Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
50 ÁRA Rut ólst upp í Reykjavík
en býr í Mosfellsbæ. Rut er grunn-
skólakennari að mennt frá Kenn-
araháskóla Íslands 1999 og einnig
djákni frá Háskóla Íslands 2011 og
var vígð sama ár til þjónustu innan
þjóðkirkjunnar.
Hún byrjaði sinn kennsluferil í
Hvassaleitisskóla í Reykjavík en
færði sig í Lágafellsskóla 2005 þeg-
ar hún flutti í Mosfellsbæinn. Hún
hefur undanfarin ár starfað í Lága-
fellsskóla og Lágafellskirkju, en tók
sér launalaust leyfi í vetur frá kirkj-
unni þegar hún tók við stöðu deild-
arstjóra stoðþjónustu í Lágafells-
skóla. „Ég held utan um stoð-
þjónustu skólans svo sem sér-
kennslu og önnur sérúrræði sem
skólakerfið sinnir.“
Áhugamál Rutar eru fjölskyldan
og samvera með vinum og fjöl-
skyldu. „Mér finnst gaman að
ferðast og vera úti við í góðu veðri.
Ég ætla að halda upp á daginn bæði í dag og á morgun þar sem ættingjar,
vinir og samferðafólk eru velkomin til að fagna með afmælisbarninu.“
Rut er ekki búin að negla sumarfríið niður en fer með nokkrum samkenn-
urum sínum til Alicante á námskeið ásamt því að ná góðri slökun eftir vet-
urinn í sól og Spánarhita.
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Rutar er Ingólfur Garðarsson, f. 1967. Hann er
menntaður cand. oecon. og MBA og er framkvæmdastjóri Blindravinnustof-
unnar. Börn þeirra eru Alexander, f. 1999, nemi í fatahönnun í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti, og Guðlaug Karen, f. 2003, sem verður stúdent frá
Verzlunarskóla Íslands í vor. Foreldrar Rutar: Magnús Ingi Ingvarsson, f.
1934, d. 2021, byggingafræðingur, var kennari í Iðnskólanum og rak eigið
arkitektafyrirtæki ásamt öðrum, og Aðalheiður Alexandersdóttir, f. 1933,
húsmóðir, búsett á Hrafnistu í Reykjavík.
Rut Guðríður Magnúsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Orðum þarf að fylgja einhver at-
höfn því annars missa þau marks. Vendu
þig á að tjá hug þinn skýrt og skorinort svo
aðrir viti hvar þeir hafa þig.
20. apríl - 20. maí +
Naut Ekki er ólíklegt að þú reiðist ein-
hverjum sem á það ekki skilið. Hvað sem
stóð í vegi fyrir fullkomnum friði á heim-
ilinu verður nú gert opinbert.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er alveg hægt að rökræða
við fólk án þess að allt fari í hund og kött.
Sýndu þínum nánustu þolinmæði og hlýju.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert skýjum ofar því draumar
þínir eru orðnir að veruleika. Gefðu þér
tíma til að rækta sálarlíf þitt en gættu þess
að forðast öfgar.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Láttu ekki neikvæðni annarra og óþol-
inmæði hafa áhrif á þig. Þú hefur þitt á
hreinu og þarft því ekki að hafa áhyggjur af
því þótt vinnufélagarnir sæki að þér.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur svo margt á þinni könnu
að þér finnst þú ekki sjá fram úr neinu.
Eyddu tímanum með fólki sem hefur já-
kvæð og hvetjandi áhrif á þig.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ert í ævintýralegum hugleiðingum
og skalt bara láta þig dreyma. Farðu út og
gerðu eitthvað öðruvísi og skemmtilegt.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þetta er góður dagur til að
skipuleggja ferðalag með vini þínum eða
einhvers konar starfsþjálfun. Þú átt í vænd-
um viðurkenningu fyrir störf þín.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Sambönd úr fortíðinni gætu
skotið upp kollinum í dag. Hafðu andvara á
þér því alltaf getur eitthvað komið upp á og
þá er gott að vera við öllu búinn.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Aðstæður eru nú uppi sem ýta á
eftir því að þú takir ákvörðun í persónulegu
máli. Hlustaðu því af athygli, en geymdu
viðbrögð þar til þú hefur hugsað málið.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú ert að eiga við fólk sem er
erfitt að ná til tilfinningalega, en þú getur
það ef þú reynir. Ráðfærðu þig við þá sem
næst þér standa.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú getur þurft að setja mörg per-
sónuleg mál til hliðar meðan þú starfar að
vandasömu verkefni. Hættu að velta þér
upp úr hlutunum.
sjónin sé orðin léleg. „Ég er að
grípa í að skrifa í tölvunni með
stærri stöfum á lyklaborðinu, mér
til dægrastyttingar. Annars bý ég
hér einn og líkar vel og fæ hér góða
heilbrigðisþjónustu. Það hefur verið
bænda í tæpan aldarfjórðung og sat
einnig á Búnaðarþingum. Engilbert
var framkvæmdastjóri Ræktunar-
sambands Nauteyrar- og Snæfjalla-
hrepps um árabil og var á sama
tíma formaður Búnaðarfélags
Snæfjallahrepps og í nefnd um
Inn-Djúpsáætlun. Engilbert var
einnig formaður stjórnar Djúpbáts-
ins hf. og stjórnarformaður Íslax hf.
