Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 36
Dreifing heildarlauna starfsfólks í fullu starfi 2021 Þúsundir króna á mánuði 10% 8% 6% 4% 2% 0% <350 350- 400 400- 450 450- 500 500- 550 550- 600 600- 650 650- 700 700- 750 750- 800 800- 850 850- 900 900- 950 950- 1.000 1.000- 1.050 1.050- 1.100 1.100- 1.150 1.150- 1.200 1.200- 1.250 1.250- 1.300 1.300- 1.350 1.350- 1.400 1.400- 1.450 1.450- 1.500 1.500+ 0,1% 0,8% 4,4% 5,5% 6,2% 7,6% 9,2% 9,5% 8,9% 7,7% 6,6% 5,4% 4,6% 3,9% 3,2% 2,4% 2,0% 1,5% 1,2% 1,3% 1,0% 0,8% 0,8% 0,7% 4,6% H ei m ild :H ag st of a Ís la nd s 823 þúsund kr. voru heildar- laun fólks í fullu starfi að meðaltali árið 2021 þús.kr.: B A N K I SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is H eildarlaun fólks í fullu starfi á vinnumark- aðinum voru að með- altali 823 þúsund krónur á mánuði í fyrra. Árið 2019 voru þau til samanburðar 754 þúsund kr., á árinu sem lífskjarasamningarnir voru gerðir og hafa hækkað um rúm níu prósent. Inni í heildarlaununum eru einnig greiðslur fyrir yfirvinnu en ef eingöngu er litið á regluleg laun fólks í fullu starfi, þ.e.a.s. greidd mánaðarlaun fyrir umsaminn vinnutíma í dagvinnu og vaktavinnu, kemur í ljós að þau voru að meðaltali 711 þúsund krónur á síðasta ári. Voru 80 þúsundum kr. hærri á mán- uði að jafnaði í fyrra en á árinu 2019 og höfðu hækkað hlutfallslega meira en heildarlaunin eða um 12,5%. Þetta má lesa út úr viðamikilli launatölfræði sem Hagstofa Íslands birti í gær. Meðaltöl sem slík gefa þó aðeins takmarkaða mynd af launa- dreifingunni í landinu, sem er mis- munandi eftir starfsstéttum. Fram kemur að regluleg laun 63% launa- fólks eru undir meðallaununum og tæpur fjórðungur var í fyrra með heildarlaun undir 600 þúsund krón- um á mánuði. Ósérhæft starfsfólk var með 582 þúsund kr. í heildarlaun að jafnaði í fyrra en stjórnendur fyrrtækja og yfirmenn deilda fengu að meðaltali tæplega 1,3 milljónir kr. á mánuði. Hagstofan bendir á að um helmingur stjórnenda voru með heildarlaun á bilinu 800 til 1.300 þús- und kr. á mánuði en um helmingur verkafólks var með heildarlaun á bilinu 400 til 650 þúsund kr. Tölur Hagstofunnar um laun eftir starfsstéttum og hópum benda ótvírætt til þess að lægst launuðu hóparnir, ósérhæft starfsfólk, verka- fólk og sölu- og afgreiðslufólk, hafi hækkað hlutfallslega meira en aðrir hópar frá 2019. Þannig hafa t.d. regluleg laun verkafólks í fullu starfi hækkað úr 441 þúsund kr. á mánuði á árinu 2019 að meðaltali í 517 þús- und kr. í fyrra eða um 17,2% og heildarlaunin hækkuðu úr 574 þús. kr. í 658 þús. kr í fyrra eða um 14,6%. Til samanburðar voru reglu- leg laun sérfræðinga um 74 þús. kr. hærri í fyrra en á árinu 2019 eða 774 þús. kr. að meðaltali (rúmlega tíu prósent hækkun) og regluleg laun tækna og sérmenntaðs starfsfólks voru að jafnaði 740 þús. kr. á mánuði í fyrra eða 56 þús. kr. hærri en á árinu 2019. Fram kemur að tæpur fjórðungur iðnaðarmanna var með heildarlaun yfir einni milljón króna á mánuði í fyrra og að einn af hverj- um þremur í sölu- og afgreiðslu- störfum var undir 500 þúsund krón- um. Vítt launabil en mest hækkun lægstu hópa Morgunblaðið/Eggert Við störf Regluleg mánaðarlaun voru að jafnaði 711 þúsund í fyrra. 36 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eins og les- endur þekkja hef- ur Morgunblaðið hin síðari ár boðið þingmönnum valda af einstökum flokk- um að birta reglu- bundnar greinar á virðulegum stað þar. Þetta var gert í tilraunaskyni og hefur að mati blaðsins reynst vel í öllum meg- inatriðum. Það segir sig sjálft að áherslur og skoðanir sem birtast í þessum greinum eru ekki endilega líklegar til að end- urspegla margvísleg sjónarmið sem birtast í ritstjórnargreinum sama blaðs og eru á ábyrgð rit- stjórnar þess. Í blaði gærdagsins birtist grein eftir þingmann Flokks fólksins, Ásthildi Lóu Þórs- dóttur í þessum dálki. Þar sagði: Í gær bárust fréttir af því að