Morgunblaðið - 05.05.2022, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.05.2022, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MAÍ 2022 KRINGLU KAST 5.-9. maí 20% afsláttur af völdum vörumerkjum í CASA Kringlunni Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is Afsláttur einnig í netverslun Ívilnun í formi lækkaðs virðisauka- skatts á tengiltvinnbíla rennur sitt skeið á enda í lok dags á morgun, 6. maí. Ívilnanir sem þessar bifreiðar hafa notið voru lækkaðar um helm- ing um seinustu áramót úr 960 þús- und kr. á hverja bifreið í 480 þúsund krónur og stjórnvöld ákváðu að þeg- ar 15 þúsund tengiltvinnbílar hafa verið skráðir á ökutækjaskrá féllu ívilnanir virðisaukaskatts þessara bíla alveg niður og er nú komið að því. Fram kemur í tilkynningu Skatts- ins að innflutningur tengiltvinnbíla hafi þegar náð þessu marki og vel það og var fjöldi þeirra kominn í 15.238 ökutæki 29. apríl síðastliðinn. Ívilnunin fellur niður frá og með sjötta virka degi í næsta mánuði eftir að 15 þúsund bíla hámarkinu er náð. Stjórnvöld höfnuðu í vetur óskum ýmissa samtaka um að framlengja þessar ívilnanir vegna tengiltvinn- bíla frekar og kom fram í greinar- gerð fjármálaráðuneytisins að áframhaldandi ívilnanir virðisauka- skatts hefðu í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð, sem gæti orðið um 20 milljarðar kr. Skv. tölum Bílgreinasambandsins um sölu nýrra bíla eru nýorkubílar (rafmagns, tengiltvinn og metan) rúmlega 62% allra seldra nýrra fólksbíla á árinu. Hefur sala á tengil- tvinnbílum aukist það sem af er ári, væntanlega mest vegna þess að fyrirsjáanlegt var að verð þeirra myndi nú hækka eftir afnám ívilnana stjórnvalda. omfr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Umferð Í lok apríl var fjöldi innfluttra tengiltvinnbifreiða kominn í 15.238. Ívilnun tengiltvinn- bíla að renna út - 480.000 kr. vsk-ívilnun fellur niður Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Kristinn D. Hafliðason fagnaði í gær 100 ára afmæli sínu. Hann er fæddur í Reykjavík, 4. maí 1922, og hefur búið þar alla tíð. Hann rifjar upp hve mikil breyting hafi orðið í borginni á stríðs- árunum. „Fólk hafði lítil peningaráð en svo þegar stríðið kemur þá verður allt vit- laust að gera og fólkið hljóp úr sveit- unum. Þá var mikil eftirspurn eftir starfskrafti og það breyttist mikið á stuttum tíma,“ segir hann. Faðir Kristins, Hafliði Jónsson, var yfirvélstjóri og var Kristinn snemma farinn að fylgja föður sínum í ferðir með strandferðaskipum. Þeir unnu saman á Goðafossi þar til Kristinn hóf nám í Vélstjóraskólanum. Yngri bróð- ir hans, Pétur Már, tók þá við plássinu hans á skipinu. Þeir fórust báðir, faðir Kristins og bróðir, með Goðafossi í nóvember 1944, bróðirinn þá 17 ára og í sinni fyrstu ferð yfir Atlantshafið. „Það var erfitt,“ segir Kristinn. „Á þeim árum var aðalatvinnuvegurinn búskapur og sjómennska. Það var ekki um mikið annað að velja. En það fórust mörg skip á þessum árum.“ Hann lauk vélvirkjaprófi og síðar vélstjóraprófi og var á sjó allan sinn starfsferil. Hann starfaði hjá Eimskip, Bæjarútgerð Reykjavíkur og Granda. Sundlaugar fyrir eldra fólkið Kristinn hefur lagt mikla áherslu á hreyfingu og eftir að hann hætti á sjónum, lenti í slysi og brotnaði á fæti og öxl fór hann að stunda sund. Hann var til heimilis á Lindargötu þar til fyrir þremur árum og var fastagestur í Sundhöll Reykjavíkur. „Ég byrjaði daginn á því og ég held ég geti þakkað sundinu að ég náði mér nokkuð vel eftir slysið. Maður synti svolítið og slappaði svo af í heitu pottunum. Það var mjög gott.