ísland myndi greiða götu þeirra á vettvangi Alþingis. „Því að það er þannig þegar kemur að slík- um málum að það þarf að samþykkja þingsályktunartillögu um staðfest- ingu á viðbótarsamningi Norður- Atlantshafsbandalagsins um aðild einstakra ríkja þannig að það þarf að fara í gegnum þjóðþingin. Það skipt- ir auðvitað máli að það sé þá tekið fyrir og ég veit að utanríkisráðu- neytið er tilbúið til að bregðast við því ef á þarf að halda,“ sagði Katrín í svari sínu á Alþingi. Íslensku fjölmiðlamennirnir sem fóru í þessa eftirminnilegu ferð til Finnlands fyrir 50 árum voru auk of- anritaðs: Björn Vignir Sigurpálsson Morgunblaðinu, Guðgeir Magnús- son Þjóðviljanum, Kári Jónasson Tímanum, Valdimar Jóhannesson Vísi, Vilhelm G. Kristinsson útvarp- inu og þeir Ólafur Ragnarsson fréttamaður og Sigurður Sverrir Pálsson myndatökumaður frá Sjón- varpinu. Móttökurnar sem við feng- um hjá Finnum voru framúrskar- andi fagmannlegar. Vinabragð Finna fyrir 50 árum - Í opinberri heimsókn Kristjáns Eldjárns til Finnlands 1972 lýsti Kekkonen forseti stuðningi við út- færslu landhelginnar í 50 mílur - Nú er komið að Íslandi að styðja inngöngu Finna og Svía í NATO Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Á Bessastöðum Kristján og Halldóra Eldjárn taka á móti Kekkonen í heimsókn hans 1973. Ingólfur Sveinsson lögregluvarðstjóri stendur heiðursvörð. Háskólarektor segir að ekki liggi fyrir upplýsingar um fjölda brottvísana nemenda úr námi við Háskóla Íslands. „En ég get þó sagt að þetta er eina tilvikið á minni rekt- orstíð sem mér er kunnugt um. Ég tók við sem rektor 1. júlí 2015,“ segir Jón Atli Benediktsson í svari við fyrir- spurn Morgunblaðsins. Tilvikið sem hann vísar til varðar nemanda í sálfræði við skólann sem forseti Heilbrigðisvísindasviðs ákvað að vísa úr skólanum að fullu vegna ógnandi skilaboða sem hann hafði sent öðrum sálfræðinema. Málið fór fyrir áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema og staðfesti hún á föstudaginn niðurstöðuna. Nemandinn getur því ekki haldið áfram námi við háskólann. gudmundur@mbl.is Rektor þekkir ekki önnur dæmi um brott- vísun úr námi við Háskóla Íslands Jón Atli Benediktsson „Hér er Reykja- vík að senda skýr skilaboð um stuðning við úkraínsku þjóð- ina og minna um leið á ævaforna tengingu milli Ís- lands og Kænu- garðs,“ segir Ey- þór Laxdal Arnalds borgar- fulltrúi en torgið á horni Garðastrætis og Túngötu verður framvegis kennt við höfuðborg Úkraínu. Skipulags- og samgönguráð samþykkti ein- róma á fundi sínum í gær að torgið fengi heitið Kænugarður en undir- heiti verði Kýiv-torg. Torgið hér eftir kennt við Kænugarð Úkraína Fánar við ráðhús Reykjavíkur. Skotveiðifélag Íslands (SKOTVÍS) efnir í dag til afmælisráðstefnu í til- efni af 25 ára afmæli Veiðikorta- kerfisins. Ráðstefnunni var frestað vegna heimsfaraldursins þar til nú. Hún verður haldin í Veröld Vigdís- ar, Brynjólfsgötu 1 frá klukkan 17.00 til 21.00. Ráðherra ávarpar ráðstefnu- gesti. Flutt verður sögulegt yfirlit um Veiðikortasjóð og sérfræðingar fjalla um helstu veiðistofna eins og rjúpuna, stjórnunar- og vernd- aráætlanir, refi, svartfugla, hrein- dýr og gæsir. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyfir. Bein útsending frá ráðstefnunni verður á Facebook- síðu SKOTVÍS fyrir þá sem ekki komast á staðinn. gudni@mbl.is Ráðstefna um ástand veiðistofna STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.