Morgunblaðið - 28.04.2022, Síða 40

Morgunblaðið - 28.04.2022, Síða 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022 Ferðalög á Haustið 2020 settu Páll Ásgeir Ás- geirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir af stað verkefni á vegum Ferða- félags Íslands sem var kallað Hjól og fjall. Eins og heitið ber með sér fólst verkefnið í því að safna saman áhugasömum hjólurum og fara með þá í hjólatúra sem jafnframt fólu í sér stutta fjallgöngu. „Við höfðum lengi notað svona túra sem æfingar fyrir okkur prívat til þess að halda okkur í formi. Það fólst yfirleitt í því að hjóla að heim- an, upp að einhverju fjalli, ganga á það og hjóla svo heim aftur,“ segir Rósa Sigrún aðspurð. „Litlu fjöllin í nágrenni Reykja- víkur eins og t.d. Úlfarsfell, Helga- fell og Mosfell henta vel í svona túra. Þá er hjólað ca 25-35 km eftir atvikum og gengið ca 4-6 km. Há- markið er svo að hjóla upp að Esju, ganga upp að Steini og hjóla heim aftur. Þá gerir maður ekki meira þann daginn.“ Rafhjól og „hjartaknúin“ í bland Verkefnið fékk mjög góðar við- tökur og hefur verið á dagskrá þrisvar sinnum síðan og uppbygg- ingin að jafnaði svipuð. Þátttak- endur eru beðnir að koma á fjalla- hjólum – svokölluðum „hardtail“-- hjólum sem eru með dempara á framhjóli en ekki afturhjóli. Oft liggja leiðir hópsins eftir misgrófum malarvegum og um fáfarnar slóðir eða jafnvel einbreiða stíga sem erf- itt er að hjóla nema með fullri að- gát. Hópurinn hefur samt alltaf ver- ið blandaður í þeim skilningi að sumir eru á fulldempuðum fjalla- hjólum og einnig hafa rafhjóla- eigendur verið meðal þátttakenda. Í hópnum er oft sagt að annars vegar séu rafknúin hjól og hins vegar hjartaknúin og hefur farið vel á með þessum ekki svo ólíku hópum því hvað hefur til síns ágætis nokkuð. Hjólað út um allt Hjól og fjall hefur víða farið í ná- grenni Reykjavíkur og hjólað og gengið á eða í kringum mörg fjöll og farið margar þröngar götur og stíga. Oft hafa hjólarar samt lagt land undir fót og hjól og ferðast hér og þar um svæðið frá Snæfellsnesi austur að Vík í Mýrdal. Af sjálfu leiðir að þátttakendur þurfa að eiga góða hjólafestingu á bílinn eða hafa tök á að flytja hjólið inni í bílnum. Verkefnin sem hópurinn hefur tekist á við hafa verið misjafnlega metnaðarfull eða erfið. Sem dæmi um erfiðar hjólaferðir mætti nefna 40 km hring á Markarfljótsaurum með göngu á Dímon, hringinn um Hafursey á Mýrdalssandi með til- raun til að ganga á fjallið og lengsta ferð hópsins var þegar hjólað var frá Arnarstapa umhverfis Snæfells- jökul en sá leiðangur innibar um 800 metra hækkun. Í þessu verkefni takast hjólarar á við ýmis verkefni sem að jafnaði verða ekki á vegi þeirra sem hjóla til vinnu sinnar eftir malbikuðum stígum. Hjóla þarf yfir læki og jafn- vel straumharðar ár og hafa þátt- takendur marga fjöruna sopið í þeim efnum, t.d. í hjólatúr nálægt Löngufjörum á Snæfellsnesi þar sem sæta þarf sjávarföllum til þess að komast á leiðarenda á Litla- Hrauni þar sem Ásta Sigurðardóttir skáldkona og listamaður fæddist. „Okkur hefur virst að þetta verk- efni laði að sér fólk sem hefur gam- an