“ Hann segir sundið ábyggilega eiga sinn þátt í því hvað hann hafi haldið góðri heilsu fram eftir aldri. Hann bjó á Lindargötu þar til fyrir þremur árum þegar hann flutti á hjúkrunarheimilið í Sóltúni 2. Þar lík- ar honum vel. „Það er hugsað svo vel um okkur,“ segir hann. Það skorti bara aðgang að sund- laugunum. „Við eigum nóg af heitu vatni og það mætti nota það svolítið meira fyrir eldra fólkið,“ segir hann og bendir á að við Sóltún sé gott úti- svæði sem alveg mætti nýta undir sundlaug og aðra íþróttaaðstöðu. „Það hefur svo mikil áhrif að hreyfa sig, ekki sitja bara kyrr og horfa á sjónvarp.“ Honum heilsast al- mennt vel fyrir utan að vera farinn að tapa sjón og heyrn. Kristinn fór mikið með vinum sín- um í gönguferðir frá Lindargötunni og niður í bæ og bregður sér enn út og fær sér frískt loft. Hann tók aldrei bílpróf enda lítil þörf fyrir það á sjón- um. Mótorhjól átti hann þó með Gísla bróður sínum. „Hann er yndislegur faðir og góður félagi,“ segir sonur Kristins, Hafliði, og rifjar upp fjölskylduferðir í sumar- bústaði og til sólarlanda. „Þá var oft glatt á hjalla.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aldarafmæli Kristinn Hafliðason var vélstjóri, sigldi víða og gerðist síðan fastagestur í Sundhöll Reykjavíkur. Sund og önnur hreyf- ing hefur mikil áhrif - Kristinn D. Hafliðason fagnaði 100 ára afmæli sínu í gær Einar Þorsteinsson, oddviti lista Framsóknar fyrir komandi borgar- stjórnarkosningar, kynnti áherslur listans í gær, þegar tíu dagar voru til kosninga. Meðal annars segist flokkurinn vilja þétta byggð þar sem innviðir leyfi, og í aukinni sátt við íbúa. Sömuleiðis vilji flokkurinn öfluga uppbyggingu í öllum hverfum borg- arinnar og reisa nýtt hverfi að Keld- um. Hlúð verði að fjölmenningar- samfélaginu, jafnrétti allra kynja verði tryggt og tekið verði vel á móti flóttafólki og því hjálpað að laga sig að samfélaginu. Flokkurinn kveðst einnig vilja „stýra Reykjavík út frá hagsmunum barna“ og hækka frístundastyrk í 75 þúsund krónur, auk þess sem börn í grunn- og framhaldsskóla fái ókeyp- is í strætisvagna. „Framsókn vill efla dagforeldra- kerfið og bjóða heimgreiðslur með barni sem bíður eftir leikskólaplássi til að brúa bilið,“ segir einnig í stefnu listans fyrir kosningarnar. Þá er tek- ið fram að Framsókn vilji fjölga val- kostum í matarþjónustu fyrir eldra fólk og að heilsuefling verði stórefld fyrir eldri borgara. Hvað borgina varðar segir að tryggja verði að Reykjavíkurborg verði eftirsóttur vinnustaður. Framsókn kynnti stefnumál listans - Vill þétta byggð og byggja nýtt hverfi Morgunblaðið/Eggert Oddviti Einar Þorsteinsson leiðir lista Framsóknar fyrir kosningarnar. 2022 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Kjörnum fulltrúum í sveitar- stjórnum á landinu öllu mun fækka um 17 við sveitarstjórnarkosning- arnar 14. maí eftir því sem næst verður komist. Þetta kemur fram í samantekt Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mun fulltrúum þó fjölga í þremur sveitarfélögum en í fimm sveitarfélögum fækkar fulltrúunum og er ástæða þess sam- eining sveitarfélaga. Í Vest- mannaeyjum verður fulltrúum fjölgað úr 7 í 9 og Mosfellsbæ og Árborg fjölgar bæjarfulltrúum úr níu í ellefu. Fækkun fulltrúa vegna samein- ingar sveitarfélaga á fimm stöðum á landinu á sér m.a. stað við samein- ingu Skútustaðahrepps og Þingeyj- arsveitar þar sem sveitar- stjórnarmenn verða níu en voru tólf. Skagafjörður var með níu menn og sú tala verður óbreytt en í Akrahreppi var fimm manna sveitarstjórn svo í heild fækkar um fimm fulltrúa svo dæmi séu tekin. Fulltrúum í sveitarstjórnum fækkar um 17
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.