Engilbert var kosinn formaður
kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins
í Vestfjarðakjördæmi 1978 og
gegndi því hlutverki til 1987 og sat í
miðstjórn Sjálfstæðisflokksins á
sama tíma. Hann var enn fremur
stofnfélagi og fyrsti formaður félags
eldri borgara í Strandasýslu og
fyrsti formaður Snjáfjallaseturs.
Engilbert fór að skrifa á
áttræðisaldri bækur um búsetu og
mannlíf á Snæfjallaströnd sem hann
nefndi Undir Snjáfjöllum. Auk þess
skrifaði hann bókina Þegar rauði
bærinn féll um Ísafjarðarár sín og
rit um Kolbein Jakobsson í Dal.
Engilbert sinnir enn skrifum þó að
E
ngilbert Sumarliði
Ingvarsson fæddist
28. apríl 1927 í Un-
aðsdal, Snæfjalla-
hreppi, N-Ís. Hann
bjó í Unaðsdal fyrstu árin með for-
eldrum sínum en þau fluttust á ný-
býlið Lyngholt í sömu sveit í janúar
1936. Á Lyngholti var heiman-
gönguskóli og var Engilbert í
barnaskóla þar og eftir það tvo vet-
ur í Reykjanesskóla.
Hann flutti til Ísafjarðar 17 ára
gamall árið 1944 og þar kynntist
hann konu sinni, Kristínu Ragnhildi
Daníelsdóttur, sem ávallt var kölluð
Adda. Engilbert og Adda bjuggu á
Ísafirði til 1953. Á Ísafirði vann
hann um tíma hjá Finnbirni Finn-
björnssyni málarameistara, en fór
svo á námssamning á bókbands-
verkstæðinu hjá Prentstofunni
Ísrún. Engilbert útskrifaðist sem
bókbindari frá Iðnskólanum á Ísa-
firði 1952 og stundaði oft bókband á
veturna.
Snemma árs 1952 bauðst Engil-
bert og Öddu að kaupa eyðijörðina
Tirðilmýri í Snæfjallahreppi. Þegar
hann hafði lokið sveinsprófinu vorið
1952 fóru þau að huga að jörð sinni
sem var nánast húsalaus. Þangað
fluttu þau Adda með þremur ungum
sonum sumarið 1953 og hófust
handa við að byggja upp bæði jörð
og hús. Engilbert og Adda bjuggu á
Tirðilmýri til 1987 er þau fluttu til
Hólmavíkur. Þau hófu að gera upp
gamla bæinn á Lyngholti á Snæ-
fjallaströnd þegar þau voru um átt-
rætt og luku þeim framkvæmdum
2012. Eftir það dvöldu þau mikið á
Lyngholti á sumrin. Engilbert og
Adda fluttu svo til Ísafjarðar og
keyptu íbúð á Hlíf II árið 2014 og
býr Engilbert þar áfram eftir lát
Öddu.
Engilbert hefur unnið mikið að
framfara- og félagsmálum fyrir sitt
hérað. Hann hafði forgöngu um það
ásamt Ásgeiri Sæmundssyni og
fleirum að stofna Rafveitu Snæfjalla
og stuðla að rafvæðingu Ísafjarðar-
djúps. Engilbert var í nefnd um
stofnun Orkubús Vestfjarða og sat
þar í stjórn um árabil. Hann átti
sæti á aðalfundum Stéttarsambands
lítið um að vera hér út af covid, en
ég hlusta talsvert á hljóðbækur og
sæki tónleika eftir föngum.“
Fjölskylda
Hinn 27. mars 1948 kvæntist
Engilbert Kristínu Ragnhildi Daní-
elsdóttur (Öddu), f. 10.6. 1928 á
Uppsölum, Súðavíkurhreppi, d. 8.6.
2021 á Ísafirði. Foreldrar hennar
voru hjónin Soffía Magdalena
Helgadóttir, f. 28.11. 1910, d. 1.1.
1986, húsfreyja á Ísafirði, og Daníel
Rögnvaldsson, f. 11.5. 1902, d. 28.4.
1974, skipasmiður á Ísafirði.
Börn Engilberts og Öddu: 1)
Grettir, f. 27.9. 1948, d. 1.6. 2015,
kennari í Svíþjóð, maki Kristina
Karlsson. Synir þeirra eru Sæ-
mundur Jóhann, Einar Snorri og
Kolbeinn Ari, maki Annagreta
Berg. 2) Daníel, f. 19.12. 1950, vél-
stjóri og bókbindari á Selfossi. Syn-
ir Daníels eru a) Valur Bjartmar,
sem á tvo syni, Daníel Bjartmar og
Alexander, b) Auðun, maki Ruth
Margrét Friðriksdóttir, og c)
Engilbert Ingvarsson, bókbindari og fyrrverandi bóndi – 95 ára
Stórfjölskyldan Engilbert og Adda ásamt afkomendum og mökum þeirra í Hólmavíkurkirkju sumarið 2017.
Fór að skrifa á áttræðisaldri
Á Lyngholti Hjónin sumarið 2010,
þegar þau voru að gera húsið upp.
Til hamingju með daginn
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021