Morgunblaðið - 28.04.2022, Blaðsíða 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. APRÍL 2022
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL V
Hvíldarst
KRAGELUND Aya K 129
Casö 701 langborð
Stólar
Sófasett
Borðstofuborð
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
o.m.fl.
Borstofuhúsgön frá Casö
Mikið úrval af
hvíldarstólum
með og án
rafmagns.
Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu
Casö 230 viðartegundir nature eik og reykt eik
IKTOR
óll
KRAGELUND Handrup
Nýjasta bók írsku skáldkonunnar
geysivinsælu Sally Rooney, sem
áður hefur sent frá sér verkin Okkar
á milli og Eins og fólk er flest, ber
titilinn Fagri heimur, hvar ert þú?
og segir af tveimur 29 ára vinkonum,
Alice og Eileen.
Alice er rithöfundur sem hefur
skotið hratt upp á
stjörnuhimininn
og það er greini-
legt að þessi ný-
tilkomna frægð
hefur haft mikil
áhrif á hana og
sjálfsmynd henn-
ar. Eftir að hafa
misst tökin og
verið lögð inn á geðdeild ákveður
hún að setjast að í stóru húsi rétt
utan við írskan smábæ. Ýmsir hafa
velt því fyrir sér að hve miklu leyti
Rooney byggir sögu Alice á sögu
sjálfrar sín og að hve miklu leyti
vangaveltur Alice um hlutverk rit-
höfundarins í samtímanum eru
vantaveltur Rooney.
Í þessum litla bæ kynnist Alice
manni að nafni Felix sem starfar í
vöruhúsi. Þau eru ólíklegir vinir og
enn ólíklegri elskendur en Alice lýsir
sambandi þeirra vel í bréfi til vin-
konunnar Eileen: „Við sjáum margt
sem við könnumst við hvort í annars
fari“ (132).
Eileen býr í Dublin þar sem hún
vinnur sem aðstoðarritstjóri bók-
menntatímarits. Hennar hluti sög-
unnar er að miklu leyti byggður í
kringum samskipti hennar við vin
sinn Simon sem hún hefur þekkt frá
því hún var barn. Samband þeirra er
náið en marglaga og oft á tíðum er
óljóst af hvaða tagi það er.
Annar hver kafli byggist á tölvu-
póstsamskiptum vinkvennanna Alice
og Eileen. Þar ræða þær stjórnmál,
sögu mannkyns, trúarbrögð, bók-
menntir og samtímann sem og velta
fyrir sér sinni eigin stöðu í þessum
heimi sem þær eru sammála um að
sé ekkert sérlega fagur.
Þetta eru kannski ívið háfleyg
samskipti en þegar heimsfrægur rit-
höfundur og besta vinkona hennar,
sem hafði skarað fram úr á skóla-
göngu sinni, skrifast á er kannski
ekki við öðru að búast. (Þessir bréfa-
kaflar kallast skemmtilega á við
sambærilegar bréfaskriftir vin-
kvenna í Merkingu Fríðu Ísberg en
bækurnar tvær komu út með stuttu
millibili síðasta haust.)
Verkið er byggt upp á einfaldan
hátt; samskipti Alice og Felix, sam-
skipti Eileen og Simons og bréfa-
skriftir Alice og Eileen birtast les-
andanum á víxl og flæða áfram þar
til fereykið sameinast í húsi Alice
undir lok verksins.
Fagri heimur, hvar ert þú? toppar
kannski ekki Eins og fólk er flest,
sem sló svo rækilega í gegn, en er
engu að síður afar vel heppnað verk
þar sem þau höfundareinkenni
Rooney, sem fólk heldur hvað mest
upp á, eru enn áberandi.
Textinn er tær eins og í fyrri verk-
um Rooney og flæðir einstaklega vel
enda ekkert út á þýðingu Ingunnar
Snædal að setja.
Hún er líka einstök nándin sem
höfundinum tekst að skapa milli les-
andans og persónanna og ekki síður
nándin sem lesandinn skynjar per-
sónanna í millum. Það ríkir einhver
angurværð yfir verkinu sem smýgur
inn að beini.
Snilldin felst í því hvernig Rooney
tekst að lýsa samskiptum og sam-
tölum fólks og draga um leið fram
það varnarleysi sem felst í því að
opna sig fyrir annarri manneskju og
þann breyskleika sem oftar en ekki
kemur í ljós.
Það má þó búast við að þetta verk
fari í taugarnar á sumum lesendum
og þeir hrópi upp yfir sig í pirringi:
„Það gerist ekki neitt!“ En það virð-
ist einmitt með ráðum gert eins og
lesa má út úr bréfaskriftum Alice og
Eileen þegar þær velta fyrir sér líf-
inu, tilverunni og skáldskapnum.
Það má kannski segja að höfund-
urinn sé að gera bókmenntafræði-
lega tilraun um það hvort hægt sé að
skrifa skáldsögu um „ekki neitt“.
Eða kannski ekki „ekki neitt“ heldur
öll þau agnarsmáu augnablik sem
virðast svo ómerkileg en skipta í
raun mestu máli þegar öllu er á
botninn hvolft.
Verkið Fagri heimur, hvar ert þú?
hittir í mark hjá okkur sem trúum
því að fegurð heimsins liggi í hinu
smáa og hinu hversdagslega, í vin-
áttu og ást, og að það sé einmitt hlut-
verk skáldskaparins að benda á það.
Snilldin býr í varnarleysinu
Faber/Jonny Davies
Höfundurinn „Það ríkir einhver angurværð yfir verkinu sem smýgur inn að
beini,“ segir gagnrýnandi um nýjustu skáldsögu Sally Rooney.
Skáldsaga
Fagri heimur, hvar ert þú? bbbbm
Eftir Sally Rooney.
Ingunn Snædal þýddi.
Benedikt, 2022. Kilja, 312 síður.
RAGNHEIÐUR
BIRGISDÓTTIR
BÆKUR
Auturríski sellóleikarinn Kian Solt-
ani er einleikari á tónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands í Eld-
borgarsal Hörpu í kvöld og flytur
hann sellókonsert Roberts Schu-
manns. Á tónleikunum hljómar
einnig Sinfónía nr. 9 eftir Franz
Schubert. Tónsprotanum sveiflar
Eva Ollikainen.
Soltani vakti fyrst athygli tón-
listarheimsins þegar hann vann ár-
ið 2013 fyrstu verðlaun í Paulo-
sellókeppninni í Helsinki. Og gagn-
rýnendur hafa síðan borið mikið lof
á leik hans og túlkun. „Hrein full-
komnun“ hefur rýnir tímaritsins
Gramophone til að mynda skrifað
um túlkun hans. Síðustu ár hefur
ferli hans verið líkt við sigurgöngu
og hefur hann til að mynda haldið
tónleika í Carnegie Hall í New York
og er kominn með útgáfusamning
við Deutsche Grammophon. Kon-
sert Schumanns er ljóðrænn og til-
finningaríkur en tónskáldið samdi
hann undir lok ævinnar.
Létt og lagræn sinfónía Schu-
berts var aldrei flutt meðan hann
lifði en er rómuð í dag.
Í ham Einleikari kvöldsins, Kian Soltani.
Kian Soltani flytur
verk Schumanns