Morgunblaðið - 28.04.2022, Page 26

Morgunblaðið - 28.04.2022, Page 26
26 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 VENUS MOKKAKANNA CHROME *Allar nema 2. bolla kannan virka á span helluborð. 2. bolla*– 4.290,- 4. bolla – 5.390,- 6. bolla – 5.990,- 10. bolla – 7.990,- NÝIR LITIR Blár & Rósagylltur 4. bolla – 5.990,- 6. bolla – 6.790,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Borgin er mikilfenglegri en ég átti von á,“ segir Gunnlaugur Auðunn Júlíusson, hagfræðingur og leiðsögu- maður, félagi í ferðahópi sem fór ný- lega um Úsbekistan í Mið-Asíu og skoðaði sérstaklega hina fornu og sögufrægu borg Samarkand. „Ég hef oft velt fyrir mér silkileið- inni, sem er mikilvægur kafli í mann- kyns- og verslunarsögunni,“ segir Gunnlaugur um tildrög þess að hann fór í ferðina til Úsbekistans. Silkileið- in lá frá Peking í Kína til Istanbúl í Tyrklandi og jafnvel alla leið til Róm- ar. Raunar var hún ekki ein leið held- ur margar mismunandi. Um hana voru fluttar munaðarvörur þess tíma, eins og silki og krydd. Einnig stuðl- aði hún að miðlun menningar og hug- mynda, að einhverju leyti. Allar leið- irnar lágu um Mið-Asíu og var borgin Samarkand, sem nú telst til Úsbe- kistans, hjarta hennar. Blómatími borgarinnar var því á meðan silki- leiðin var enn við lýði. „Ég fór á námskeið í haust hjá Þorvaldi Friðrikssyni sagnfræðingi sem hefur ferðast mikið um þetta svæði og skipulagt ferðir þangað. Þá kom í ljós, eins og ég raunar vissi fyr- ir fram, að ég vissi ekkert um þessi lönd. Hafði aðeins heyrt um Samark- and úr textum laga. Mér fannst áhugavert að fara til Úsbekistans og skráði mig í hálfs mánaðar ferð Sögu- ferða sem farin var nú um páskana.“ Forn menntun og vísindi Hópurinn heimsótti fimm borgir, höfuðborgina Tashkent, Nukus sem er höfuðstaður sjálfstjórnarsvæðis- ins Karakalpakstan, Khiva, Bukhara og loks Samarkand. Einnig voru skoðuð svæði og fornar rústir í ná- grenni við borgirnar, allt frá tímum persneska spámannsins Saraþústra. Allt eru þetta gamlar menningar- og vísindaborgir frá því um 1000 eftir Krist en Samarkand stendur þó upp úr. Hún er ein elsta borg heims þar sem byggð hefur verið samfelld, talin 2.700 ára gömul. „Sagan opnast á ótrúlegan hátt með því að heimsækja þessa staði. Í Khiva voru stærðfræðingar snemma uppi því þar var núllið fundið upp og sömuleiðis algebra. Í Samarkand var lagður grunnur að nútímastjörnu- fræði nokkrum öldum áður en ítalski stærðfræðingurinn Galíleó Galíleí fór að líta til himins,“ segir Gunnlaugur. Íbúar borganna við silkileiðina nutu mjög góðs af viðskiptum og skatttekjum sem fylgdu flutning- unum. Með hnignandi efnahag á tólftu til fjórtándu öld í kjölfar þess að vöruflutningar á milli heimsálfa færðust af landi og út á sjó fór að bera á ófriði og óöryggi í Mið-Asíu og silkileiðin lagðist síðan af á 15. og 16. öld. Herir fóru þar um og lögðu svæðið undir sig. Nægir að minna á Alexander mikla og Genghis Khan. Því fylgdu stöðugar breytingar. Til að mynda lét Genghis Khan leggja borgina Bukhara í rúst eins og yfir- leitt allt sem hann æddi yfir með her sinn. Gunnlaugur segir að aðeins tvær byggingar í Bukhara frá því fyrir hans tíma hafi varðveist. Önnur er grafhýsi frá því um 900 sem bjarg- aðist með því að sandi var mokað yfir. „Fegursta borg heims“ Mikilvægur kafli í sögu Samark- and er Timurid-heimsveldið sem blóðþyrstur hershöfðingi, Timur að nafni, stofnsetti í Mið-Asíu og ná- grenni á seinni hluta 14. aldar. Hann vílaði ekki fyrir sér að drepa tugi þúsunda íbúa