Morgunblaðið - 28.04.2022, Side 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
Ferðalög á
Haustið 2020 settu Páll Ásgeir Ás-
geirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
af stað verkefni á vegum Ferða-
félags Íslands sem var kallað Hjól
og fjall. Eins og heitið ber með sér
fólst verkefnið í því að safna saman
áhugasömum hjólurum og fara með
þá í hjólatúra sem jafnframt fólu í
sér stutta fjallgöngu.
„Við höfðum lengi notað svona
túra sem æfingar fyrir okkur prívat
til þess að halda okkur í formi. Það
fólst yfirleitt í því að hjóla að heim-
an, upp að einhverju fjalli, ganga á
það og hjóla svo heim aftur,“ segir
Rósa Sigrún aðspurð.
„Litlu fjöllin í nágrenni Reykja-
víkur eins og t.d. Úlfarsfell, Helga-
fell og Mosfell henta vel í svona
túra. Þá er hjólað ca 25-35 km eftir
atvikum og gengið ca 4-6 km. Há-
markið er svo að hjóla upp að Esju,
ganga upp að Steini og hjóla heim
aftur. Þá gerir maður ekki meira
þann daginn.“
Rafhjól og „hjartaknúin“ í
bland
Verkefnið fékk mjög góðar við-
tökur og hefur verið á dagskrá
þrisvar sinnum síðan og uppbygg-
ingin að jafnaði svipuð. Þátttak-
endur eru beðnir að koma á fjalla-
hjólum – svokölluðum „hardtail“--
hjólum sem eru með dempara á
framhjóli en ekki afturhjóli. Oft
liggja leiðir hópsins eftir misgrófum
malarvegum og um fáfarnar slóðir
eða jafnvel einbreiða stíga sem erf-
itt er að hjóla nema með fullri að-
gát. Hópurinn hefur samt alltaf ver-
ið blandaður í þeim skilningi að
sumir eru á fulldempuðum fjalla-
hjólum og einnig hafa rafhjóla-
eigendur verið meðal þátttakenda. Í
hópnum er oft sagt að annars vegar
séu rafknúin hjól og hins vegar
hjartaknúin og hefur farið vel á með
þessum ekki svo ólíku hópum því
hvað hefur til síns ágætis nokkuð.
Hjólað út um allt
Hjól og fjall hefur víða farið í ná-
grenni Reykjavíkur og hjólað og
gengið á eða í kringum mörg fjöll
og farið margar þröngar götur og
stíga. Oft hafa hjólarar samt lagt
land undir fót og hjól og ferðast hér
og þar um svæðið frá Snæfellsnesi
austur að Vík í Mýrdal. Af sjálfu
leiðir að þátttakendur þurfa að eiga
góða hjólafestingu á bílinn eða hafa
tök á að flytja hjólið inni í bílnum.
Verkefnin sem hópurinn hefur
tekist á við hafa verið misjafnlega
metnaðarfull eða erfið. Sem dæmi
um erfiðar hjólaferðir mætti nefna
40 km hring á Markarfljótsaurum
með göngu á Dímon, hringinn um
Hafursey á Mýrdalssandi með til-
raun til að ganga á fjallið og lengsta
ferð hópsins var þegar hjólað var
frá Arnarstapa umhverfis Snæfells-
jökul en sá leiðangur innibar um
800 metra hækkun.
Í þessu verkefni takast hjólarar á
við ýmis verkefni sem að jafnaði
verða ekki á vegi þeirra sem hjóla
til vinnu sinnar eftir malbikuðum
stígum. Hjóla þarf yfir læki og jafn-
vel straumharðar ár og hafa þátt-
takendur marga fjöruna sopið í
þeim efnum, t.d. í hjólatúr nálægt
Löngufjörum á Snæfellsnesi þar
sem sæta þarf sjávarföllum til þess
að komast á leiðarenda á Litla-
Hrauni þar sem Ásta Sigurðardóttir
skáldkona og listamaður fæddist.
„Okkur hefur virst að þetta verk-
efni laði að sér fólk sem hefur gam-
an af hæfilegu slarki og áskorunum.
