Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 28
Árborg
Árborg í Flóanum er fjölmennasta sveitarfélag
Suðurlands, sem hefur verið í örri upp-
byggingu. En því fylgja líka vaxtarverkir og
kosningarnar í vor snúast talsvert um þá.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
28
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
Við erum stolt fyrirtæki í
RÆKTUNARSAMBAND
FLÓA OG SKEIÐA
DAGMÁL
Andrés Magnússon
Stefán E. Stefánsson
Sveitarfélagið Árborg hefur verið í
mikilli sókn á síðustu árum en vaxt-
arverkir hafa gert vart við sig. Tals-
verður hallarekstur hefur verið á
rekstrinum og nam um tveimur
milljörðum á liðnu ári. Skuldir hafa
auk þess aukist og eru taldar munu
nema auk lífeyrisskuldbindinga um
30 milljörðum að tveimur árum liðn-
um.Þrátt fyrir stórar áskoranir er
sóknarhug að heyra meðal íbúanna.
Blaðamenn Morgunblaðsins komu
sér fyrir á annarri hæð gamla Lands-
bankahússins á Selfossi en þar er nú
starfrækt á tveimur hæðum fyrir-
tækið Bankinn Vinnustofa þar sem
fyrirtæki og einyrkjar geta leigt að-
gang að frábærlega heppnuðu vinnu-
rými sem nýtur sífell meiri vinsælda.
Gjörbreytt ásýnd
Helsta driffjöðurin að baki þessari
uppbyggingu í bankabyggingunni er
Leó Árnason, sem ásamt samstarfs-
mönnum hefur haft veg og vanda að
uppbyggingu nýja miðbæjarins á
Selfossi, uppbyggingarverkefni sem
hefur gjörbreytt ásýnd bæjarins og
vakið athygli langt út fyrir landstein-
ana.
Auk hans stefndu blaðamenn
Bárði Guðmundarsyni á svæðið.
Hann er fæddur á Selfossi 1952, rak
lengi vinsæla byggingavöruverslun í
bænum og hefur síðustu áratugi séð
til þess að íbúar Árborgar væru vel
tryggðir. Hann þekkir vel til þeirrar
miklu uppbyggingar sem sveitarfé-
lagið hefur gengið í gegnum á síð-
ustu árum.
Viðtalið við Leó og Bárð má nálg-
ast á hlaðvarpssíðu mbl.is og einnig á
helstu hlaðvarpsveitum á borð við
Spotify. Bárður segir ótrúlegt að
fylgjast með því hvernig vöxturinn
hefur verið. Fyrsta skotið hafi komið
1973 þegar gaus í Eyjum og fólk
flykktist upp á fastalandið. Þá hafi
hann í fyrsta skipti upplifað að hann
þekkti bókstaflega ekki alla íbúa
bæjarins. Síðan hafi uppbyggingin
verið mishröð en á síðustu áurm sé
hending ef hann þekki fólk sem hann
mætir á gangi um bæinn. Bárður
segir mikil lífsgæði felast í því að búa
á Selfossi, stutt sé í allar áttir, takt-
urinn sé rólegri en á höfuðborg-
arsvæðinu og að fólk hafi meiri tíma
fyrir sig og sína.
Leó Árnason er með mörg járn í
eldinum í bænum og stefnir á enn
frekari uppbyggingu í nýja mið-
bænum, þar sem fornfrægar en
horfnar byggingar á Íslandi rísa að
nýju og standa nú ljóslifandi frammi
fyrir íbúum bæjarins og gestum
hans.
Fólk hefur fleiri tækifæri
Hann segir í samtali við Dagmál
að mikil tækifæri felist í uppbygging-
unni á Selfossi. Sífellt fleiri geti unn-
ið 1-2 daga í Reykjavík en búið í
þægilegu umhverfi utan skarkala
stórborgarinnar. 1.400 til 1.800
manns fari yfir heiðina á degi hverj-
um og sæki þannig vinnu út fyrir Ár-
borgarsvæðið. Það sé möguleiki fyrir
sífellt fleiri og að þróunin verði enn
frekar í þessa átt á komandi árum.
Hann telur alveg óhætt að veðja á
framtíð Árborgar og vinnur nú m.a.
að undirbúningi stórrar íbúabyggðar
sem verður enn ein viðbótin við bæj-
armyndina við Ölfusá.
Frekari uppbygging í farvatninu
- Árborg í miklum uppbyggingarfasa - Breyttir atvinnuhættir auka styrk svæðisins - Selfoss hef-
ur í raun breyst úr bæ í borg á síðustu árum - Fjölskyldur sækja aukin lífsgæði austur fyrir fjall
Morgunblaðið/Brynjólfur Löve
Atvinnulíf Bárður Guðmundarson rak um langt skeið verslunin á GÁB og
síðar fyrir TM. Leó Árnason hefur leitt uppbyggingu í nýjum miðbæ á Sel-
fossi. Verkefnið hefur vakið mikla athygli víða og hlotið lof á erlendis.
2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR