Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.05.2022, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra . Jóga, slökun & sæla 13. júní í 10 nætur með Auði Bjarnadóttur á Krít 595 1000 www.heimsferdir.is 339.900 Flug & hótel frá 10 nætur Fararstjóri: Auður Bjarnadóttir SÉRFERÐ FULLT FÆÐI INNIFALIÐ HÓTELaaaaa Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Vegagerðin og Betri samgöngur munu láta vinna frumdrög að jarð- göngum undir Miklubraut frá Snorrabraut og austur fyrir Grens- ásveg, til samanburðar við steyptan stokk sem leggja á frá Snorrabraut og austur fyrir Kringlu samkvæmt gildandi aðalskipulagi og sam- göngusáttmála. Þröstur Guðmunds- son, forstöðumaður verkefna og áætlana hjá Betri samgöngum, seg- ir hugsanlegt að jarðgöng séu fýsi- legur kostur, alla vega sé vilji til að skoða þann valmöguleika en tekur fram að það sé annarra að ákveða breytingar ef sá kostur kemur vel út í samanburðinum. Gert hefur verið ráð fyrir því að stokkurinn verði byggður í tveimur áföngum. Annars vegar á milli Snorrabrautar og Rauðarárstígs og hins vegar þaðan og austur fyrir Kringlu. Hugsanlegt er að hentað gæti að grafa jarðgöng austur fyrir gatnamót Grensásvegar. Frumdrög sem nú á að láta vinna og boðin hafa verið út fela í sér að fyrstu áætlanir eru gerðar og reynt að ná utan um verkefnið í heild. Næsta stig hönn- unar er forhönnun. Þá eru niður- stöður úr frumdrögum unnar lengra og byrjað að vinna að kostnaðar- og tímaáætlunum, umhverfismati og deiliskipulagi. Þriðji áfanginn er síðan verkhönnun þar sem mann- virkið er hannað að fullu til und- irbúnings útboðs verklegra fram- kvæmda. Sæbraut á annað stig Sæbrautarstokkurinn, frá Vestur- landsvegi að Holtavegi, er að fara á annað stig hönnunar, forhönnun. Stokkurinn verður 850 metrar að lengd, frá Vesturlandsvegi og fram yfir Kleppsmýrarveg og aðlögun stokks að núverandi vegi lýkur áður en komið er að Holtavegi. Skoða jarðgöng undir Miklubraut samhliða stokki - Vinna við fyrsta stig hönnunar hefur verið boðin út Morgunblaðið/Hari Umferð Mikil breyting verður á Miklubraut við Lönguhlíð. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Fyrir utan leiðindaveður byrjar sumarið á strandveiðunum ágæt- lega,“ sagði Einar Helgason á Kolgu BA 70 upp úr hádegi í gær. Hann var þá á landleið og sigldi á rúmum 20 mílum inn Patreksfjarðarflóa með dagskammtinn sem fékkst á fjórum tímum á Víkurálstotunni vestur af Látrabjargi. Vertíðin byrjaði á mánudag, en Einar reri ekki á þriðjudag vegna veðurs. Í gærmorgun héldu hann og fleiri strandveiðibátar út frá Pat- reksfirði þegar veður gekk aðeins niður. Á þriðjudag voru alls 470 bátar komnir með virk leyfi til strandveiða. Þeir hafa þó ekki allir getað hafið veiðar vegna veðurs, en í gær var fjöldi minni báta á sjó við vestanvert landið. Aldan köld á Kolgu Einar segir að nóg virðist vera af fiski og nú sé stóri fiskurinn farinn að taka. Hann fór í kvótaróður í síð- ustu viku og þá var fiskurinn mjög blandaður og stóra fiskinn vantaði. Í gær var helmingur dagskammtsins, sem er um 700 kíló af þorski, yfir átta kíló að þyngd og hinn helming- urinn flokkaðist sem stór, þ.e. yfir fimm kílóum. Einar er bjartsýnn á sumarið, en síðustu sumur hefur hann verið með þeim aflahæstu á strandveiðununm, gjarnan með um og yfir 40 tonn í heildina. Bátur Einars, Kolga BA, var upp- haflega átta metra Sómi, sem var smíðaður á tíunda ártatugnum sem frístundabátur með stóru húsi. Hon- um hefur mikið verið breytt og er nú rúmlega 11 metrar á lengd með öflugri vél. „Þetta er orðið talsvert skip miðað við marga strand- veiðibáta þó svo að vissulega séu margir á stærri