Þótt þátttakendur komi iðulega
blautir og grútskítugir í mark þá er
brosið alltaf breitt því æsilegar hjól-
reiðar leiða einhvern gáska og gleði
úr læðingi sem maður finnur ekki
annars staðar,“ segir Páll Ásgeir,
annar umsjónarmanna verkefnisins.
FÍ Hjól og fjall starfaði síðast á
haustdögum 2021. Í vetur var fitjað
upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp
á reglulegar hjólaæfingar eftir
vinnu á þriðjudögum og hefur lítill
hópur fólks hist í Elliðaárdal og
Nauthólsvík og haldið sér í hjóla-
þjálfun. Í snjóþyngslum vetrarins
reyndi oft á tíðum verulega á hjóla-
færni þátttakenda en æfing var
samt aðeins einu sinni felld niður
vegna veðurs frá janúar til þessa
dags.
Markmið þessa verkefnis og um-
sjónarmanna þess var að nota hjólið
til náttúruskoðunar. Í fyrsta lagi er
gaman að hjóla í sjálfu sér, því
fylgir hraði og spenningur sem
mynda aðra stemningu en almennt
tíðkast í gönguferðum.
Hjól og maður
þurfa að vera eitt
Fá skáld hafa ort um reiðhjól og
hjólreiðar en þjóðskáld Íslands,
Þórarinn Eldjárn, hefur þó gert
það. Kvæði hans Möwekvæði sem
fjallar um samband manns og hjóls
hefur verið haft yfir í hjólaferðum
Páls Ásgeirs og Rósu Sigrúnar.
Einnig hafa menn mikið dálæti á
öðru kvæði Þórarins sem fjallar um
hjólreiðar en þar segir frá óförum
Jóhannesar Birkiland á reiðhjóli í
miðborg Reykjavíkur. Þar segir:
„Lítt vanur reiðhjóli rauk ég eins
og fleygur
með rasandi fart um Austur-
strætið breitt.
Í höfði mínu og hjarta ríkti geig-
ur
því hjól og maður þurfa að vera
eitt.“
Náttúruskoðun á hjóli
Með reiðhjóli er auðvelt að fara
langar vegalengdir og skoða marg-
falt stærra svæði en í gönguferðum.
Á reiðhjóli er samt auðvelt að njóta
samvista við náttúruna því hjól og
maður eru úti í beinu sambandi við
umhverfið, vindinn, fuglana og
landslagið. Með því að leggja leiðina
um áhugaverðar söguslóðir og við-
hafa vandaða leiðsögn er hægt að
búa til nýja upplifun fyrir útivistar-
fólk þar sem hjólreiðar og göngu-
ferðir renna saman.
Nú þegar sól hækkar á lofti og
sumar gengur formlega í garð ætlar
Ferðafélag Íslands að bjóða upp á
hjólaferðir undir heitinu: Hjól og
fjall undir stjórn Páls Ásgeirs og
Rósu Sigrúnar. Þessar ferðir verða
öllum opnar og hægt að bóka sæti
gegnum netið fáum dögum áður.
Hægt er að fylgjast með á vef
Ferðafélags Íslands – www.fi.is og
ekki missir sá sem fyrstur fær.
Texti og myndir: Páll Ásgeir
Ásgeirsson
Hjól og fjall fer aftur af stað
Verkefnið Hjól og fjall
gengur út á það að
safna saman áhuga-
sömum hjólurum og
fara með þá í hjólatúra
sem jafnframt fela í sér
stutta fjallgöngu.
Hjólamaður í erfiðum að-
stæðum á Hólmsheiði.
Hópur frá Ferðafélagi Íslands á
Jökulhálsi á Snæfellsnesi.
Glaður hjólamaður á
Vatnaleið á Hellisheiði.
Vaskir hjólamenn við
Hafursey á Mýrdalssandi.
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
Jóga, slökun & sæla
13. júní í 10 nætur
með Auði Bjarnadóttur á Krít
595 1000 www.heimsferdir.is
339.900
Flug & hótel frá
12 nætur
Fararstjóri:
Auður Bjarnadóttir
SÉRFERÐ
FULLT FÆÐI INNIFALIÐ