um leið og hann byggði upp borgina sem átti að verða feg- ursta borg heims. „Þar yrði sá gluggi sem skini skærast á móti sólinni,“ eins og fram kemur í texta sem Gunnlaugur vitnar til. Þar var jafn- framt lagður grunnur að miklu mennta- og vísindastarfi sem skein einna skærast þegar sonarsonur Timurs, Ulugh Beg, gerði merkar rannsóknir á gangi himintungla. Gunnlaugur segir að borgir í Ús- bekistan hafi oft farið illa í jarð- skjálftum, bæði Samarkand og aðrar borgir landsins. Þær hafi verið skráðar á heimsminjaská UNESCO og varðveittar og byggðar upp í sinni fyrri mynd. Þess vegna sé hægt að njóta hinnar fornu byggingarlistar, sem Timur hafði forgöngu um, enn þann dag í dag. Timur var hins vegar strikaður út úr sögu landsins, menn skömmuðust sín fyrir grimmdarverk hans, eða þar til Úsbekistan varð hluti af Sovétríkjunum. Þá fóru sov- éskir fræðimenn að kanna sögu svæðisins. Úsbekistan hefur verið sjálfstætt ríki frá árinu 1991. Sagan opnast á ótrúlegan hátt - Gunnlaugur A. Júlíusson og ferðafélagar hrifust af sögufrægu borginni Samarkand í Úsbekistan - Borgin var hjarta silkileiðarinnar - Blóðþyrstur herforingi byggði upp eina fegurstu borg heims Ljósmynd/Gunnlaugur A. Júlíusson Samarkand Þrjár menntastofnanir frá 15. og 17. öld standa við Registan-torgið í Samarkand, sú elsta er kennd við frumherjann í stjörnufræðum, Ulugh Beg. Annars var það afi Ulughs Begs, harðstjórinn Timur, sem byggði borgina. Kátur kryddsölumaður Hann þekkir vel til leiðtogafundarins í Höfða, svo og var hann hrifinn af „húi“ stuðningsmanna íslenska landsliðsins í fótbolta. „Það er auðvelt að ferðast um Asíu og margt merkilegt að sjá,“ segir Gunnlaugur Auðunn Júlíusson, sem mikið hefur ferðast um Asíu í tæpan áratug, í hópi áhugaljósmyndara og á eigin vegum. Gunnlaugur segist hafa miklu meiri áhuga á að ferðast um framandi slóðir en að liggja á sólarströnd. „Mér fannst Asía fjarlæg og framandi þangað til ég fór þangað fyrst. Þá sá ég auglýsta ljósmyndaferð til Taí- lands, Kambódíu og Víetnams. Þetta var vel heppnuð ferð. Þegar farið er um framandi lönd opnast fyrir manni sagan, miklu betur en við lestur bóka,“ segir Gunnlaugur. Hann nefnir að Angkor Wat-musterið í Kambó- díu sé eini staðurinn sem hann hefur heimsótt sem jafnist á við upplif- unina við að skoða byggingarnar við Registan-torgið í Samarkand. Þótt ekki sé ýkja langt síðan mannskætt stríð var háð í Víetnam og ýmis ófrið- ur verið í þessum löndum segist Gunnlaugur aldrei finna fyrir draugum fortíðar hjá fólkinu, nema þegar ferðast er um Kambódíu. Þar sitji að- gerðir Pols Pots og Rauðu Kmeranna gegn eigin íbúum enn í eldra fólki. Auðvelt að ferðast um álfuna HEFUR ÁHUGA Á ASÍU Gunnlaugur segir að það hafi hjálpað sér að nálgast fólk í Ús- bekistan að hann kann svolítið í rússnesku frá því hann var við störf í Rússlandi í tæpt ár fyrir allmörgum árum. „Það eru töl- uð nokkur tungumál í Úsbek- istan og yfirbragð fólks í helstu borgum virðist nokkuð mismun- andi. Þess vegna er rússneska notuð þegar fólk af ólíkum svæðum ræðir saman,“ segir Gunnlaugur og segir að það litla sem hann kunni í rússnesku hafi hjálpað sér. Til dæmis hafi kona í handverksverslun orðið hissa þegar Íslendingur kom til að versla, ekki síst vegna þess að hann gat bjargað sér smá- vegis á rússnesku. Bjargar sér á rússnesku NOKKUR TUNGUMÁL Félagar Gunnlaugur Júlíusson og Vilhjálmur Egilsson voru í hópnum. Ljósmynd/Gunnlaugur A. Júlíusson Ljósmynd/Ragnhildur Pála

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.