af hæfilegu slarki og áskorunum. Þótt þátttakendur komi iðulega blautir og grútskítugir í mark þá er brosið alltaf breitt því æsilegar hjól- reiðar leiða einhvern gáska og gleði úr læðingi sem maður finnur ekki annars staðar,“ segir Páll Ásgeir, annar umsjónarmanna verkefnisins. FÍ Hjól og fjall starfaði síðast á haustdögum 2021. Í vetur var fitjað upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp á reglulegar hjólaæfingar eftir vinnu á þriðjudögum og hefur lítill hópur fólks hist í Elliðaárdal og Nauthólsvík og haldið sér í hjóla- þjálfun. Í snjóþyngslum vetrarins reyndi oft á tíðum verulega á hjóla- færni þátttakenda en æfing var samt aðeins einu sinni felld niður vegna veðurs frá janúar til þessa dags. Markmið þessa verkefnis og um- sjónarmanna þess var að nota hjólið til náttúruskoðunar. Í fyrsta lagi er gaman að hjóla í sjálfu sér, því fylgir hraði og spenningur sem mynda aðra stemningu en almennt tíðkast í gönguferðum. Hjól og maður þurfa að vera eitt Fá skáld hafa ort um reiðhjól og hjólreiðar en þjóðskáld Íslands, Þórarinn Eldjárn, hefur þó gert það. Kvæði hans Möwekvæði sem fjallar um samband manns og hjóls hefur verið haft yfir í hjólaferðum Páls Ásgeirs og Rósu Sigrúnar. Einnig hafa menn mikið dálæti á öðru kvæði Þórarins sem fjallar um hjólreiðar en þar segir frá óförum Jóhannesar Birkiland á reiðhjóli í miðborg Reykjavíkur. Þar segir: „Lítt vanur reiðhjóli rauk ég eins og fleygur með rasandi fart um Austur- strætið breitt. Í höfði mínu og hjarta ríkti geig- ur því hjól og maður þurfa að vera eitt.“ Náttúruskoðun á hjóli Með reiðhjóli er auðvelt að fara langar vegalengdir og skoða marg- falt stærra svæði en í gönguferðum. Á reiðhjóli er samt auðvelt að njóta samvista við náttúruna því hjól og maður eru úti í beinu sambandi við umhverfið, vindinn, fuglana og landslagið. Með því að leggja leiðina um áhugaverðar söguslóðir og við- hafa vandaða leiðsögn er hægt að búa til nýja upplifun fyrir útivistar- fólk þar sem hjólreiðar og göngu- ferðir renna saman. Nú þegar sól hækkar á lofti og sumar gengur formlega í garð ætlar Ferðafélag Íslands að bjóða upp á hjólaferðir undir heitinu: Hjól og fjall undir stjórn Páls Ásgeirs og Rósu Sigrúnar. Þessar ferðir verða öllum opnar og hægt að bóka sæti gegnum netið fáum dögum áður. Hægt er að fylgjast með á vef Ferðafélags Íslands – www.fi.is og ekki missir sá sem fyrstur fær. Texti og myndir: Páll Ásgeir Ásgeirsson Hjól og fjall fer aftur af stað Verkefnið Hjól og fjall gengur út á það að safna saman áhuga- sömum hjólurum og fara með þá í hjólatúra sem jafnframt fela í sér stutta fjallgöngu. Hjólamaður í erfiðum að- stæðum á Hólmsheiði. Hópur frá Ferðafélagi Íslands á Jökulhálsi á Snæfellsnesi. Glaður hjólamaður á Vatnaleið á Hellisheiði. Vaskir hjólamenn við Hafursey á Mýrdalssandi. LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . Jóga, slökun & sæla 13. júní í 10 nætur með Auði Bjarnadóttur á Krít 595 1000 www.heimsferdir.is 339.900 Flug & hótel frá 12 nætur Fararstjóri: Auður Bjarnadóttir SÉRFERÐ FULLT FÆÐI INNIFALIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.