bátum,“ segir Ein- ar. Nafnið segir Einar að sé sótt í goðafræðina og Kolga (einnig Kólga) hafi verið ein dætra Ægis og Ránar og meðal annarra Ægisdætra hafi verið þær Bára, Hrönn, Unnur og Bylgja. Nöfnin standi fyrir öldur hafsins og Kolga sé köld alda. Það hafi sannarlega átt við í öldugangi og snjókomu gærdagsins. Fjórtán ára háseti Eftir að hafa verið skipstjóri á línubát í níu ár hjá útgerð í eigu annarra, samhliða strandveiðunum, hætti hann þeim starfa í fyrra. Hann er núna netamaður á togar- anum Vestra á fiskitrolli yfir vet- urinn en á strandveiðunum á sumr- in. Þetta henti báðum vel þar sem færri eru um borð á rækjunni á Vestra á sumrin og hann sé þá eigin herra á strandveiðunum. Á þeim veiðiskap séu flestir einir um borð, en í fyrra fékk Einar þó liðsauka: „Fjórtán ára stjúpdóttir mín, Mónika Björg, var með mér um borð hluta sumars í fyrra,“ segir Einar. „Hún náði sér í smápening með þessu og stóð sig vel, var dug- leg, ekkert sjóveik og góður fé- lagsskapur. Það getur vel verið að hún rói eitthvað mér í sumar.“ Ljósmynd/Kolbrún Gunnarsdóttir Á strandveiðum Einar kemur að landi með góðan afla í fyrrasumar. Bjartsýnn þrátt fyrir brælutíð - Gott verð fyrstu daga strandveiða Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bensínlítrinn í sjálfsafgreiðslu kost- aði allt að 308,90 kr. í gær og lítrinn af díselolíu (gasolíu) 312,90 kr. sam- kvæmt vefnum gsmbensin.is. „Dísilolían hefur aldrei verið jafn dýr og nú síðustu áratugi,“ sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig- enda. Hann segir að FÍB hafi lagt það til að stjórnvöld bregðist við hækkununum, að minnsta kosti tímabundið. Þær fari beint inn í vísi- töluna og komi verst við íbúa hinna dreifðu byggða sem þurfa að sækja þjónustu um langan veg. „Það er erfitt að spá um framtíð- ina en mér sýnist á öllu að eldsneyt- isverð geti haldist áfram hátt. Verðið má helst ekki fara mikið hærra en þetta,“ sagði Friðrik Kristjánsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá N1. Hann segir að svo virðist sem átökin í Úkraínu gætu harðnað. Þá séu menn að gera alvöru úr hótunum um að stöðva streymi olíu og gass frá Rússlandi til Vestur-Evrópu. Það er þegar farið að hafa mikil áhrif á framboð eldsneytis í Evrópu og skorturinn þrýstir verðinu upp. Kórónuveirufaraldurinn í Kína hefur slegið á eftirspurn eftir jarð- efnaeldsneyti þar í landi og það hef- ur hamlað á móti enn frekari verð- hækkunum. Venjulega hefur verð á gasolíu lækkað á þessum árstíma þegar dregur úr húshitun. Friðrik segir að ástandið nú á eldsneytismörkuðum sé allt annað en eðlilegt og því ólík- legt að verðið lækki, þótt það dragi úr húshitun með hlýindum vorsins. Hann segir að mikið af gasolíu hafi komið til Vestur-Evrópu frá Rúss- landi. Olíuframleiðsla olíuríkja í Evr- ópu datt mikið niður í heimsfaraldr- inum og hefur ekki náð sömu afköstum og áður. Eldsneytisverð í hæstu hæðum þessa dagana - Útlit fyrir hátt verð áfram - Úkraínustríðið hefur áhrif Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eldsneyti Verðhækkanir kalla á viðbrögð stjórnvalda, segir FÍB. Sauðburður er mikill annatími hjá bændum. Þá eru langar vökur til að fylgjast með velferð ánna sem eru að bera og afkvæma þeirra enda mikilvægt fyrir af- komuna að vel takist til. Brynjólfur Sæmundsson á Silf- urbergi er með um 75 ær í fjárhúsunum í Beitistöðum í Leirársveit og segist vera frístundabóndi. Sauðburður er nýlega byrjaður á Beitistöðum en hefur gengið vel það sem af er, að sögn Brynjólfs. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Annatími hjá bændum í sauðburði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.