Morgunblaðið - 28.04.2022, Page 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Enn hefur ekki tekist að finna björg-
unarbát til að taka við verkefnum
björgunarbátsins Kobba Láka á Bol-
ungarvík, en bát-
urinn sökk í ill-
viðri 8. febrúar
síðastliðinn er
hann var bundinn
við bryggju. Við-
bragðsgeta á
Vestfjörðum er
því skert en um-
ferð á sjó á svæð-
inu eykst einmitt
á vorin og nær há-
marki á sumrin.
Í kjölfar tjónsins var sett markmið
um að finna notaðan björgunarbát, en
það var hægara sagt en gert. „Notaði
markaðurinn er mjög erfiður núna,“
útskýrir Örn Smárason, verkefna-
stjóri sjóbjörgunar hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
Hann segir hækkun álverðs um
40% á skömmum tíma hafi haft mikil
áhrif þar sem mikið af áli er nýtt í
báta af þessum stærðum. Vekur hann
athygli á að í vetur hafi verið komið
auga á notaðan bát í eigu norska
björgunarfélagsins Redningsselska-
pet, en að verðið hafi þá verið 950 þús-
und norskar krónur eða um 13,5 millj-
ónir íslenskra króna. Þegar átti hins
vegar að ganga til kaupa á bátnum
var verðið skyndilega orðið 1.750 þús-
und norskar krónur eða 24,7 milljónir
íslenskra króna.
Þá hafa verið skoðaðir notaðir
finnskir björgunarbátar en þeir eru
jafnvel dýrari en þeir norsku, segir
Örn. „Björgunarsveitin Ernir hefur
fengið Kobba Láka bættan, enda alt-
jón. Það virðist samt einhver áhugi á
skelinni og vonandi slær sala á henni
aðeins á þetta högg.“
Þurfa fjölbreyttar bjargir
Ekki er vitað hvenær hægt verður
að tryggja nýjan bát og hefur komið til
skoðunar að tímabundið taka í notkun
eldri bát frá Vestmananeyjum þegar
nýr bátur fæst þangað.
Örn viðurkennir að viðbragðsgetan
verður skert þar til einhver lausn er
fundin í málinu. „Við erum að leita
allra leiða. Því miður er það staðan og
það er mikil sjósókn og mikill fjöldi
ferðamanna á svæðinu á sumrin. Á
þessu svæði eru 25 til 40 aðgerðir á sjó
á hverju ári og þurfa að vera fjöl-
breyttar bjargir eins og Kobbi Láka
sem var mjög hraðskreiður bátur.“
Bendir hann á útkall á svæðinu á
mánudag máli sínu til stuðnings, en þá
var töluverður viðbúnaður hjá Land-
helgisgæslu og björgunarsveitum á
norðanverðum Vestfjörðum vegna
frístundaveiðibáts með sex um borð
sem ekki náðist sambandi við. Loks
tókst að ná sambandi við bátinn er
hann var á siglingu inn Önundarfjörð.
„Svona útköll eru mjög algeng á
þessu svæði.“
Björgunarbáturinn Kobbi Láka
hafði, þegar hann sökk, verið í þjón-
ustu Ernis frá 2019 þegar báturinn
var keyptur af björgunarsveitinni Ár-
sæli í Reykjavík. Báturinn var smíð-
aður 1998 hjá Holen Mekaniske
Verksted í Noregi og yfirfarinn 2005.
Lengd bátsins var 9,65 metrar og
breiddin 3,6 metrar en djúprista er
0,65 metrar. Um borð voru tvær Yan-
mar 338 kílóvatta vélar með jet-
skrúfubúnaði, drægni um 120 sjómíl-
ur. Þá var Kobbi Láka útbúinn sjó- og
brunadælum sem dæla 400 lítrum á
mínútu, dráttartógi og öflugum sigl-
ingatækjum.
- Leita báts í stað Kobba Láka - Umfangsmiklar verðhækkanir á áli trufla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björgunarbátur Kobbi Láka sökk 8. febrúar 2022 eftir að hafa verið í þjónustu Ernis frá árinu 2019. Erfiðlega gengur að finna nýjan björgunarbát.
Örn Smárason
Viðbragðsgeta björgunar-
sveita á Vestfjörðum skert
Viðskipti
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
EIN RAFHLAÐA
+ Öll verkfæri fyrir garðinn,
heimilið og bílskúrinn
SAGA
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Markaðsverð á eldislaxi hefur hækkað fimmtu vikuna í röð og hefur því
enn eitt metið verið sett, en samkvæmnt vísitölu Nasdaq náði meðalverð á
laxi í sláturstærð (3-6 kíló) í síðustu viku 115,17 norskum krónum á kíló eða
1.621 íslenskri krónu. Um er að ræða 4,79% verðhækkun milli vikna en í
síðustu viku var meðalverð 33,34% hærra en fjórum vikum á undan og
62,66% hærra en tólf vikum á undan. Hæsta meðalverð fékkst fyrir lax á
bilinu 7-8 kíló en minnst fyrir 1-2 kílóa lax. gso@mbl.is
Verð á eldislaxi heldur áfram að hækka