fjárfestingafélagið SKEL hefði selt hlutinn sem félagið keypti í Íslandsbanka fyrir mánuði síð- an og keypt 2,5% hlut í VÍS fyrir 800 milljónir króna. Að ein- hverjum hluta fengu þeir sem seldu bréfin í VÍS greitt með bréfum fjárfestingafélagsins í Íslandsbanka. Fyrir þá sem ekki vita þá heitir stjórnarformaður SKEL Jón Ásgeir Jóhannesson en hann fer fyrir eignarhaldfélagi sem á yfir 50% í SKEL. Kannski muna einhverjir eft- ir því að fyrir nokkrum árum átti Jón Ásgeir ráðandi hlut í þessum sama banka. Sá banki, ásamt nokkrum öðrum, tók eft- irminnilega kollsteypu eftir glæfralegan bankarekstur Jóns og félaga hans. Jón gerði sér lít- ið fyrir og stakk af úr landi með fenginn, og skildi heilt þjóðfélag eftir í sárum. Litlar heimtur voru frá hon- um og félögum hans upp í þann skaða sem þeir höfðu valdið, en hitt er ljóst að ekki hafa þeir lið- ið skort síðan og komið ár sinni ágætlega fyrir borð á ný, eins og fréttir síðustu vikna og dagsins í dag bera með sér. Það sama verður ekki sagt um þá sem sátu í illa þefjandi súp- unni sem Jón og félagar hans í hinum bönkunum skildu eftir. Þúsundir heimila sátu uppi með reikninginn frá Jóni og fé- lögum og að minnsta kosti 15.000 fjölskyldur misstu heim- ili sín vegna þess skaða sem hann og nokkrir aðrir ollu og þá eru enn ótaldar þær þúsundir sem rétt náðu að halda heimili sínu með því að gera nauða- samninga við bankann sem setti þau í klafa fátæktar og skorts. En „Jón er kominn heim“ eins og segir í gömlu dægurlagi og hann er kominn með stæl. Ekki til að biðjast afsökunar á misgjörðum sínum og skað- anum sem hann olli. Nei, hann er kominn til að taka meira. Hann er kominn til baka með peningana sem hann, með beinum eða óbeinum hætti, fékk úr bankanum til að kaupa hann aftur. Jón Ásgeir ætlar sér stóra hluti og slær um leið blautri tusku fast í andlit fórnarlamba sinna. Gríðarlegur hagnaður Ís- landsbanka á undanförnum ár- um byggir á lífsstarfi þeirra sem var fórnað til að bæta skað- ann sem Jón Ásgeir olli. Jón Ás- geir keypti banka, setti hann á hausinn, skeytti engu um afleið- ingarnar, kom aftur, keypti bankann, seldi bankann og keypti tryggingafélag fyrir bréfin í þessum banka. Geri aðr- ir betur. Engin skömm, engin auð- mýkt, hvað þá að hann biðji fórnarlömb sín afsökunar. Bara hroki, ÉG á þetta, ÉG má þetta, ÉG get þetta.“ Þessi grein þingmannsins úr Flokki fólksins er einkar at- hyglisverð. En ýmsum gæti þótt millikaflinn sem ekki komst fyrir í svo stuttri grein ekki vera síður merkilegur. Skeljungur var keyptur. Hluthöfum var skömmu síðar boðið að selja nýjum eigendum bréf á nokkru, en þó mjög varfærnu yfirverði. Ýmsir lífeyrissjóðir héldu að sér höndum í þeim efnum og nú er talað um að „þeir hafi lokast inni“ eins og kallað er. Nú virð- ist vera að koma smám saman í ljós að stóri hluthafinn hafi staðið í miklu leynibralli við borgarstjórann í Reykjavík. Það brall hafi aldrei verið rætt upp á borðum borgarstjórnar, sem sætir miklum tíðindum, ef rétt er. Ljóst er þó að einhverjir úr hópi borgarfulltrúa hafa komið að málinu ásamt Degi B. Egg- ertssyni og hafa vitað meira um málið en aðrir borgarfulltrúar og hvað þá almenningur í borg- inni. Það verður varla hægt að kalla það annað en samsæri af hálfu borgarstjórans og þeirra sem að brugginu standa að láta eins og ekkert sé á meðan borg- arbúar eru plataðir að kjörborð- inu. Mikið hefur verið fundið að söluaðferðum á Íslandsbanka og virðist óneitanlega óhönduglega hafa verið haldið um sölu hans. En umrætt milljarðatugabrask undir handarjaðri borgarstjór- ans og söguhetjunnar í grein Ásthildar Lóu þingmanns virð- ist enn síður þola dagsljósið. Hlýtur að teljast með miklum ólíkindum ef forráðamenn Kauphallarinnar standi ekki þegar í stað fyrir trúverðugri rannsókn á málinu og því hvern- ig almennir hluthafar voru leyndir flestu af því sem fram fór og kostaði þá fúlgur fjár, þótt mest af því sé mun dreifð- ara en hitt sem verður eftir í höndum köldu karlanna. Það er vissulega ákveðin staðfesta að halda sér við sama heygarðs- hornið, sem reyndist svo fengsælt forðum.} Hrópar á dagsljós H ún er áhugaverð þessi sérsniðna stóra mynd sem ríkisstjórn- arflokkarnir þrír vilja að ein- blínt sé á í tengslum við Ís- landsbankasöluna. Að stjórnvöld hafi selt hlut í Íslandsbanka fyrir 108 milljarða í tveimur atrennum. Að það eigi bara að horfa á þá mynd en ekki þetta „smot- terí“ sem misfórst í seinni sölunni. Þið vitið, þetta með þóknun upp á 700 milljónir, óþarfan afslátt upp á tvo milljarða, ógegnsæi í fram- kvæmd og ósamræmi við sett markmið með sölu til smárra aðila sem sumir eru vinir, vandamenn og starfsmenn þeirra sem báru ábyrgð á sölunni. Þetta eru smáatriði í stóru myndinni þeirra. „Ég flyt ykkur fréttir. Það er ríkissjóður Ís- lands sem heldur á 42,5 prósentum,“ sagði Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra um hver hefði hagnast mest á því að gengi hlutabréfa í Íslandsbanka hefði hækkað eftir útboðið. Og þar með skipti það engu að misjafnlega hæfir fagfjárfestar hefðu fengið óþarfa afslátt og hagnast fyrirhafnarlaust yfir nótt. Ég ætla líka að flytja ykkur fréttir. Sjálfstæðisflokk- urinn hefur með dyggum stuðningi Framsóknarflokks og VG klúðrað þessari bankasölu þannig að ekki verður lengra gengið í bili. Ríkisstjórnin hefur hætt við frekari sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Það eru í sjálfu sér eðlileg viðbrögð við því sem ríkisstjórnin hef- ur svo sannarlega fengið að finna fyrir, því að traust almennings til hennar er farið. Rík- isstjórn sem ber ekki virðingu fyrir því að hér þarf að ríkja traust á fjármálamarkaði endar á því að verða sjálf rúin trausti. Viðreisn hefur stutt sölu á hlut ríkisins í Ís- landsbanka. Forsendan hefur verið að salan yrði á grundvelli almannahagsmuna með gegnsæi, jafnræði og traust í fyrirrúmi. Svo fór ekki, eins og þekkt er orðið. Í kjölfarið er sala á þeim hluta bankans sem eftir stendur í eigu ríkisins fyrir bí – og þar með sú 100 milljarða fjárfesting í innviðum og nið- urgreiðslu skulda sem fyrirhuguð var til við- bótar. Hvernig ætlar ríkisstjórnin að mæta þessari breyttu stöðu? Með því að draga úr nauðsynlegri innviðauppbyggingu? Með frek- ari skuldasöfnun? Með skattahækkunum? Lærdómurinn er sá að Sjálfstæðisflokknum er ekki treystandi til að selja ríkiseignir. Þar virðist lítill áhugi á að tryggja það lykilatriði sem Viðreisn hefur alla tíð lagt áherslu á þegar kemur að sölu ríkiseigna, að salan þurfi að vera í þágu almennings. Ekki útvalinna. Takk fyrir ekkert Sjálfstæðisflokkur. hannakatrin@althingi.is Hanna Katrín Friðriksson Pistill Takk fyrir ekkert Höfundur er Þingflokksformaður Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Verulegur launamunur er á milli starfa skv. nýbirtum töl- um Hagstofunnar. „Sé horft til einstakra starfa voru for- stjórar og aðalframkvæmda- stjórar fyrirtækja og stofnana að jafnaði með hæstu launin eins og verið hefur síðustu ár eða rúmlega tvær milljónir króna að meðaltali á mánuði árið 2021,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar. Lægstu heild- arlaunin fyrir fullt starf voru fyrir störf við barnagæslu eða 471 þúsund kr. á mánuði. Heildarlaun afgreiðslufólks í dagvöruverslunum voru að meðaltali um 514 þús. kr. í fyrra, í umönnun og aðstoð í heilbrigðisgreinum og fé- lagsþjónustu voru þau um 524 þús.kr., og í iðnaði og fiskvinnslu 563 þúsund kr. á mánuði, svo dæmi séu nefnd. „Dómarastörf, sérfræðistörf við lækningar, sérfræðistörf tengd ráðgjöf og sölu verð- bréfa, sérfræðistörf tengd skipa- og flugsamgöngum og störf æðstu embættismanna ríkis og sveitarstjóra eru dæmi um störf þar sem heild- arlaun eru að meðaltali 1,5 milljón krónur eða hærri á mánuði,“ segir í umfjöllun Hagstofunnar. 471 þús. og á þriðju milljón LÆGSTU OG HÆSTU LAUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.